Ekki hægt að fá upplýsingar um endanlegt tjón Landsbankans vegna SpKef

Banki í eigu íslenska rík­is­ins vill ekki upp­lýsa fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neytið um hversu miklum fjár­munum hann tap­aði á Spari­sjóðnum í Keflavík. Þegar sjóðnum var rennt inn í Lands­bank­ann þurfti ríkið að borga 26 millj­arða króna með honum.

Fjármála- og efna­hags­ráðu­neytið býr ekki yfir upp­lýs­ingum um hvert end­an­legt tjón Lands­bank­ans á SpKef spari­sjóði, áður Spari­sjóðnum í Keflavík, var. Lands­bank­inn, sem er að öllu leyti í eigu rík­is­ins, hafn­aði beiðni ráðu­neyt­is­ins um að veita þær upp­lýs­ingar og vís­aði í að um þær ríkti trún­aður.

Þetta kemur fram í nýrri skýrslu Bjarna Bene­dikts­sonar, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, um yfir­tök­una á SpKef, sem birt var á föstu­dag. Skýrslan var unnin vegna beiðni Birgis Þór­ar­ins­sonar, þing­manns Mið­flokks­ins, þar um. Í skýrsl­unni er bent á að rík­is­sjóður sé „langstærsti eig­andi Lands­bank­ans og því hefur tap eða hagn­aður bank­ans af yfir­tök­unni með beinum hætti áhrif á virði eign­ar­hlutar rík­is­ins í bank­anum.“

Aðrar upp­lýs­ingar sem koma fram í skýrslu fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra byggja nær ein­vörð­ungu á skýrslu rann­sókn­ar­nefndar Alþingis um aðdrag­anda og orsakir og falls spari­sjóð­anna sem skilað var í apríl 2014, þar sem mikið var fjallað um Spari­sjóð­inn í Keflavík.

Afkoman tengd gengi hlutabréfa

Spari­sjóð­ur­inn í Keflavík, eða SpKef, var sam­kvæmt þeirri skýrslu einna verst rek­inn allra spari­sjóð­anna. Vaxta­munur hans var til að mynda oft­ast lægri en hjá öllum hinum sjóð­unum, útlán hans virð­ast hafa verið illa und­ir­byggð, afkoma sjóðs­ins var nán­ast ein­vörð­ungu bundin við gengi hluta­bréfa sem hann átti og emb­ætti sér­staks sak­sókn­ara, sem nú hefur runnið inn í emb­ætti hér­að­sak­sókn­ara, rann­sak­aði um ára­bil nokkur mál tengd honum. Eitt þeirra mála rataði fyrir dóm­stóla og í des­em­ber 2017 var Geir­mundur Krist­ins­son, fyrr­ver­andi spari­sjóðs­stjóri, dæmdur í 18 mán­aða skil­orðs­bundið fang­elsi í Hæsta­rétti fyr­ir umboðs­svik.

[adspot]Í skýrslu rann­sókn­ar­nefndar um starf­semi spari­sjóð­anna kom fram að eignir SpKef fimm­föld­uð­ust á fimm ára tíma­bili og námu sam­tals 98 millj­örðum króna í lok árs 2008. Tvennt skipti mestu máli fyrir þennan vöxt: útlán sjóðs­ins höfðu fimm­fald­ast og virði hluta­bréfa, að mestu óbein eign í Existu í gegnum fjár­fest­inga­fé­lagið Kistu og í Icebank/Spari­sjóða­bank­anum, hækk­aði mikið. Í árs­lok 2006 var til dæmis nærri 70 pró­sent af öllu eigin fé spari­sjóðs­ins bundið í hluta­bréfum í Existu, annað hvort beint eða óbeint. Þá voru ótalin áhrif Exista í Spari­sjóða­bank­anum, sem spari­sjóð­ur­inn átti 12 pró­sent í.

Auk þess yfir­tók sjóð­ur­inn nokkra minni sjóði víða um land sem leiddi til þess að eigna­safnið stækk­aði.

Starf­semin var að mestu fjár­mögnuð með inn­lánum.

26 milljarða meðgjöf

Útlánin sem Spari­sjóð­ur­inn í Keflavík veitti voru mörg hver léleg. Lán til vensl­aðra aðila voru umtals­verð, 90 pró­sent útlána sem voru með veði í hluta­bréfum voru tryggð með veði í óskráðum bréfum, verð­mæti trygg­inga var í mörgum til­vikum langt undir láns­fjár­hæði og ofmetið.

Spari­sjóð­ur­inn fór í þrot í apríl 2010 og í kjöl­farið var ákveðið að stofn­setja nýjan sjóð á grunni þess gamla, SpKef. Sá lifði þó ein­ungis í tíu mán­uði áður en honum var rennt inn í Lands­bank­ann gegn því að íslenska ríkið borg­aði allt að 26 millj­arða króna með honum.

Ástæða þess að svo háa fjár­hæð þurfti til var sú að óháðir sér­fræð­ingar töldu að enn minna myndi inn­heimt­ast af lélegum útlánum spari­sjóðs­ins en áður var áætlað og vegna þess að inn­lánin voru orðin jafn stór hluti af skuldum hans þegar sjóð­ur­inn loks­ins fór í þrot eins og raun ber vitni.

Fjaðrafok vegna skýrslubirtingar

Í ágúst 2013, áður en skýrsla rann­sókn­ar­nefnd­ar­innar var birt, fjall­aði Kjarninn ítar­lega um Spari­sjóð­inn í Keflavík. Sú umfjöllun byggði á svartri skýrslu end­ur­skoð­un­ar­fyr­ir­tæk­is­ins PwC um sjóð­inn, sem unnin var að beiðni Fjár­mála­eft­ir­lits­ins.

Samhliða umfjöll­un­inni birti Kjarninn skýrslu PwC um spari­sjóð­inn í heild sinni, en hún er hátt í fimm hund­ruð blað­síður að lengd. Í skýrsl­unni var að finna fjár­hags­upp­lýs­ingar um helstu lán­tak­endur og við­skipta­vini sjóðs­ins sem og upp­lýs­ingar um útlána­stöðu starfs­manna hans.

Eftir birt­ingu leyni­skýrsl­unnar fór Fjár­mála­eft­ir­litið fram á að hún yrði fjar­lægð af vef­síðu Kjarnans, vegna fjár­hags­upp­lýs­inga sem þar væri að finna um nafn­greinda við­skipta­vini og starfs­menn sjóðs­ins. Kjarninn hafn­aði beiðni Fjár­mála­eft­ir­lits­ins um að fjar­lægja skýrsl­una, þar sem hún ætti erindi við almenn­ing enda hafi gjald­þrot Spari­sjóðs­ins í Keflavík kostað almenn­ing tugi millj­arða króna.

Sjö fyrr­ver­andi starfs­menn Spari­sjóðs­ins í Keflavík sendu Per­sónu­vernd form­lega kvörtun vegna umfjöll­unar Kjarnans um spari­sjóð­inn þann 22. ágúst 2013. Á meðal starfs­mann­anna eru fyrr­ver­andi innri end­ur­skoð­andi og for­stöðu­maður áhættu­stýr­ingar og útlána­hættu Spari­sjóðs­ins í Keflavík.

Per­sónu­vernd vís­aði kvört­un­unum frá.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár