Árni Kolbeinsson ekki óhlutdrægur í Al-Thani málinu

Hæsta­rétt­ar­dóm­ari var ekki óhlut­drægur í Al-Thani mál­inu svo­kall­aða sam­kvæmt úrskurði Mann­rétt­inda­dóm­stóll Evrópu sem birtur var í dag.

Mannréttindadómstóll Evrópu
Mann­rétt­inda­dóm­stóll Evrópu Mynd: EPA

Hæsta­rétt­ar­dóm­ar­inn Árni Kol­beins­son var ekki óhlut­drægur í Al-Thani mál­inu svo­kall­aða sam­kvæmt úrskurði Mann­rétt­inda­dóm­stóll Evrópu sem birtur var í dag.

Í Al Than­i-­mál­inu voru þrír af æðstu stjórn­endum Kaup­þings, þeir Hreiðar Már Sig­urðs­son, Sig­urður Ein­ars­son og Magnús Guð­munds­son ákærðir ásamt Ólafi Ólafs­syni, einum stærsta eig­anda bank­ans fyrir hrun, fyrir umboðs­svik, mark­aðs­mis­notkun og hlut­deild í umboðs­svik­um.

Mál­inu lauk með dómi Hæsta­réttar þann 12. febr­úar 2015 þar sem allir ákærðu voru sak­felld­ir. Hreiðar Már var sak­felldur í öllum ákæru­liðum og dæmdur til 5 og hálfs árs fang­els­is, Sig­urður var sak­felldur sam­kvæmt ákæru hvað varðar mark­aðs­mis­notkun en fyrir hlut­deild í umboðs­svikum og dæmdur til 4 ára fang­els­is. Ólafur var sak­felldur vegna mark­aðs­mis­notk­unar en sýkn­aður í ákæru­liðum varð­andi umboðs­svik og dæmdur til 4 og hálfs árs fang­elsis og Magnús var sak­felldur í öllum ákæru­liðum og dæmdur til 4 og hálfs árs fang­els­is.

Málið var á meðal umfangs­mestu saka­mála sem rekin hafa verið á Íslandi og dóm­arnir þeir þyngstu sem fallið hafa um efna­hags­brot. Sak­born­ingar töldu að hallað hefði á þá við máls­með­ferð­ina hér á Íslandi og hún hefði ekki verið rétt fram­kvæmd. Þá hefði einn dóm­ara verið van­hæfur vegna fjöl­skyldu­tengsla.

Eftir að fjór­menn­ing­arnir voru dæmdir fóru þeir fram á að end­ur­upp­töku­nefnd tæki málið upp að nýju en beiðn­unum var hafnað, öllum fjórum. Þeir kærðu þá með­ferð máls­ins til Mann­rétt­inda­dóm­stóls­ins, sem hefur kom­ist að áður­nefndri nið­ur­stöðu sem hægt er að lesa hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár