Ef kona sér ekki vel um börnin sín er litið á hana sem slæma manneskju

„Ævistarf mitt er að vinna að fram­gangi stúlkna og kvenna, það er minn til­gangur í líf­inu,“ eru fyrstu orð Tiffany Dufu í þessu við­tali. Hún er ein þeirra sem tóku þátt í ráð­stefn­unni Women Empowerment í Hörpu á fimmtu­dag og föstu­dag og ræddi um konur og stjórn­mál. Dufu starfar hjá Levo League, stórri vef­síðu og sam­fé­lags­miðli sem ætlað er að hjálpa konum í atvinnu­líf­inu. Hún kom einnig að stofnun Lean In, sam­tak­anna sem voru stofnuð af aðal­fram­kvæmda­stjóra Facebook, Sheryl Sandberg. Áður var Dufu fram­kvæmda­stjóri The White House Project, sam­taka sem höfðu það að mark­miði að auka þátt­töku kvenna í stjórn­málum og við­skipta­lífi.

„Nú er það þannig að það er ójafn­vægi í heim­inum þegar kemur að fjölda kvenna í for­ystu í stjórn­málum. Þó eru nokkur lönd sem standa sig vel, og ég er mjög upp­numin að vera á Íslandi þar sem er mik­ill fjöldi kvenna í for­ystu­sveit í stjórn­málum miðað við Banda­ríkin, þar sem við höfum verið í 17 til 18 pró­sentum í mörg, mörg ár,“ segir hún og skýtur því inn í að hún hafi einmitt skrifað um hrifn­ingu sína á Twitter.

Impressed to be in Iceland where women hold 45% corporate board seats. @levoleague #WE2015

— Tiffany Dufu (@tdufu)

June 18, 2015

Hún er komin til Íslands til að ræða um konur, kosn­ingar og for­ystu í stjórn­málum. Stærstu áskor­an­irnar í þeim málum eru auð­vitað ólíkar eftir heims­hlutum, segir Dufu. „Eitt eru menn­ing­ar­legar hindr­anir. Ennþá, jafn­vel í Banda­ríkj­unum þar sem við viljum telja okkur trú um að við séum mjög nútíma­leg, þá finnst okkur ennþá að staður kvenna sé fyrst og fremst á einka­svið­inu sem eig­in­konur og mæður. Hvort sem þig langar að fara í fram­boð eða hasla þér völl í við­skiptum, þá er það ekki fyrr en allt annað í lífi þínu er í lagi sem þér leyf­ist að gera þessa hluti og ganga vel. Með öðrum orðum, ef kona sér ekki mjög vel um börnin sín sjálf þá er litið á hana sem slæma mann­eskju, jafn­vel þótt hún sé for­stjóri hjá einu af 500 stærstu fyr­ir­tækjum heims.“ Þessu sé hins vegar ekki öfugt farið. Kona geti verið frá­bær móðir og ekki starfað utan heim­il­is­ins og henni sé hampað fyrir það.

"We need to remove the stigma of politics." Tiffany Dufu

@tdufu

#WE2015

@Inspirally

pic.twitter.com/jMcvZojm97

— lizadonnelly (@lizadonnelly)

June 19, 2015

Þá segir Dufu að í hennar störfum hafi hún séð að það hafi reynst mörgum konum menn­ing­ar­leg hindrun að stjórn­mál krefj­ist mik­illar skuld­bind­ingar og þau séu mjög vægð­ar­laus. „Þú þarft að koma þér á fram­færi og vera mjög skýr um metnað þinn og fyr­ir­ætl­anir.“

Og þá komum við að annarri hindrun, sem á ekki síst við í Banda­ríkj­unum, og það er efna­hags­lega hindr­unin, segir Dufu. „Mjög víða kostar það mikið að fara í fram­boð. Það er efna­hags­leg hindrun sem hjálpar ekki konum.“ Því þurfa margir að safna pen­ingum og þá þarf að leita til fjár­sterkra aðila þar sem bæði menn­ing­ar­legar og efna­hags­legar hindr­anir spila inn í.

Góðar fyrir alla aðra en sjálfar sig

„Þú þarft að færa rök fyrir því hvers vegna fólk á að fjár­festa í þér, og konur eru ekki mjög góðar í því. Kald­hæðnin er sú að konur eru yfir­leitt ofboðs­lega góðar í því að færa rök fyrir því hvers vegna fólk á að fjár­festa í öllu öðru en þeim sjálfum. Ef þú spyrð konu hvers vegna ein­hver ætti að fjár­festa í börn­unum hennar gefur hún þér frá­bært svar. Ef þú spyrð hvers vegna eigi að fjár­festa í vörum fyr­ir­tækja kvenna þá gefur hún þér lík­lega frá­bært svar, það sama á við um sam­tök og sam­fé­lög.

En ef ég spyr konu: af hverju á ég að fjár­festa í þér eða af hverju ætti ég að kjósa þig? Þá verður þetta allt í einu erfið spurn­ing fyrir margar konur að svara. Það að fara í fram­boð ýtir á þetta og konur þurfa að vera mjög skýrar með sínar fyr­ir­ætl­anir.“

Þetta er hluti þess sem Tiffany Dufu og aðrar hjá The White House Project unnu að í mörg ár. Að finna konur sem væru reiðu­búnar að fara í fram­boð, iðu­lega í sínum sveit­ar­fé­lögum eða nær­sam­fé­lögum, og hjálpa þeim. „Við höfum kom­ist að því að þegar vel gengur í þessu teng­ist það því að láta konum líða vel með að færa rök fyrir eigin ágæti. Þetta er spurn­ing um sjálfs­traust.

Við byrj­uðum oft á að fá til liðs við okkur bar­áttu­konur í litlum sam­fé­lögum, sem voru að berj­ast fyrir ein­hverjum breyt­ingum, og spurðum þær hvort þær vildu ekki bara bjóða sig fram í bæj­ar­stjórn­ina. Það væri áhrifa­rík­asta leiðin til að koma breyt­ingum til leiðar - að geta þá tekið ákvarð­an­irnar um málin sem þær voru að berj­ast fyrir.“

Þurfum að hætta að halda að eingöngu konur geti alið upp börn

Andlegar og félags­legar hindr­anir halda mörgum konum niðri, segir Dufu svo. „Við þurfum að kom­ast fram­hjá þess­ari hug­mynd um að ein­göngu konur geti alið upp börn,“ segir hún og hlær. „Það er svo­lítið stórt ágrein­ings­mál og sam­fé­lagið gerir ennþá ráð fyrir því.“ Hún tekur dæmi um að ekki aðeins sé fæð­ing­ar­or­lof varla til staðar í Banda­ríkj­unum heldur standi fólki ekki til boða við­ráð­an­leg dag­vist­un­ar­úr­ræði fyrir börn. Það sé mikil hindrun fyrir konur í atvinnu­líf­inu öllu. „Við þurfum að styðja við vinn­andi fjöl­skyldur í heild, ekki bara vinn­andi mæður.“

Svo eru það pen­ing­arnir, að það kostar að bjóða sig fram og konur hafa ekki eins mik­inn aðgang að pen­ingum. „Þér þarf líka að líða vel í því að safna pen­ingum. Þar kemur menn­ingin aftur inn og spurn­ingin um sjálfs­traust.“

Þetta er líka spurn­ing um fyr­ir­myndir, segir Dufu. „Hér á Íslandi hafið þið fyr­ir­myndir. Konur sem stofn­uðu sinn eigin stjórn­mála­flokk! Það er svo mik­il­vægt. Ég á son sem er dökkur á hör­und og hann býr í Banda­ríkj­unum. Hann trúir því að hann geti orðið for­seti Banda­ríkj­anna af því að hann þekkir bara for­seta sem er eins og hann. Þessar kven­fyr­ir­myndir vantar í Banda­ríkj­unum, og eins og sagt er: þú getur ekki orðið það sem þú sérð ekki.“

Kvenforseti myndi breyta miklu - en ekki öllu

En hversu miklu myndi það þá breyta ef kona yrði kjörin for­seti Banda­ríkj­anna, eins og gæti gerst á næsta ári? „Það myndi breyta miklu við að vekja stúlkur, konur og sam­fé­lagið allt til vit­undar um þessi mál.

Það sem það myndi ekki gera er að flýta á einni nóttu fyrir fram­gangi helm­ings banda­rísks sam­fé­lags. Við erum ennþá með þessar hindr­anir sem ein kona mun ekki breyta þótt hún verði leið­togi hins frjálsa heims. En það væri skref í átt­ina og það myndi örva ímynd­un­ar­afl svo margra.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár