Angela Merkel manneskja ársins hjá TIME - lesendur völdu Bernie Sanders

Angela Merkel Þýska­landskansl­ari er mann­eskja árs­ins að mati tíma­rits­ins TIME.

„Þú getur verið sam­mála henni eða ekki, en hún er ekki að velja auð­veldu leið­ina. Á leið­toga reynir aðeins þegar fólk vill ekki fylgja þeim. Fyrir að krefj­ast meira af þjóð sinni en flestir stjórn­mála­menn myndu gera, fyrir að standa sterk gegn harð­stjórn og hent­ug­leika, og fyrir að sýna stað­fasta sið­ferð­is­lega leið­toga­hæfni í heimi þar sem skortur er á slíku, er Angela Merkel mann­eskja árs­ins hjá TIME.“

Hún er kölluð kansl­ari hins frjálsa heims í blað­inu, sem fer yfir líf Merkel frá því að hún var barn að alast upp í Austur-Þýska­landi. Tíma­ritið segir að á árinu sem er að líða hafi Merkel ekki einu sinni, ekki tvisvar heldur þrisvar sinnum stigið upp þegar spurn­ingar hafi vaknað um það hvort Evrópa og Evr­ópu­sam­bandið myndu lifa af.

Merkel hafi þá þegar verið komin í ómissandi hlut­verk í því að stjórna skulda­krís­unum í Evrópu, segir tíma­ritið. Hún hafi líka leitt Vest­ur­lönd í við­brögðum við Úkraínu.

En árið 2015 hafi mögu­legt gjald­þrot Grikk­lands ógnað til­veru evru­svæð­is­ins, inn­flytj­enda- og flótta­manna­krísa hafi storkað hug­myndum um opin landa­mæri, og að lokum hafi hryðju­verkin í París end­ur­vakið þau við­brögð að vilja skella í lás, byggja landamæra­veggi og treysta engum.

„Í hvert skipti steig Merkel upp,“ segir tíma­ritið í umfjöllun sinni. Þýska­land myndi hjálpa Grikk­landi, með hennar ströngu skil­yrðum. Þýska­land myndi bjóða flótta­menn vel­komna sem fórn­ar­lömb grimmd­ar­verka rót­tæks íslams, en ekki hluta af því. Og Þýska­land myndi senda her­menn til að berj­ast gegn Íslamska rík­inu.

Tíma­ritið segir að Merkel hafi sett í brenni­depil öðru­vísi gildi. Mann­gæsku, örlæti og umburð­ar­lyndi - til að sýna að styrk Þýska­lands væri hægt að nota til þess að hjálpa, frekar en að skemma. Hún hafi verið gagn­rýnd mikið fyrir afstöðu sína og stuðn­ingur við hana hefur minnkað um 20%.

Lesendur völdu Bernie Sanders

Bernie Sanders, sem vill verða for­seta­fram­bjóð­andi Demókra­ta­flokks­ins í Banda­ríkj­unum, var hins vegar í fyrsta sæti hjá les­endum TIME þegar kom að val­inu á mann­eskju árs­ins. Sanders hlaut yfir 10% atkvæða í kosn­ingu á net­inu. Næst á eftir honum var bar­áttu­konan Malala Yousafzai, sem hlaut 5,2% atkvæða, og Frans páfi var í þriðja sæti með 3,7%.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár