Fjórðungur háskólanema glímir við fjárhagserfiðleika

Nýrri könnun mennta- og menn­ing­ar­mála­ráðu­neyt­is­ins var ætlað að kort­leggja aðstæður háskóla­nema vegna kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins. Forseti LÍS segir rétt­látt að atvinnu­lausir háskóla­nemar hafi aðgang að atvinnu­leys­is­bótum.

Úr Gimli, einni af byggingum Háskóla Íslands.
Úr Gimli, einni af bygg­ingum Háskóla Íslands. Mynd: Kjarninn.


Rúmlega fjórtán pró­sent háskóla­nema glímir við fjár­hags­erf­ið­leika og tæp­lega ell­efu pró­sent háskóla­nema þar að auki glímir við mjög mikla fjár­hags­erf­ið­leika. Þetta kemur fram í nið­ur­stöðum könn­unar um áhrif COVID-19 á stúd­enta sem mennta- og menn­ing­ar­mála­ráðu­neytið lét gera fyrr í vetur í sam­vinnu við Lands­sam­band íslenskra stúd­enta (LÍS). Um 31 pró­sent nema svara því til að þau glími ekki við neina fjár­hags­erf­ið­leika á þessum tíma­punkti.

Samkvæmt frétt á vef stjórn­ar­ráðs­ins var mark­mið könn­un­ar­innar að kort­leggja aðstæður, náms­fram­vindu og atvinnu­horfur háskóla­nema vegna kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins. Könnunin var lögð fyrir 2500 manna slembi­úr­tak allra háskóla­nema á Íslandi í febr­úar og mars og svör­uðu 892 eða 35,7 pró­sent.

Meðal ann­ars var spurt um and­lega heilsu stúd­enta en rúm­lega 54 pró­sent svar­enda metur and­lega heilsu sína góða eða mjög góða, 34 pró­sent meta hana sæmi­lega og tæp­lega 12 pró­sent meta hana lélega. Nið­ur­stöður könn­un­ar­innar má nálg­ast hér.

Lítið atvinnuleysi meðal stúdenta sé jákvætt

„Það sem er jákvætt er að staða atvinnu­leysis í þessu úrtaki var alls ekki slæm. Fjögur pró­sent sem voru án atvinnu,“ segir Jóhanna Ásgeirs­dóttir, for­seti LÍS, spurð út í hvort eitt­hvað jákvætt megi taka út úr könn­un­inni. Það bendi til þess að aðgerðir stjórn­valda hafi virkað að ein­hverju leyti. Hún bendir þó á að um þriðj­ungur svar­enda hafi viljað vinna lengur síð­asta sumar. Því sé ljóst að hluti háskóla­nema hafi ekki aflað sömu tekna og í venju­legu árferði en sum­ar­vinnan skiptir miklu máli fyrir fjár­hag stúd­enta, að sögn Jóhönnu.

„Það er mjög mik­il­vægt fyrir stúd­enta að geta aflað sér tekna yfir sum­arið þó að fólk taki náms­lán þá duga þau oft ekki fyrir útgjöldum, þannig að við höfðum áhyggjur af stöð­unni framan af en það virð­ist hafa ræst úr þessu sem er mjög jákvætt,“ segir Jóhanna.

Vilja atvinnuleysisbætur fyrir háskólanema

Eitt af því sem LÍS hefur barist fyrir eru atvinnu­leys­is­bætur fyrir stúd­enta. „Það kæmi sér mjög vel núna í þessu ástandi sem að nú ríkir að veita stúd­entum ein­hvern örygg­is­ventil eins og öll önnur hafa sem vinnu. 72 pró­sent stúd­enta vinna með skóla og 90 pró­sent á sumrin á venju­legu ári eru að vinna og eiga að okkar mati rétt á atvinnu­leys­is­bótum. Þetta er lang­tíma­mark­mið en við viljum auð­vitað sjá þetta fara í gegn strax. Þetta er bæði COVID aðgerð en líka bara rétt­látt að okkar mati.“

Þá bendir Jóhanna á að hækkun náms­lána sé einnig ofar­lega á baugi hjá sam­tök­unum. Hún segir grunn­fram­færsl­una vera of lága sem valdi því að margir stúd­entar vinni mikið með skóla. Þá geti stúd­entar lent í ákveðnum víta­hring því bæði skerð­ast náms­lánin með auknum tekjum og mikil vinna getur haft það í för með sér að náms­fólk ljúki ekki til­ætl­uðum ein­inga­fjölda sem einnig skerðir náms­lán. „Þetta er víta­hringur. Stúd­entar eru fastir á milli þess að taka lán eða ekki og vera samt alltaf í fjár­hags­erf­ið­leikum,“ segir Jóhanna.

Framfærsla hækkar í takt við verðlagsbreytingar

Stjórn­völd kynntu nýverið nýjar úthlut­un­ar­reglur fyrir Mennta­sjóð náms­manna fyrir næsta skólaár. Þar kemur meðal ann­ars fram að fram­færsla, hús­næð­is­bætur og barna­styrkur hækki um 3,45 pró­sent en hækk­unin tekur hlið­sjón af verð­lags­breyt­ingum. Þá hækkar frí­tekju­mark náms­manna 1.410.000 krónur sem er hækkun um 46 þús­und krónur frá fyrra ári.

Þessi hækkun er ekki í takt við kröfur stúd­enta en LÍS hleypti nýverið af stokk­unum her­ferðum hækkun grunn­fram­færslu fram­færslu­lána. Krafa sam­tak­anna hljóðar upp á 17 pró­sent hækkun fram­færslu „til að tryggt sé að hún sam­svari, að lág­marki, dæmi­gerðu neyslu­við­miði félags­mála­ráðu­neyt­is­ins.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár