Syriza enn stærsti flokkur Grikklands, en kjósendur telja nýjar kosningar mistök

Stjórn­ar­flokk­ur­inn í Grikk­landi, Syriza, verður áfram stærsti flokkur lands­ins eftir kosn­ingar sam­kvæmt skoð­ana­könnun sem birt­ist í morgun. Skoð­ana­könn­unin birt­ist í gríska blað­inu Efi­mer­ida Ton Syntakton, og er fyrsta stóra könn­unin eftir að Alexis Tsipras sagði af sér sem for­sæt­is­ráð­herra í síð­ustu viku og boð­aði til kosn­inga.

Syriza mæld­ist með 23% stuðn­ing, og íhalds­flokk­ur­inn Nýtt lýð­ræði með 19,5%. Í síð­ustu stóru könnun sem gerð var af sama fyr­ir­tæki, ProRata, mæld­ist Syriza með 26% stuðn­ing en Nýtt lýð­ræði 15%. Það hefur því dregið saman með flokk­unum eftir að Tsipras ákvað að boða til nýrra kosn­inga til að freista þess að end­ur­nýja umboð sitt sem for­sæt­is­ráð­herra. 25,5% aðspurðra eru enn óákveðnir.

Hluti þing­manna Syriza hefur klofið sig út úr flokknum og stofnað nýjan flokk. Sá flokkur fær aðeins 3,5% fylgi sam­kvæmt skoð­ana­könn­un­inni, en 3% er lág­markið til þess að ná manni inn á þing. Sjálf­stæðir Grikkir, sem voru í sam­steypu­stjórn með Syriza, fær aðeins 2%.

Meiri­hluti aðspurðra í könn­un­inni telur að það hafi verið rangt hjá Tsipras að boða til nýrra kosn­inga og end­ur­nýja þannig umboð sitt. 64% voru þeirrar skoð­unar. 68% voru sam­mála um að Grikkir verði að vera áfram hluti af evru­svæð­inu, jafn­vell þótt það þýði auknar aðhalds­að­gerðir og nið­ur­skurð. Efi­mer­ida Ton Syntakton segir að svörin við þessum tveimur spurn­ingum sýni fram á að sú ákvörðun Tsipras að boða til kosn­inga gæti á end­anum skaðað hann og flokk­inn hans. Einn af hverjum þremur sem studdu Tsipras og Syriza í kosn­ing­unum í jan­úar er ekki viss um að flokk­ur­inn myndi fá stuðn­ing aftur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár