Danir í bobba vegna gasleiðslu

Banda­rískir stjórn­mála­menn reyna að koma í veg fyrir að Danir heim­ili lagn­ingu gasleiðslu sem fyr­ir­tækið Nord Stream hyggst leggja, frá Vyborg í Rúss­landi til Greifswald í Þýska­landi. Ætlunin er að leiðslan liggi, að hluta, á dönsku haf­svæði í nágrenni Borg­und­ar­hólms og hún er því háð sam­þykki Dana.

Lagning leiðsl­unnar, sem nefn­ist Nord Stream 2 hefur verið lengi í und­ir­bún­ingi en áætl­anir gera ráð fyrir að verk­inu verði lokið á árinu 2019.

Nord Stream var stofnað árið 2005, hét þá North European Gas Pipeline Company en fékk núver­andi heiti ári síðar. Fyr­ir­tækið varð til í sam­vinnu Rússa og Þjóð­verja, Gerhard Schröder kansl­ari Þýska­lands og Vladimir Putin for­seti Rúss­lands und­ir­rit­uðu stofn­samn­ing­inn, í Sviss en und­ir­bún­ingur hófst átta árum fyrr, árið 1997. Rúss­neska fyr­ir­tækið Gazprom á rúm­lega helm­ings hlut í Nord Stream, þýsku fyr­ir­tækin Wintershall og E.ON eiga hvort um sig 15.5% hluta­fjár og nokkur önnur fyr­ir­tæki minni hlut.

Nord Stream fyr­ir­tækið var stofnað í þeim til­gangi að leggja gasleiðslu, sem síðar fékk nafnið Nord Stream 1, sjó­leið­ina frá Vyborg í Rúss­landi til Greifswald í Þýska­landi. Leiðslan, sem er 1224 kíló­metra löng, var tekin í notkun í sept­em­ber 2011. Nord Stream 1 er í raun tvær leiðslur, hlið við hlið á sjáv­ar­botn­inum. Ætlunin er að nýja lögnin, Nord Stream 2, liggi við hlið þeirra, um Finn­lands­flóa og Eystra­salt.

Rússar leggja mikla áherslu á nýju leiðsluna

Nord Stream 1 gasleiðslan leysti úr brýnni þörf. Rússar vinna geysi­mikið gas og selja stóran hluta þess til ann­arra landa. Stór gasleiðsla liggur um Hvíta-Rússland og Úkraínu til Póllands, þrjár aðrar stórar leiðslur liggja um Úkraínu, tvær þeirra til Vestur-Evrópu og sú þriðja til Rúmeníu. Stærst þess­ara þriggja er leiðsla sem ber heitið Bræðra­lag. Ekki er bein­línis hægt að segja að það sé rétt­nefni, það hefur nefni­lega verið allt annað en bræðra­þel sem ein­kennt hefur sam­skipti Rúss­lands og Úkraínu að und­an­förnu.

Úkra­ínu­menn, sem kaupa gas af Rússum, hafa ekki alltaf getað staðið í skilum með greiðslur og Rússar hafa þá hótað að loka fyrir gas­streymið. Þá hafa Úkra­ínu­menn á móti hótað (og stundum ekki látið standa við orðin tóm) að loka fyrir gegn­um­streymið til Vestur-Evrópu. Rússum þykir lítt þol­andi að vera þannig háðir Úkraínu að þessu leyti og það er helsta ástæða þess að rúss­nesk stjórn­völd, með Pútín í broddi fylk­ingar, leggja mikla áherslu á lagn­ingu Nord Stream 2 leiðsl­unnar.

Er þörf fyrir nýju leiðsluna?

Svarið við þeirri spurn­ingu fer eftir því hver svarar. Rússar segja brýna þörf fyrir þessa nýju leiðslu. Hún tryggi öryggi í gas­flutn­ingum, gas­notkun auk­ist með ári hverju og ekki sé útlit fyrir að það breyt­ist. Innan Evr­ópu­sam­bands­ins eru margir á þeirri skoðun að núver­andi lagna­kerfi anni full­kom­lega flutn­ings­þörf­inni og ekki sé útlit fyrir að það breyt­ist á næstu árum. Lítil sem engin þörf sé því fyrir nýju leiðsl­una og því sé rétt að flýta sér hægt.

Innan Evr­ópu­sam­bands­ins er sú skoðun útbreidd að öryggi í gas­flutn­ingum og aukin sala á næstu árum sé ekki efst í huga Rússa varð­andi nýju leiðsl­una. Þeir hafi annað í huga. Nefni­lega það að þeim þætti ákjós­an­legt að gasleiðslur til Úkraínu yrðu algjör­lega aðgreindar frá öðrum leiðslum. Þá hefðu þeir „gas­ráð“ Úkraínu algjör­lega í hendi sér og gætu lokað fyrir streymið að vild. Þetta snýst semsé, að mati ESB miklu frekar um sam­band Rúss­lands og Úkraínu en um gas­flutn­inga­ör­yggi íbúa Vestur-Evrópu. Þetta sé með öðrum orðum milli­ríkjapóli­tík þar sem Rússar vilji hafa tögl og haldir í sam­skiptum sínum við Úkraínu.

Bandaríkjamenn þrýsta á Evrópusambandið og Dani

Á leið­toga­fundi NATO fyrir skömmu ræddi Barack Obama Banda­ríkja­for­seti um nýju gasleiðsl­una við Andrzej Duda for­seta Póllands. Obama sagði þar að Nord Stream 2 leiðslan væri „slæm hug­mynd“. Fyrir tíu dögum sendu sex virtir banda­rískir öld­unga­deild­ar­þing­menn (svo­kall­aðir þunga­vigt­ar­menn), repúblikanar og demókratar, Jean-Claude Juncker for­manni fram­kvæmda­stjórnar ESB bréf þarsem þeir lýsa áhyggjum sínum vegna Nord Stream 2. Í bréf­inu segja þing­menn­irnir að til­gangur Rússa sé aug­ljós­lega að gera Vestur-Evrópu háð­ari rúss­neskri orku og styrkja þannig stöðu sína. Banda­rísku þing­menn­irnir benda jafn­framt á leiðir til að koma í veg fyrir lagn­ingu leiðsl­unnar og nefna þar sér­stak­lega danska haf­svæðið við Borg­und­ar­hólm, en Danir verða að sam­þykkja lagn­ingu leiðsl­unnar áður en hægt verður að hefj­ast handa. Fram­kvæmda­stjórn ESB hefur ekki brugð­ist við bréfi banda­rísku þing­mann­anna en full­trúar á Evr­ópu­þing­inu hafa einnig lýst áhyggjum vegna máls­ins. Pól­verjar og fleiri austur-evr­ópsk ríki hafa sömu­leiðis hvatt fram­kvæmda­stjórn­ina til að koma í veg fyrir að leiðslan verði lögð. Robin L. Dunnigan aðstoð­ar­orku­mála­ráð­herra Banda­ríkj­anna var fyrr á árinu í Kaup­manna­höfn til að ræða þessi mál við danska ráð­herra og lýsti þar áhyggjum Banda­ríkja­stjórnar.

Hvað gera Danir?

Á danska þing­inu, Fol­ket­inget, eru skoð­anir skiptar. Lars Løkke Rasmus­sen for­sæt­is­ráð­herra hefur sagt að rétt sé að fara sér hægt, enn sé tals­vert í að Danir þurfi að ákveða hvernig brugð­ist skuli við þegar umsókn um „grænt ljós“ vegna leiðsl­unnar berst. Í blaða­við­tölum hefur Lars Løkke Rasmus­sen sagt að Danir vilji halda góðum tengslum við Rússa en hins­vegar vegi sjón­ar­mið ESB ríkj­anna, sem mörg hafa lýst and­stöðu, þungt í þessu sam­bandi. Best væri að ESB ríkin stæðu ein­huga þegar að ákvörðun kæmi sagði ráð­herr­ann. „Þar þurfum við skýr­ari línur áður en til ákvörð­unar kemur.“ Búast má við að umsókn um leyfi Dana verði lögð fram á næsta ári, 2017.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár