Losun gróðurhúsalofttegunda jókst milli áranna 2016 og 2017

Losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda sem er á beinni ábyrgð íslenskra stjórn­valda jókst um 2,2 pró­sent milli áranna 2016 og 2017.

Losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda sem er á beinni ábyrgð íslenskra stjórn­valda jókst um 2,2 pró­sent milli áranna 2016 og 2017. Þetta kemur fram í frétt Umhverf­is­stofn­unar í dag.

Upp­lýs­ingar um losun Íslands má finna í skýrslu Umhverf­is­stofn­unar (National Inventory Report – NIR) um losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda til lofts­lags­samn­ings Sam­ein­uðu þjóð­anna (UNFCCC) sem var birt í dag.

Í skýrsl­unni er að finna ítar­legar upp­lýs­ingar um losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda á Íslandi, þróun frá 1990 til 2017, ásamt lýs­ingu á aðferða­fræð­inni sem notuð er til að meta los­un­ina.

Aukning ferðamanna og almenn neysla hefur áhrif

Sam­dráttur í losun var 5,4 pró­sent yfir tíma­bilið 2005 til 2017. Losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda hefur hins vegar verið nokkuð stöðug síðan 2012, þrátt fyrir aðgerðir til að stemma stigu við losun. Samkvæmt Umhverf­is­stofnun má meðal ann­ars reka það til aukn­ingar ferða­manna á Íslandi og hins vegar aukn­ingu almennrar neyslu.

Helstu upp­sprettur sem falla undir beina ábyrgð íslenskra stjórn­valda eru vega­sam­göngur, olíu­notkun á fiski­skipum, iðra­gerjun, losun frá kæli­m­iðlum og losun frá urð­un­ar­stöðum.

Fyrir utan fyrr­nefnda losun á beinni ábyrgð íslenskra stjórn­valda tekur skýrslan einnig á losun frá stór­iðju undir við­skipta­kerfi ESB með los­un­ar­heim­ildir (ETS). Árið 2017 féllu 39 pró­sent af heild­ar­losun Íslands undir ETS og var þar 2,8 pró­sent aukn­ing í losun innan kerf­is­ins milli 2016 og 2017, sam­kvæmt frétt Umhverf­is­stofn­unar.

Heild­ar­losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda frá Íslandi, það er losun á beinni ábyrgð íslenskra stjórn­valda og ETS sam­tals, jókst þar af leið­andi um 2,5 pró­sent milli 2016 og 2017. Þessar tölur inni­halda ekki losun frá land­notkun, breyttri land­notkun og skóg­rækt (LULUCF). Losun frá LULUCF telur ekki til skuld­bind­inga, þó hún sé metin og gert grein fyrir henni í skýrsl­unni, og er hún þess vegna ekki inni­falin í umfjöllun um heild­ar­losun Íslands. Hins vegar má Ísland telja hluta af kolefn­is­bind­ingu á móti los­un­inni. Flug (alþjóða- og inn­an­lands) og alþjóða­sigl­ingar telja ekki heldur til skuld­bind­inga.

Aukin losun frá fólksbílum, málmframleiðslu, kælimiðlum og nytjajarðvegi

Meg­in­á­stæður fyrir aukn­ingu í losun milli 2016 og 2017, án land­notk­unar, er aukin losun frá fólks­bílum, málm­fram­leiðslu, kæli­m­iðlum og frá nytja­jarð­vegi. Þrátt fyrir að heild­ar­los­unin hafi auk­ist milli ára, hefur losun dreg­ist saman frá ákveðnum upp­sprettum, segir í frétt Umhverf­is­stofn­unar. Þar megi nefna sem dæmi losun frá fram­leiðslu­iðn­aði, meðal ann­ars frá fiski­mjöls­verk­smiðjum, sem hafi dreg­ist saman um 9 pró­sent og losun frá urð­un­ar­stöðum sem hafi dreg­ist saman um 3 pró­sent.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár