Greiningaraðilar spá því að útboðsgengi Símans verði 28 prósent hærra en stjórnendur greiddu

Grein­ing­ar­að­ilar telja að útboðs­gengi í til­boðs­bók B hjá Símanum verði allt að 3,2 krónur á hlut, en útboði á 18-21 pró­sent hlut í honum lýkur á mið­viku­dag. Þar af verður 13-16 pró­sent selt í gegnum til­boðs­bók B. Þeir telja einnig að verðið muni hækka á næstu tólf mán­uðum í kjöl­far skrán­ingar Simans á markað, eru jákvæðir á kaup í útboð­inu og segja að færa með rök fyrir þvi að þátt­tak­endur í því fái að njóta frumút­boð­afsláttar. Þetta er meðal þess sem kemur fram í grein­ingum IFS-grein­ingar og Grein­ingar Íslands­banka á hluta­fjár­út­boði Símans, sem Kjarninn hefur undir höndum.

Í lok ágúst var hópi stjórn­enda í Símanum og völdum fjár­festum seldur fimm pró­sent hlutur í félag­inu fyrir 2,5 krónur á hlut. Miðað við efstu spá grein­ing­ar­að­ila hefur virði hlutar þeirra þegar hækkað um 28 pró­sent. Auk þess var völdum við­skipta­vinum í einka­banka­þjón­ustu Arion banka, selj­enda hlut­anna og umsjón­ar­að­ila útboðs­ins, seldur hlutur á geng­inu 2,8 krónur á hlut fyrir nokkrum dögum síðan. Sá hlutur er orð­inn rúm­lega fjórtán pró­sent verð­mæt­ari í dag miðað við vænt útboðs­gengi.

Útboði lýkur á miðvikudag


Almennt útboð á 18-21 pró­sent hlut í eigu Arion banka í félag­inu hófst í dag á að ljúka á mið­viku­dag. Útboðið fer þannig fram að um tvær til­boðs­bækur verður að ræða. Í þeirri fyrri, til­boðs­bók A, geti þeir skráð sig sem vilja kaupa hlut fyrir 100 þús­und krónur og upp að tíu millj­ónum króna. Þetta eru litlir fjár­festar. Þeim býðst að bjóða á bil­inu 2,7 til 3,1 krónur á hlut. Tak­mark­aður hlutur er í boði og því gilda því vit­an­lega hæstu til­boð umfram önnur. Með öðrum orðum ætti til­boð upp á 3,1 krónur á hlut að duga áhuga­sömum fjár­festi til að eign­ast hlut í Símanum í útboð­inu. Í gegnum þessa til­boðs­bók ætlar Arion banki að selja fimm pró­sent hlut í Símanum.

Seinni til­boðs­bókin, til­boðs­bók B, er fyrir þá sem ætla að kaupa fyrir meira en tíu millj­ónir króna. Í gegnum hana fer stóra útboðið fram, enda eru þar til sölu 13 til 16 pró­sent hlutur í Símanum.

Þeir sem taka þátt í þess­ari leið eru aðal­lega fag­fjár­festar, meðal ann­ars líf­eyr­is­sjóðir. Í þess­ari leið er ekk­ert hámark á því hvað við­kom­andi fjár­festir getur skráð sig fyrir stórum hluta þess hluta­fjár sem er til sölu, en ef umfram­eft­ir­spurn verður, sem er oft­ast í íslenskum hluta­fjár­út­boðum, meðal ann­ars vegna eins­leits fjár­fest­inga­um­hverfis hag­kerfis í höftum, mun sú upp­hæð skerð­ast. Í þess­ari leið er ein­ungis lág­marks­verð, 2,7 krónur á hlut, en ekk­ert hámarks­verð.

Vænt útboðsgengi 3,2 krónur á hlut


Sér­fræð­ingar hafa und­an­farið verið að greina útboðið fyrir við­skipta­vini sína. Kjarninn hefur undir höndum tvær slíkar grein­ing­ar­skýrslur. Sú fyrri er frá IFS-grein­ingu. Samkvæmt henni býst IFS-grein­ing við því að fjár­festar í til­boðs­bók B muni greiða 3,2 krónur á hlut í útboð­inu og að það verð sé sann­gjarnt. Þar segir einnig að sú grein­ing byggi á spá um að virði hlutar fari upp í 3,6 krónur á hlut innan árs. IFS eru jákvæðir á kaup í útboð­inu og segja að færa með rök fyrir þvi að þátt­tak­endur í því fái að njóta frumút­boð­afsláttar.

Hitt matið er frá Grein­ingu Íslands­banka. Samkvæmt því er verð­mats­gengi hlutar í Símanum 3,08 krónur á hlut, eða rétt við efra verð­bil til­boðs­bókar A, sem 3,1 krónur á hlut. Þetta verð­mat byggir á sjóð­streym­is­grein­ingu á Símanum miðað við 9,6 pró­sent ávöxt­un­ar­kröfu.

Búist er við því að fyrsti við­skipta­dagur Símans á aðal­mark­aði Kaupa­hallar Íslands verði 15. októ­ber næst­kom­andi.

Stjórnendur og valdir fjárfestar fengu að kaupa


Á síð­ustu vikum, í aðdrag­anda útboðs­ins valdir aðilar, hópur fjár­festa, yfir­stjórn­endur Símans og vild­ar­við­skipta­vinir Arion banka, fengið að kaupa hluti í Símanum á mun lægra verði en því sem grein­ing­ar­að­ilar spá að fjár­festar þurfi að greiða í útboð­inu.

Í ágúst siðast­lið­inum fékk félagið L1088 ehf. að kaupa fimm pró­sent hlut í Símanum á geng­inu 2,5 krónur á hlut. Sá hópur var settur saman af Orra Hauks­syni, for­stjóra Símans, og hann átti frum­kvæði að því að leita til Arion banka til að koma við­skipt­unum á. Að hópnum standa nokkrir erlendir fjár­festar með reynslu úr fjar­skipta­geir­anum og Orri. For­stjór­inn á alls 0,4 pró­sent hlut í Símanum og greiddi hann rúm­lega 100 millj­ónir króna fyrir hlut­inn.

Aðrir í yfir­stjórn Símans fengu líka að kaupa hluti. Eign þeirra er þó öllu minni, en stjórn­end­urnir keypta alls fyrir um 1,8 milljón króna í eigin nafni. Þessum kaupum fylgja ákveðnar sölu­hömlur. L1088 ehf, félag Orra og fjár­fest­anna, má ekki selja fyrr en í jan­úar 2017 og yfir­stjórn­end­urnir mega ekki selja fyrr en 1. mars 2016.

Á hlut­hafa­fundi sem hald­inn var hjá Símanum skömmu eftir að ákvörð­unin um að selja ofan­greindum hópi fimm pró­sent hlut var hand­salað að öllum fast­ráðnum starfs­mönnum myndi bjóð­ast að kaupa fyrir allt sex hund­ruð þús­und krónur á ári á geng­inu 2,5 krónur á hlut í þrjú ár. Þegar hafa 613 starfs­menn gert samn­inga um slík kaup fyrir sam­tals 1,1 millj­arð króna. Nýtt hlutafé verður gefið út vegna kaup­rétt­ar­á­ætl­unar starfs­manna. Við það þynn­ist hlutur ann­arra hlut­hafa, sem að mestu eru íslenskir líf­eyr­is­sjóðir.

Hlutur þeirra sem fengu að kaupa á 2,5 krónur mun hafa hækkað um 28 pró­sent ef skrán­ing­ar­gengi Símans verður það sem IFS-grein­ing spáir að það verði, eða 3,2 krónur á hlut.

Síðari hluta sept­em­ber­mán­aðar, nokkrum dögum áður en yfir­stand­andi hluta­fjár­út­boð hófst, fengu nokkrir valdir við­skipta­vinir Arion banka að kaupa fimm pró­sent hlut í Símanum á geng­inu 2,8 krónur á hlut. Ekki hefur verið gefið upp hverjir fjár­fest­arnir eru. Þessi hópur má ekki selja hluti sína fyrr en 15. jan­úar 2016. Hlutur þessa hóps mun hafa hækkað um 14,3 pró­sent í verði á nokkrum dögum miðað við spá IFS-grein­ingu um útboðs­gengi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár