Vandi opinberra fjármála ekki tilkominn vegna faraldurs

Rík­is­sjóður er rek­inn með kerf­is­lægum halla, sem leiðir til meiri skulda­söfn­unar næstu árin. Að mati fjár­mála­ráðs er skulda­söfn­unin ekki far­aldr­inum að kenna, hún á meðal ann­ars rætur að rekja til freistni stjórn­valda að eyða öllu sem kemur í rík­is­kass­ann

Síðasta álit fjármálaráðs á fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar er nokkuð hvassara en fyrri álit þess.
Síðasta álit fjár­mála­ráðs á fjár­mála­á­ætlun rík­is­stjórn­ar­innar er nokkuð hvass­ara en fyrri álit þess. Mynd: Stjórnarráðið.

Við­spyrnu­að­gerðir rík­is­stjórn­ar­innar í kjöl­far kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins eru ekki ástæða þess að skuldir hins opin­bera muni aukast til árs­ins 2025. Frekar er það kerf­is­lægur halli á rekstri rík­is­sjóðs, sem er að hluta til til­kom­inn vegna til­hneig­ingar stjórn­valda til að verja öllum tekjum hins opin­bera jafn­óðum. Þetta kemur fram í nýjasta áliti fjár­mála­ráðs á fjár­mála­á­ætlun rík­is­stjórn­ar­innar, sem birt­ist í síð­asta mán­uði.

„Froða“ vegna hagsveiflna og verðbólgu

Það kveður við hvass­ari tón í áliti ráðs­ins ef miðað er við fyrri útgáfur þeirra, um leið og skip­un­ar­tíma ráðs­manna er að ljúka. Það segir að einn vandi hinna opin­beru fjár­mála sé sá að stjórn­völd setji sér lág­marks­mark­mið í afkomu rík­is­sjóðs fram í tím­ann, afkomu sem síðar getur tekið miklum breyt­ingum með hag­sveiflum.

Í upp­sveiflum er þessum lág­marks­mark­miðum að öðru óbreyttu auð­veld­lega mætt, en þá aukast gjarnan skatt­tekjur rík­is­sjóðs sam­hliða meiri efna­hags­um­svifum, auk þess sem ýmis vel­ferð­ar­út­gjöld, líkt og atvinnu­leys­is­bóta­greiðslur, minnka. Sömu­leiðis getur afkoman versnað í tíma­bund­inni nið­ur­sveiflu, þar sem sam­dráttur í hag­kerf­inu leiðir til minni skatt­tekna og aukið atvinnu­leysi leiðir til meiri útgjalda.

Í slíku umhverfi segir ráðið að stjórn­völd standi almennt frammi fyrir þeim freistni­vanda að ráð­stafa þeim afgangi sem hlýst af rekstri rík­is­ins umfram afkomu­mark­miðin í upp­sveiflum og auka rík­is­út­gjöld. Þennan afgang, sem hverfur um leið og hag­kerfið kólnar, kallar fjár­mála­ráð „froðu“ sem ekki ætti að eyða í var­an­lega útgjalda­aukn­ingu.

„Að fall­ast í slíka freistni býr til und­ir­liggj­andi afkomu­vanda en um leið er vand­anum slegið á frest og lendir á end­anum í fang­inu á þeim sem taka við verk­efn­inu síðar,“ segir í álit­inu. Að áliti fjár­mála­ráðs hafi þetta m.a. verið ástæða þess að und­ir­liggj­andi afkoma hins opin­bera var nei­kvæð um 2,2% af lands­fram­leiðslu í aðdrag­anda far­ald­urs­ins 2019. Verk­efnið fram undan sé að vinda ofan af þessum vanda. Við enda núver­andi áætl­un­ar­tíma­bils gerir fjár­mála­á­ætlun ráð fyrir að und­ir­liggj­andi halli verði enn til staðar enda þótt hann hafi minnkað.

Til þess að hægt sé að koma í veg fyrir fram­an­greindan freistni­vanda segir ráðið að huga þurfi að nýjum með­ulum í umgjörð stefnu­mörk­unar hins opin­bera sem snúi að því að láta afkomu­mark­miðin taka betur mið af hag­sveiflum í upp­sveiflum. Þannig verði stjórn­völd sett tak­mörk í að eyða „froð­unni“ sem mynd­ast þegar vel árar.

Ráðið bætir líka við að afkoma hins opin­bera geti auk­ist tíma­bundið vegna verð­bólgu eins og nú er raunin, þar sem áhrif verð­hækk­ana koma fyrr fram á tekju­hlið heldur en í útgjöldum. Slíka aukn­ingu kallar ráðið „verð­bólgu­froðu,“ sem geti rýrt und­ir­liggj­andi afkomu ef henni er eytt jafn­óðum. Þá kunni það heldur ekki góðri lukku að stýra að nota froð­una sem lausn til að lækka þörf­ina á var­an­legum afkomu­bæt­andi ráð­stöf­unum eftir far­ald­ur­inn. Slíkt geti reynst skamm­góður vermir. Mik­il­vægt sé að greina hversu stór hluti end­ur­met­inna tekna sem nú hafa birst grund­vall­ist á auk­inni verð­bólgu, að mati ráðs­ins.

Þörf á meiri festu í langtímaáætlunum

Til við­bótar við þennan freistni­vanda sem ráðið segir að sé til staðar í opin­berum fjár­málum eru einnig athuga­semdir gerðar við að í hverri nýrri fjár­mála­á­ætlun, sem er ætlað að upp­fylla stefnumið fjár­mála­stefnu stjórn­valda fyrir næstu fimm árin, breyt­ist iðu­lega áætl­anir fram í tím­ann umtals­vert eftir breyttum hag­spám. Fortíðin sýni að áliti ráðs­ins að hag­spárnar ræt­ist sjaldan. Stefnu­mörkun sem grund­vall­ast á hag­spám sem lítt ræt­ast skapi vanda­mál sveiflu­kenndra útgjalda við óvæntar sveiflu­kenndar tekjur að áliti ráðs­ins. Vandi hag­spánna er sam­kvæmt þessu til þess fall­inn að auka freistni­vanda stjórn­valda.

„Þegar veð­ur­spár ræt­ast sjaldan þarf að huga að því hvað eru ríkj­andi vind­áttir,“ segir fjár­mála­ráð. Í því sam­hengi mætti líta til þess að setja fremur mark­mið um tekjur og gjöld en afkomu. Um leið mætti huga að því að miða útgjalda­vöxt­inn við lang­tíma­leitni vaxt­ar­ins í efna­hags­líf­inu. Þannig væri hægt að koma í veg fyrir hinn almenna freistni­vanda stjórn­valda að ráð­stafa í of ríkum mæli tíma­bundnum tekjum góð­æris. Slíkt gæti unnið gegn þeim lang­lífa vanda opin­beru fjár­mál­anna að eyða öllu sem kemur í kass­ann sem oft hafi leitt til laus­ungar í fjár­mála­stjórnun opin­berra fjár­mála.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár