Það stefnir allt í Reykjavíkurstjórn

Píratar virð­ast ætla að verða sig­ur­veg­arar kom­andi kosn­inga og bæta meira við sig en Framsókn gerði 2013. Þrír rót­grón­ustu flokk­arnir stefna allir í sögu­legt afhroð. Það er Reykja­vík­ur­stjórn í kort­unum.

Það virð­ist ekki vera mikil til­færsla á fylgi stjórn­mála­flokk­anna síð­ustu daga, sam­kvæmt nýj­ustu Kosn­inga­spá Kjarnans. Stjórn­ar­flokk­arnir virð­ast nokkuð fastir í sínu rétt rúm­lega 30 pró­sent sam­eig­in­lega fylgi og Viðreisn er aðeins að missa flugið. Þær örfáu pró­sentur sem eru á hreyf­ingu virð­ast vera að fara til Vinstri grænna og Pírata. Miðað við vend­ingar síð­ustu daga stefnir allt í sama stjórn­ar­mynstur og ræður ríkjum í Reykja­vík­ur­borg um þessar mundir. Þ.e. sam­steypu­stjórn Vinstri grænna, Pírata, Bjartrar fram­tíðar og Sam­fylk­ingar.

Píratar bæta við sig meira en Framsókn gerði síðast

Píratar verða alltaf sig­ur­veg­arar kosn­ing­anna ef litið er á þær með hefð­bundnum gler­augum. Flokk­ur­inn var stofn­aður skömmu fyrir síð­ustu kosn­ingar, fékk 5,1 pró­sent í þeim og skreið inn á þing með þrjá þing­menn. Samkvæmt nýj­ustu kosn­inga­spá Kjarnans er flokk­ur­inn með 20 pró­sent fylgi, er far­inn að bæta aftur við sig á síð­ustu metrum kosn­inga­bar­átt­unnar og sumar kann­anir í vik­unni sýndu hann stærri en Sjálf­stæð­is­flokk­inn, sem er á hægri nið­ur­leið í fylgi.

Verði þetta nið­ur­staðan munu Píratar hafa bætt við sig um 15 pró­sentu­stigum milli kosn­inga. Til að setja þá tölu í sam­hengi þá má benda á að Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn fékk 14,8 pró­sent atkvæða í kosn­ing­unum 2009. Fjórum árum síðar, í kjöl­far Icesave-dóms­ins og Leið­rétt­ing­ar­lof­orðs­ins, fékk flokk­ur­inn 24,4 pró­sent atkvæða. Það var sam­dóma álit nær allra álits­gjafa og sér­fræð­inga að Framsókn hefði verið sig­ur­veg­ari kosn­ing­anna 2013. Samt bætti flokk­ur­inn undir tíu pró­sentu­stigum við sig á milli kosn­inga, eða mun minna en það sem Píratar stefna á að bæta við sig.

Fylgi Pírata er þó við­kvæm­ast allra stjórn­mála­flokka, sér­stak­lega þar sem þeir sækja mikið af því til ungs fólks sem sögu­lega er langólík­leg­ast til að skila sér á kjör­stað. Það mun því skipta miklu máli fyrir úrslit kosn­ing­anna hvernig kosn­inga­þátt­taka yngstu kjós­end­anna verður.

Reykjavíkurstjórn í kortunum

Í des­em­ber í fyrra birt­ist frétta­skýr­ing á Kjarn­anum þar sem því var haldið fram að Píratar héldu á lykl­inum að kosn­inga­banda­lagi stjórn­ar­and­stöðu­flokk­anna, væri vilji fyrir því. Og Píratar halda sann­ar­lega á lykl­inum að myndun næstu rík­is­stjórnar vegna þess að þeir munu að öllum lík­indum geta valið hvort þeir starfi til vinstri, myndi miðju­stjórn, eða líti til hægri með Sjálf­stæð­is­flokki og Viðreisn.

Eins og stendur verður miðju­stjórnin þó að telj­ast ólík­leg vegna þess að hún þyrfti fimm flokka (Pírata, Bjarta fram­tíð, Sam­fylk­ingu, Viðreisn og Framsókn) til að ná meiri­hluta, þar á meðal Fram­sókn­ar­flokk­inn. Og Píratar hafa gefið það skýrt til kynna að þeir vilji ekki vinna með Sjálf­stæð­is­flokknum. Afar ólík­legt verður að telj­ast að mynduð verði minni­hluta­stjórn sem treystir á stuðn­ing ann­arra flokka fyrir setu sinni.

Þótt kosn­inga­banda­lagið sé enn sem komið er óform­legt gefa tíð­indi helg­ar­innar, að leið­togar stjórn­ar­and­stöðu­flokk­anna séu að hitt­ast í dag til að fara yfir for­gangs­mál sín og sam­starfs­fleti, það skýrt til kynna hver vilji flokk­anna fjög­urra er: að mynda rík­is­stjórn eftir sama stjórn­ar­mynstri og ræður í borg­ar­stjórn Reykja­víkur. Miðað við Kosn­inga­spána ættu flokk­arnir að ná meiri­hluta atkvæða, eða 51,4 pró­sent. Það er betri pró­sentu­tala en sitj­andi rík­is­stjórn fékk sam­an­lagt í kosn­ing­unum 2013, þegar Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn og Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn fengu sam­tals 51,1 pró­sent atkvæða. Það skil­aði þeim flokkum þá hins vegar 60 pró­sent þing­sæta. Samkvæmt þing­sæta­skipt­ingu í síð­ustu könnun Félags­vís­inda­stofn­unar fyrir Morg­un­blaðið myndu stjórn­ar­and­stöðu­flokk­arnir fjórir fá 36 þing­sæti, eða 57 pró­sent þing­sæta og því afar stjórn­tækan meiri­hluta.

Ánægja á miðjunni og til vinstri

Vinstri grænir geta líka verið afar sáttir við sína stöðu svona skömmu fyrir kosn­ingar. Flokk­ur­inn hefur verið að bæta við sig hægt og rólega og ætlar að ná að toppa á réttum tíma. Samkvæmt Kosn­inga­spánni mælist fylgi hans 17 pró­sent, en var 12,7 pró­sent í lok sept­em­ber. Þar skiptir styrkur Katrínar Jak­obs­dóttur, sem er í algjöru aðal­hlut­verki í kosn­inga­bar­áttu flokks­ins, lík­ast til mestu máli. Og per­sónu­legar vin­sældir hennar þvert á flokka munu nær örugg­lega gera það að verkum að hún verður for­sæt­is­ráð­herra í stjórn núver­andi stjórn­ar­and­stöðu­flokka, myndi þeir rík­is­stjórn.

Viðreisn ætti líka að geta vel við unað þótt að fylgið sé að dala eilítið frá því að það náði hápunkti um síð­ustu mán­aða­mót (11,7 pró­sent). Flokk­ur­inn mun samt sem áður, hald­ist fylgi hans, ná því að verða það nýja stjórn­mála­afl sem nær mestu fylgi í fyrstu kosn­ingum sínum séu und­ir­stöðu­flokkar íslenskra stjórn­mála und­an­skildir.

En glað­astir allra eru lík­lega liðs­menn Bjartrar fram­tíðar. Á örfáum vikum hefur flokk­ur­inn farið frá því að vera algjör­lega afskrif­aður í íslenskri póli­tík í að ná að verða stærri en Sam­fylk­ingin og lík­ast til gegna lyk­il­hlut­verki í næstu rík­is­stjórn.

Þrír stefna í sögulega slaka niðurstöðu

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn stefnir í sína verstu útkomu í sög­unni. Fylgi flokks­ins mælist 22 pró­sent og verði það nið­ur­staða kosn­ing­anna mun flokk­ur­inn bæta lág­fylg­is­met sitt frá árinu 2009, þegar hann fékk 23,7 pró­sent. Miðað við stöð­una getur Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn búist við að fá um 15 þing­menn og afar ólík­legt verður að telj­ast að hann muni geta myndað rík­is­stjórn. Viðreisn hefur þegar úti­lokað að verða þriðja hjólið undir vagni sitj­andi rík­is­stjórnar og helsta von Sjálf­stæð­is­manna hlýtur að vera sú að mark­aðs­sinn­uðu miðju­flokk­arnir, Viðreisn og Björt fram­tíð, nái að kroppa af Pírötum og Vinstri grænum á loka­sprett­inum og ákveði að starfa frekar með Framsókn og Sjálf­stæð­is­flokki en til vinstri. Slík rík­is­stjórn yrði þó með ansi tæpan meiri­hluta.

Annar stjórn­mála­flokkur sem stefnir í afhroð er Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn. Hann hefur aldrei fengið undir tíu pró­sent fylgi í Alþing­is­kosn­ingum frá því að hann bauð fyrst fram fyrir tæpri öld. Þing­flokkur flokks­ins eftir kom­andi kosn­ingar stefnir í að vera sex manns, og hefur þá aldrei verið minni í sög­unni.

Ríkisstjórnin sem mynduð var í kjölfar Wintris-málsins virðist ekki eiga neina möguleika á að lifa af. Þvert á móti stefna báðir flokkarnir innan hennar í sína verstu niðurstöðu í sögunni. Mynd: Birgir Þór Harðarson
Rík­is­stjórnin sem mynduð var í kjöl­far Wintris-máls­ins virð­ist ekki eiga neina mögu­leika á að lifa af. Þvert á móti stefna báðir flokk­arnir innan hennar í sína verstu nið­ur­stöðu í sög­unni. Mynd: Birgir Þór Harð­ar­son

Sam­fylk­ingin var stofnuð um síð­ustu ald­ar­mót og náði til að byrja að verða sá turn jafn­að­ar­manna sem að var stefnt. Í fyrstu fjórum kosn­ingum flokks­ins fékk hann 26,8-31 pró­sent atkvæða. Sam­fylk­ingin hrundi 2013 og fékk ein­ungis 12,9 pró­sent. Þeir sem héldu að botn­inum væri náð hafa þurft að end­ur­skoða þá ákvörðun veru­lega. Nú mælist fylgi flokks­ins rétt yfir sjö pró­sent og engar blikur eru á lofti um að það sé að fara að aukast á loka­metrum kosn­inga­bar­átt­unnar. Þvert á móti hefur fylgið verið að dala síð­ustu vik­urnar. Alþýðu­flokk­ur­inn, helsti fyr­ir­renn­ari Sam­fylk­ing­ar­innar, fékk ein­ungis einu sinni verri útreið í kosn­ingum en það sem Sam­fylk­ingin stefnir nú í. Það var árið 1916 þegar flokk­ur­inn fékk 6,8 pró­sent atkvæða í fyrstu kosn­ing­unum sem hann bauð fram í.

Það liggur því fyrir að þrír rót­grón­ustu flokkar lands­ins eru allir að stefna í verstu útkomu sína i sög­unni í kom­andi kosn­ingum.

Um kosn­­inga­­spána 21. októ­ber

Nýjasta kosn­­­inga­­­spáin tekur mið af fimm nýj­­­ustu könn­unum sem gerðar hafa verið á fylgi fram­­­boða í Alþing­is­­­kosn­­­ing­unum í haust. Í spálík­­­an­inu eru allar kann­­­anir vegnar eftir fyrir fram ákveðnum atrið­­­um. Þar vega þyngst atriði eins og stærð úrtaks, svar­hlut­­­fall, lengd könn­un­­­ar­­­tíma­bils og sög­u­­­legur áreið­an­­­leiki könn­un­­­ar­að­ila. Kann­an­­­irnar sem kosn­­­inga­­­spáin tekur mið af eru:

  • Þjóð­mála­könnun Félags­vís­inda­stofn­unar HÍ fyrir Morg­un­blaðið 13.-19. októ­ber (vægi: 27,6%)
  • Skoð­ana­könnun Frétta­blaðs­ins 17.-18. októ­ber (vægi: 17,8%)
  • Skoð­ana­könnun MMR 6.-13. októ­ber (vægi: 16,2%)
  • Þjóð­mála­könnun Félags­vís­inda­stofn­unar HÍ fyrir Morg­un­blaðið 6.-12. októ­ber (vægi: 16,7%)
  • Þjóð­ar­púls Gallup 3.-12. októ­ber (vægi: 21,7%)

Kosn­­­­­­­­­­inga­­­­­­­­­­spálíkan Bald­­­­­­­­­­urs Héð­ins­­­­­­­­­­sonar miðar að því að setja upp­­­­­­­­­­lýs­ing­­­­­­­­­­arnar sem skoð­ana­kann­­­­­­­­­­anir veita í sam­hengi. Fyr­ir­liggj­andi skoð­ana­kann­­­­­­­­­­anir eru teknar saman og þeim gefið vægi til þess að spá fyrir um úrslit kosn­­­­­­­­­­inga. Kjarn­inn birti Kosn­­­­­­­­­­inga­­­­­­­­­­spá Bald­­­­­­­­­­urs fyrir sveit­­­­­­­­­­ar­­­­­­­­­­stjórn­­­­­­­­­­­­­­­­­­­ar­­­­­­­­­­kosn­­­­­­­­­­ing­­­­­­­­­­arnar og reynd­ist sú til­­­­­­­­­­raun vel. Á vefn­um kosn­inga­spá.is má lesa nið­­­­­­­­­­ur­­­­­­­­­­stöður þeirrar spár og hvernig vægi kann­ana var í takt við frá­­­­­­­­­­vik kann­ana miðað við kosn­­­­­­­­­inga­úr­slit­in.

Áreið­an­­­­­­­­­­leiki könn­un­­­­­­­­­­ar­að­ila er reikn­aður út frá sög­u­­­­­­­­­­legum skoð­ana­könn­unum og kosn­­­­­­­­­­inga­úr­slit­­­­­­­­­­um. Einnig hefur það vægi hversu langt er síðan könn­unin var fram­­­­­­­­­­kvæmd og svo hversu margir svara í könn­un­un­­­­­­­­­­um.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2016

Fréttirkosningar2016

Ekki ein­hugur um ráð­herra­val innan Sjálf­stæð­is­flokks­ins

Ein­hverjir þing­menn Sjálf­stæð­is­flokks­ins studdu ekki til­lögu Bjarna Bene­dikts­sonar, for­manns flokks­ins, um ráð­herra­skipan í nýrri rík­is­stjórn. Birgir Ármanns­son, sem tók við sem þing­flokks­for­maður af Guðlaugi Þór Þórð­ar­syni í gær, segir að til­laga Bjarna hafi þó verið sam­þykkt með afger­andi hætti. Þetta kemur fram í Morg­un­blað­inu. Þar er rætt við Harald Bene­dikts­son, odd­vita Sjálf­stæð­is­manna í Norð­vest­ur­kjör­dæmi. Hann seg­ist sjálfur sáttur við að...
Fréttirkosningar2016

Stjórn­ar­sátt­máli: Evr­ópu­mál fara til þings­ins undir lok kjör­tíma­bils

Í drögum að stjórn­ar­sátt­mála rík­iss­stjórnar Sjálf­stæð­is­flokks, Við­reisnar og Bjartrar fram­tíðar kemur fram að hún muni ekki leggja fram til­lögu á Alþingi varð­andi umsókn Íslands um aðild að Evr­ópu­sam­band­inu á þessu kjör­tíma­bili. Þar segir hins vegar að þing­menn stjórn­ar­meiri­hlut­ans geti stutt þing­mál varð­andi umsókn­ar­ferli að Evr­ópu­sam­band­inu komi slíkt mál fram undir lok kjör­tíma­bils­ins. Frá þessu er greint í Morg­un­blað­inu. Þetta er...
Fréttirkosningar2016

Þingmenn innan Sjálf­stæð­is­flokks efast um sam­starf við miðju­flokka

Fullyrt er í Morg­un­blað­inu í dag að hluti þing­manna Sjálf­stæð­is­flokks efist um ágæti þess að mynda rík­is­stjórn með Viðreisn og Bjartri fram­tíð. Þeir meti það hins vegar sem svo að Bjarni Bene­dikts­son, for­maður flokks­ins, hafi óskorað umboð til þess að mynda slíka rík­is­stjórn. Form­legar stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræður flokk­anna þriggja hafa staðið yfir alla þessa viku eftir að Bjarni fékk stjórn­ar­mynd­un­ar­um­boð frá for­seta...

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár