Samtals reiknaðist atvinnuleysi á Íslandi 9,2 prósent í marsmánuði og jókst um fimm prósentustig milli mánaða. Atvinnuleysi vegna almennra umsókna um atvinnuleysisbætur fór í 5,7 prósent en að auki jókst heildaratvinnuleysið um 3,5 prósentustig vegna þeirra sem sóttu um hlutabætur vegna minnkaðs starfshlutfalls. Samtals voru um 38.600 einstaklingar á atvinnuleysisskrá í lok mars, þar af um 24.400 í minnkuðu starfshlutfalli og ríflega 14.200 manns að auki á almennum atvinnuleysisbótum.
Þetta kemur fram í skýrslu um vinnumarkaðinn á Íslandi frá Vinnumálastofnun sem birt var í dag.
[adspot]Þar segir að staðan á vinnumarkaði hafi gjörbreyst í marsmánuði sökum þeirra takmarkana sem farið var að setja á öll samskipti fólks samhliða útbreiðslu COVID-19 faraldursins frá lokum febrúar. „Einkum kom þetta illa niður á fyrirtækjum tengt flugsamgöngum og ferðaþjónustu þar sem komur erlendra ferðamanna lögðust nánast af þegar líða tók á mars og sama er að segja um ferðalög Íslendinga innanlands sem utan. Almennt atvinnuleysi fór vaxandi strax framan af marsmánuði, en einkum þó þegar líða tók á marsmánuð.“
[links]Í mars tóku auk þess gildi lög um minnkað starfshlutfall sem heimiluðu að starfshlutfall launafólks yrði fært niður í allt að 25 prósent starf á móti greiðslum atvinnuleysisbóta sem námu þá allt að 75 prósent hlutfalli á móti launum. Þau lög gilda sem stendur til 1. júní en fastlega er búist við því að þau verði framlengd.
Í skýrslunni segir að um 5.200 fyrirtæki hafi nýtt sér þennan möguleika fyrir samtals um 24.400 einstaklinga í marsmánuði. Auk þess sé gert ráð fyrir að allt að 6.500 fyrirtæki muni nýta sér þetta í allt á því tímabili sem hlutabótaleiðin er heimil, fyrir nálægt 35.000 launþega.
Atvinnuleysi í apríl mun verða allt að 17 prósent, samkvæmt spá Vinnumálastofnunar sem greint var frá á RÚV í gær. Inni í þeim tölum eru þeir sem hafa sótt um hlutabætur. Gangi sú spá eftir verður það langmesta atvinnuleysi sem mælst hefur á Íslandi.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.



















































Athugasemdir