Dauðans alvara að missa vinnuna

Atvinnu­leysi er að ná hæstu hæðum hér­lendis og tugir þús­unda eru án atvinnu eða á hluta­bótum. Neikvæð áhrif atvinnu­missis eru þó ekki ein­skorðuð við lægri tekjur. Honum fylgja mikil nei­kvæð sál­ræn og lík­am­leg áhrif.

Atvinnu­leysi í apríl mun verða allt að 17 pró­sent, sam­kvæmt spá Vinnu­mála­stofn­unar sem greint var frá á RÚV í gær. Inni í þeim tölum eru þeir sem hafa sótt um hluta­bætur, en þeir eru um 33 þús­und tals­ins. Fjöldi þeirra er reikn­aður út frá bóta­hlut­falli sem þeir fá. Gangi sú spá eftir verður það lang­mesta atvinnu­leysi sem mælst hefur á Íslandi.

Guðrún Johnsen, doktor í hag­fræði, fjall­aði um afleið­ingar atvinnu­leysis í grein sem birt­ist í Vís­bend­ingu í síð­ustu viku og bar fyr­ir­sögn­ina „Það er dauð­ans alvara að missa vinn­una“.

Þar benti Guðrún á að nei­kvæð áhrif atvinnu­missis séu ekki ein­skorðuð við lægri tekjur heldur leiðir hann einnig, þegar almenn óvissa ríkir, til auk­innar streitu. Margar rann­sóknir sýni fram á að atvinnu­missi fylgja mikil nei­kvæð sál­ræn áhrif og með honum auk­ist tíðni þung­lyndis og alvar­legs kvíða um 15 til 30 pró­sent. „Líkamleg heilsa fólks minnkar einnig við upp­sögn; sem er áhyggju­efni vegna aðstæðna sem nú ríkja í heil­brigð­is­kerf­inu. Sullivan og fleiri (2009) sýndu fram á að dán­ar­tíðni eykst um 50-100 pró­sent á árunum strax eftir víð­tækar upp­sagnir. Þó að dán­ar­tíðni lækki aftur, helst hún mark­tækt 10 -15 pró­sent hærri jafn­vel 25 árum eftir efna­hags­á­fall.“

[adspot]Í grein Guðrúnar kemur fram að upp­söfnuð áhrif á aukna dán­ar­tíðni vegna þessa leiði til þess að lífslíkur minnka um 1-1,5 ár eftir alvar­legt efna­hags­á­fall meðal þeirra sem missa vinn­una við 40 ára aldur, en lífslíkur þeirra sem hæstar höfðu tekj­urnar fyrir kreppu minnka hvað mest. „Þá verða fjöl­skyldu­með­limir þeirra sem lenda í atvinnu­missi einnig fyrir nei­kvæðum áhrifum. Eftir upp­sögn aukast líkur á hjóna­skiln­uðum. Aukin skiln­að­ar­tíðni er heldur minni meðal þeirra sem missa vinn­una ef fyr­ir­tækið sem við­kom­andi vann hjá leggur upp laupana. Börn þeirra sem verða fyrir atvinnu­missi verða einnig fyrir nei­kvæðum áhrifum, en all­nokkrar rann­sóknir sýna að skóla­ganga barna á heim­ilum þar sem for­eldri hefur misst starf er styttri. Þá kann atvinnu­missir að leiða til þess að fjöl­skyldan flytji og félags­leg tengsl barna rofni um leið, auk þess sem skóla­ganga verði þeim erf­ið­ari.“

Mikilvægt að nýta svigrúmið ekki í almennar aðgerðir

Guðrún segir í grein­inni að í ljósi þessa sé afar mik­il­vægt að tak­markað svig­rúm hins opin­bera nýt­ist þeim sem verða fyrir alvar­leg­ustum áföllum er tengj­ast COVID19, í stað almennra aðgerða. Stærstur hluti fyr­ir­tækja á Íslandi séu fyr­ir­tæki ein­yrkja og fyr­ir­tæki með færri en tíu starfs­menn. „Þeir sem eru með lægst laun, minnsta menntun og þeir sem eru á miðjum aldri verða fyrir mestum skakka­föllum til lengri tíma. Það er því afar mik­il­vægt að ná að halda rekstri gang­andi þannig að hægt sé að við­halda atvinnu­sam­bandi milli laun­þega og vinnu­veit­enda. Ella fellur mik­ill kostn­aður á báða aðila eftir að víru­sváin er yfir­staðin. Vinnu­veit­endur þurfa að leita að nýju starfs­fólki og þjálfa upp og laun­þegar missa stóran hluta tekna sinna, ef ekki næst að við­halda a.m.k. hluta­störfum til mála­mynda hjá sama vinnu­veit­anda. Tíu pró­sent hluta­starf á kreppu­tímum er miklu betra en upp­sögn.“

Sér­sniðnar lausnir til handa þessum hópum séu lík­legri en almennar aðgerðir til sjá til þess að vírus sem ætti að leiða til skamm­tíma­n­ið­ur­sveiflu verði ekki að lang­vinnri efna­hag­skreppu og lang­tíma­erf­ið­leikum fyrir ein­stak­linga og heim­ili sem missa vinnunna vegna vírus­ins. Þúsundir launa­manna séu nú að upp­lifa áfall og streitu vegna efna­hags­legrar afkomu sinnar sem geti tekið djúp­stæðan toll af sál­ar­lífi fólks. „Það er því mik­il­vægt að hugsa um það hvernig maður sjálfur getur verið góður vinur þeirra sem lenda í áfall­inu. Félags­tengsl í gegnum tölv­una og úti­vist þegar veðrið batnar er það sem hægt er að veita, að svo stöddu. Hrós, hvatn­ing og annar and­legur stuðn­ingur kostar ekk­ert en getur reynst ómet­an­legur, jafn­vel lífs­nauð­syn­legur, þeim sem verða fyrir atvinnu­missi af völdum alheims­at­burðar af þessu tagi. Efna­hags­erf­ið­leik­arnir breið­ast nú yfir fjölda fólks í gegnum rekstr­ar­erf­ið­leika lít­illa fyr­ir­tækja.“

Beinn stuðn­ingur hins opin­bera við heim­ili í fjár­hags­erf­ið­leikum til handa þeim sem missi vinn­una sem og ein­yrkja sem verða fyrir tekju­missi, sé nauð­syn­legur. „Þar munar mest um hækk­aðar barna­bætur og rausn­ar­legar atvinnu­leys­is­bætur þeim til handa. Almennar hækk­anir á barna­bótum ættu að bíða betri tíma.“

Hægt er að ger­ast áskrif­andi að Vís­bend­ingu hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár