Kortaþjónusta fékk 6 milljarða - markmiðið að gera betri kort

Nýsköp­un­ar­fyr­ir­tækið Mapbox lok­aði á dög­unum B-fjár­mögn­unum upp á 52,55 milljón doll­ara, eða um 7 millj­arða íslenskra króna. Mapbox er korta­fyr­ir­tæki sem fram­leiðir korta­vinnslu­for­rit og heldur utan um korta­grunna sem allir hafa aðgang að. Þannig vill Mapbox verða „Wikipedia heimskorts­ins“ á vefnum.

Nú þegar hefur Mapbox tek­ist að trufla mark­að­inn nógu mikið til að láta risa eins og Google hreyfa sig og setja eitt­hvað alvöru fjár­magn í korta­þjón­ustu sína. Um þessar mundir er nefni­lega óvíst hvaða fyr­ir­tæki muni hafa vinn­ing­inn meðal app­fyr­ir­tækja. Einnig er óvíst hver eigi eftir að kaupa korta­þjón­ustu Nokia, Here.

Stór öpp og vef­síður á borð við Foursquare, Pinter­est og Mapquest nota þegar kort frá Mapbox sem segir fjár­magnið sem fyr­ir­tækið fékk á dög­unum vera stærstu fjár­fest­ingu í sögu korta­gerðar. Meðal fjár­festa í ann­ari fjár­mögn­un­ar­um­ferð voru Foundry Group (sem fyrir áttu stóran hlut í Mapbox), DBL Partners, Thrive Capital, Pritzker Group, fyrr­ver­andi for­seti Goldman Sachs Jon Winkelried og Promus Ventures.

[caption id="attachment_33755" align="alignnone" width="1024"] Kjarninn hefur und­an­farið reynt hug­bún­að­inn frá Mapbox hér á Íslandi. Íslands­kortið er nokkuð full­komið; helstu kenni­leiti eru merkt inn og hnit helstu þjóð­vega nokkuð nákvæm, sér­stak­lega í þétt­býli.[/caption]

Síðan fyr­ir­tækið var stofnað árið 2010 í Washington DC hefur mark­miðið verið ein­falt en erfitt: að gera betri kort. Fyr­ir­tækið var fyrstu árin rekið fyrir lítið stofnfé en árið 2013 fékkst tíu milljón doll­ara fjár­fest­ing.

Vefkort eru kannski ekki ný af nál­inni. Google hefur þróað vin­sæl kort af öllum heim­inum í rétt rúm­lega tíu ár og stað­bundn­ari þjón­ustur bjóða upp á góð kort fyrir nærum­hverfi sitt, eins og Já.is. Mapbox hefur ekki í hyggju að keppa við þessa þjón­usturisa og mark­að­setja kortin sín beint til almenn­ings. Heldur er mark­miðið að búa til umhverfi fyrir korta­smiði sem borga svo gjald eftir magni og umfangi korta­gagn­anna sem þeir skapa.

Eric Gund­er­sen, fram­kvæmda­stjóri Mapbox, seg­ist alls ekki vilja kalla fyr­ir­tækið korta­þjón­ustu heldur skapi það tæki og tól svo korta­gerð­ar­fólk geti notað gagna­grunn­inn og bætt við hann. Fólk getur svo notað kortin sín þar sem það vill.

Jafnvel þó vöxtur Mapbox hafi und­an­farin tvö ár verið hljóður hefur hann orðið á mik­il­vægum tíma í þróun vef­korta og vef­korta­þjón­ustu. Snjall­síma­eign og teng­ing við far­síma­net orðin mjög góð og almenn sem veitir fyr­ir­tækjum eins og Google og Mapbox tæki­færi til að sækja fram á korta­mark­aði. Þá er skemmst að minn­ast þess að nýjar teg­undir tækja á borð við snjallúr og snjall­bíla eru eða eru að fara að ryðja sér til rúms á mark­aði.

Það gæti komið les­endum á óvart en lang flest öpp og flestar vef­síður sem við heim­sækjum stað­setja not­endur á ein­hvern hátt á korti, jafn­vel þó mark­miðið sé ekki að rata milli staða í Google Maps eða hefta myndir á kort í Instagram. Eft­ir­spurnin eftir vef­lægum kortum er því mikil og eykst gríð­ar­lega hratt.

Næstu skref hjá Mapbox, eftir þessa hluta­fjár­aukn­ingu, er að ráða nýtt fólk og stækka útibú sín í San Francisco og á Indlandi. Fyr­ir­tækið er jafn­framt mjög fram­ar­lega í útfærlsu gervi­hnatta­mynda í korta­grunni sínum en með sér­stakri tækni eru mörg­hund­ruð myndir unnar á dag til þess að heim­ur­inn okkar líti betur út.

https://youtu.be/mIo26cdFabE

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár