Þorgerður Katrín: Sýndarmennska að setja fram auðlindaákvæði sem ekkert bit er í

Formaður Við­reisnar og for­sæt­is­ráð­herra tók­ust á um sjáv­ar­út­vegs­mál á Alþingi í dag og nýja auð­linda­á­kvæðið. Sökuðu þær hvor aðra um sýnd­ar­mennsku.

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, formaður Viðreisnar.
Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir, for­maður Við­reisnar. Mynd: Bára Huld Beck

Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir, for­maður Við­reisnar, segir að nýja auð­linda­á­kvæðið breyti engu, „breytir akkúrat engu“, og kallar það sýnd­ar­mennsku þegar verið sé að setja fram auð­linda­á­kvæði „sem ekk­ert bit“ sé í.

Þetta kom fram í máli hennar í óund­ir­búnum fyr­ir­spurna­tíma á Alþingi í dag. Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra tók þessi orð óstinnt upp og sagði að þing­mað­ur­inn gæti ekki talað svona, það væri „stór­mál að und­ir­strika þjóð­ar­eign­ar­hug­takið í stjórn­ar­skrá“. Það væri einmitt sýnd­ar­mennska að halda öðru fram.

Málið snýst um það að for­set­is­ráð­herra hefur lagt fram til­lögur um breyt­ingar á stjórn­ar­skrá en meðal þeirra er einmitt umtöluð til­laga um nýtt auð­linda­á­kvæði.

Hóf Þor­gerður Katrín mál sitt á því að segja að þetta væri ekki í fyrsta sinn og lík­lega ekki það síð­asta sem hún kæmi upp í pontu til að ræða stöðu sjáv­ar­út­vegs­ins á Íslandi og áhrif hans á íslenskt sam­fé­lag.

Hvað er gert hér?

„Umræða síð­ustu vikna varð­andi eign­ar­hald, ítök, hags­muna­að­ila, skort á gagn­sæi og van­traust almenn­ings til stjórn­valda í þessum efnum hlýtur að vera rík brýn­ing fyrir hæst­virtur for­sæt­is­ráð­herra að setja fram skýr og ótví­ræð skila­boð um auð­linda­á­kvæðið sem eitt­hvert bit er í, ekki ein­hverja sýnd­ar­mennsku. Þá er ég að und­ir­strika að við þurfum að hafa ótví­ræða tíma­bind­ingu,“ sagði hún.

[links]Þá benti hún á að norsk stjórn­völd, fær­eysk stjórn­völd, Namibísk stjórn­völd væru skýr um það að verja almanna­hags­muni með við­brögðum sínum þegar kemur að sjáv­ar­út­vegi. „Það má eðli­lega spyrja: Hvað hér? Hvað er gert hér? Sumir spyrja: Af hverju er með­virknin svona mikil hér heima? Hvaða mynd er að teikn­ast upp á Íslandi?“ spurði hún.

„Hæst­virtur fjár­mála­ráð­herra seg­ist engar áhyggjur hafa af þessu enda hugn­ast hvorki honum eða flokknum hans neitt annað heldur en núver­andi ástand. En for­sæt­is­ráð­herra, mig langar að spyrja: Hefur hún áhyggjur af þess­ari þróun? Það blasir við hversu nauð­syn­legt það er einmitt núna að sólunda ekki þessu tæki­færi, að festa ræki­lega í sessi eign­ar­hald þjóð­ar­innar yfir auð­lind­inni og koma í veg fyrir enn frek­ari ítök hags­muna­afla sem ráða hér of miklu í sam­fé­lagi okkar eins og bent hefur verið á af m.a. af seðla­banka­stjóra. Tíma­bind­ing rétt­inda­að­gangs­ins að auð­lind­inni er algjört lyk­il­at­riði með ótví­ræðum hætti. Þess vegna langar mig að spyrja hæstv. ráð­herra: Mun hún beita sér fyrir því að það verði sett fram auð­linda­á­kvæði sem er ótví­rætt í þessa veru? Mig langar líka að fá við­horf hennar til þess hvað það er sem Norðmenn sjá, Namibía, Fær­ey­ingar en við ekki,“ sagði þing­mað­ur­inn.

Skilur norska ráðherrann mætavel

Katrín svar­aði og hóf mál sitt á að tala um þessi í mál í Noregi og benti hún á að þar væru heim­ildir fyrir erlendu eign­ar­haldi í sjáv­ar­út­vegi.

„Eins og kunn­ugt er lögðu Fær­ey­ingar fram og sam­þykktu frum­varp til laga um að tak­marka erlent eign­ar­hald í sjáv­ar­út­vegi, sem er tak­markað á Íslandi. Bara til upp­lýs­ingar fyrir hátt­virtur þing­mann þá kom einmitt sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra Fær­ey­inga á þeim tíma hingað til lands til að kynna hug­myndir sínar og fá inn­blástur frá Íslandi þar sem slíkar fjár­fest­ingar erlendra aðila eru tak­mark­aðar. Nú hefur það komið fram hjá norska sjáv­ar­út­vegs­ráð­herr­anum að hann hafi grun­semdir um, eða að uppi séu grun­semdir um, að erlendir aðilar, þar með talið íslenskt fyr­ir­tæki, séu að snið­ganga lög sem gera ráð fyrir því að skip með úthlut­uðum kvóta verði að vera að minnsta kosti 60 pró­sent í eigu Norð­manna.

Ég ætla að segja það hér, að ég skil það mæta­vel ef ráð­herr­ann í Noregi ætlar að ganga fram og skerpa á þessum lögum og reglum. Eðlilega vilja Norðmenn ekki að slíkar reglur séu snið­gengnar og slík lög. Þetta snýst um hag­sæld þeirra og sjáv­ar­út­veg­inn sem þeir stunda svo að ég hef fullan skiln­ing á því, alveg eins og ég hafði mik­inn skiln­ing á því að Fær­ey­ingar vildu horfa til íslenska for­dæm­is­ins þegar kæmi að erlendu eign­ar­haldi. Það er nú kannski eitt mál,“ sagði hún.

Hvað auð­linda­á­kvæðið varðar þá sagði ráð­herr­ann að þar væri kveðið skýrt á um að þessar heim­ildir yrðu ekki afhentar var­an­lega. „Í grein­ar­gerð er kveðið á um að það merki að þær séu þá ann­að­hvort tíma­bundnar eða upp­segj­an­legar. Hátt­virtur þing­maður hefur talað fyrir því að þarna eigi ein­göngu að tala um tíma­bind­ingu heim­ilda. Ég hef bent á að þarna geti verið ólík sjón­ar­mið milli ólíkra auð­linda og mér finn­ist mik­il­vægt að slíkt ákvæði sé almennt, eigi við um allar auð­lindir. Í öllu falli held ég að við hátt­virtur þing­maður séum sam­mála um að mikil þörf sé á því að Alþingi svari ákalli almenn­ings til margra ára um slíkt ákvæði í stjórn­ar­skrá,“ sagði hún.

Spurði hvort Katrín væri tilbúin til þess að leggja pólitískan trúverðugleika sinn að veði

Þor­gerður Katrín spurði í annað sinn og sagði að ákallið væri skýrt frá almenn­ingi. „Ákallið er um það að láta ekki sjáv­ar­út­veg­inn verða út undan í þessu. Það er það sem er hættu­legt. Í grein­ar­gerð með frum­varpi for­sæt­is­ráð­herra stendur skýrt, í hennar eigin frum­varpi: Auð­linda­á­kvæðið breytir engu, breytir akkúrat engu. Það er þessi sýnd­ar­mennska sem ég er að tala um þegar verið er að setja fram auð­linda­á­kvæði sem ekk­ert bit er í,“ sagði hún.

Spurði hún um rétt­læt­ingu fyrir Vinstri græn að vera í rík­is­stjórn­ar­sam­starfi með Sjálf­stæð­is­flokknum og Framsókn. „Ég er þeirrar skoð­unar og und­ir­strika það að við þurfum að tryggja gegn­sæi, til­lögu um dreifða eign­ar­að­ild. Við þurfum að tryggja tíma­bind­ing­una þannig að þjóðin hafi ótví­rætt for­ræði yfir auð­lind­inni, ekki afhenda hana með ein­hverjum loðnum hætti til til sjáv­ar­út­vegs­ins til lengri tíma. Ég er þeirrar skoð­unar að auð­linda­á­kvæðið sem núna liggur fyrir gefi íslenskum almenn­ingi lítið sem ekk­ert, það hróflar ekki við neinu eins og hæst­virtur for­sæt­is­ráð­herra segir sjálf í grein­ar­gerð­inni.“

Spurði Þor­gerður Katrín for­sæt­is­ráð­herra enn fremur hvort hún væri til­búin til þess að leggja póli­tískan trú­verð­ug­leika sinn að veði og horfast í augu við þjóð­ina og full­yrða að það auð­linda­á­kvæði sem þær væru að ræða um tryggði rétt þjóð­ar­innar. „Þetta er alvöru­mál, herra for­seti.“

Stein­grímur J. Sig­fús­son, for­seti Alþingis, kom með athuga­semd í fram­hald­inu en hann sagði að það væru þing­sköpin og fund­ar­tím­inn líka en þing­mað­ur­inn hafði verið lengur í pontu en ætl­ast er til.

Stórmál að segja að nýtingarheimildir verði ekki afhentar með varanlegum hætti

Katrín svar­aði enn á ný og sagði að Þor­gerður Katrín gæti ekki komið í pontu og kallað þetta ákvæði sýnd­ar­mennsku. „Auðvitað getur hátt­virtur þing­maður ekki gert það. Það er stór­mál að und­ir­strika þjóð­ar­eign­ar­hug­takið í stjórn­ar­skrá. Það er stór­mál, herra for­seti, að segja að nýt­ing­ar­heim­ildir verði ekki afhentar með var­an­legum hætti. Það skiptir veru­lega miklu máli. Það er stór­mál að und­ir­strika það í stjórn­ar­skrá að þessum heim­ildum verði ekki úthlutað nema gætt sé jafn­ræðis og gagn­sæis.

Það er stór­mál að kveða á um það í stjórn­ar­skrá að með lögum skuli ákveða gjald fyrir nýt­ingu auð­linda. Hátt­virtur þing­maður getur ekki komið hingað upp og setið svo og kallað hér fram í með slíka sýn. Við getum deilt um það hvernig nákvæm­lega auð­linda­á­kvæði eigi að líta út en það er ekki hægt að afgreiða þetta auð­linda­á­kvæði sem hér liggur fyrir í þing­inu, sem myndi und­ir­strika rétt íslensku þjóð­ar­innar til sinna auð­linda, og það er rangt og það er sýnd­ar­mennska að halda öðru fram,“ sagði hún.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

sjávarútvegsmál

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár