Tugum sagt upp hjá Eimskip

Í dag verður stöðu­gildum hjá Eimskip fækkað um 73. Beinar upp­sagnir í heild­ina eru 54 tals­ins, þar af 39 á Íslandi. Aðgerð­irnar ná til flestra starfs­hópa fyr­ir­tæk­is­ins, þar með talið stjórn­enda.

Hag­ræð­ing­ar­að­gerðir verða gerðar hjá Eimskip í dag sem fela meðal ann­ars í sér að stöðu­gildum hjá félag­inu á alþjóða­vísu fækkar um 73, þar af eru 47 á Íslandi. Beinar upp­sagnir í heild­ina eru 54 tals­ins, þar af 39 á Íslandi. Aðgerð­irnar ná til flestra starfs­hópa fyr­ir­tæk­is­ins, þar með talið stjórn­enda.

Í til­kynn­ingu félags­ins til Kaup­hall­ar­innar segir að á und­an­förnum fimmtán mán­uðum hafi félagið verið á „þeirri veg­ferð að ein­falda og straum­línu­laga rekstur félags­ins með marg­vís­legum aðgerðum og teng­ist hluti þeirra aðgerða sem gripið er til í dag þeirri veg­ferð. Að auki hefur óvissan varð­andi þróun mála í íslenska hag­kerf­inu og á erlendum mörk­uðum félags­ins vegna COVID-19 áhrif á umfang þess­ara aðgerða“.

Sú breyt­ing verður á fram­kvæmda­stjórn félags­ins að Edda Rut Björns­dóttir, sem verið hefur mark­aðs- og sam­skipta­stjóri Eimskips í rúmt ár, mun taka við sam­þættu sviði mannauðs-, mark­aðs- og sam­skipta­mála. Edda sem er mennt­aður við­skipta­fræð­ingur hefur yfir 20 ára fjöl­breytta reynslu úr atvinnu­líf­inu, þar af starf­aði hún í 12 ár hjá Íslands­banka. Við þessa breyt­ingu mun Elín Hjálms­dóttir, sem verið hefur fram­kvæmda­stjóri Mannauðs­sviðs, láta af störfum.

Þá er gerð sú breyt­ing að inn­flutn­ings­deild á Íslandi verður skipt upp með þeim hætti að sér­stök áhersla verður ann­ars vegar á stærri fyr­ir­tæki og hins vegar á lítil og með­al­stór fyr­ir­tæki og ein­stak­linga. Með þessu er skerpt á þjón­ustu í inn­flutn­ingi við þessa mis­mun­andi við­skipta­vina­hópa sem gerir félagið betur í stakk búið til að veita þeim góða þjón­ustu og heild­ar­lausnir.

Nauðsynlegar aðgerðir með tilliti til afkomu fyrirtækisins

„Sú veg­ferð hag­ræð­ingar og sam­þætt­ingar sem félagið hefur verið á hefur ekki verið auð­veld og þá sér­stak­lega er varðar fækkun starfs­fólks,“ er haft eftir Vilhelm Má Þor­steins­syni for­stjóra í til­kynn­ing­unni. „Hún hefur hins vegar verið nauð­syn­leg þegar litið er til afkomu félags­ins síð­ustu miss­eri og þá veldur COVID-19 mik­illi óvissu sem ekki er hægt að líta fram­hjá. Með þessum aðgerðum styrkjum við fjár­hags­legar stoðir félags­ins sem og rekst­ur­inn til fram­tíðar. Þá má ekki gleyma að félagið hefur fjár­fest tölu­vert í sjálf­virkni­væð­ingu og umbótum á ferlum og vinnu­lagi sem styður við þessar aðgerðir. Við sjáum ekki fyrir okkur frek­ari aðgerðir af þess­ari stærð­argráðu í nán­ustu fram­tíð.

Á sama tíma og við ráðumst í þessar sárs­auka­fullu aðgerðir hef ég óskað eftir því við stjórn félags­ins að lækka laun mín um 10% og þannig sýna í verki að þessar hag­ræð­ing­ar­að­gerðir nái til allra laga í fyr­ir­tæk­inu.

Þrátt fyrir for­dæma­lausar aðstæður er heild­ar­flutn­inga­keðjan hjá Eimskip að virka, skipin okkar eru að sigla, flutn­inga­bíl­arnir að keyra og við­komu­hafnir okkar eru opnar. Við erum mjög með­vituð um hlut­verk Eimskips sem mik­il­vægs inn­viða­fyr­ir­tækis í flutn­inga­þjón­ustu á vörum til og frá land­inu og í dreif­ingu inn­an­lands og við munum halda uppi okkar góða þjón­ustu­stigi áfram.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár