Rannsakar bleikþvott Ísraels
ViðtalÁrásir á Gaza

Rann­sakar bleik­þvott Ísraels

„Eina leiðin fyrir fanga til þess að vera í sam­bandi við umheim­inn er í gegnum lög­fræð­ing,“ segir Nadine Abu Arafeh mann­rétt­inda­lög­fræð­ingur, rann­sak­andi og hinsegin aðgerðasinni frá Jer­úsalem. Hún vinnur með palest­ínskum föngum en þeim er meinað að hafa sam­skipti við ást­vini. Nadine vann nýverið rann­sókn­ar­verk­efni í Háskóla Íslands um bleik­þvott sem Ísrael notar til að veikja and­spyrnu Palest­ínu­manna.
Keyptu íbúð en geta ekki flutt inn vegna hárra afborgana
ViðtalFasteignamarkaðurinn

Keyptu íbúð en geta ekki flutt inn vegna hárra afborg­ana

Páll Kristinn Stef­áns­son festi kaup á fyrstu íbúð í sumar ásamt kær­ustu sinni. Þau hafa búið hjá for­eldrum Páls und­an­farið á meðan þau hafa safnað pen­ing. Parið var spennt að flytja í eigið hús­næði en hafa ekki efni á því. „Það er ekk­ert smá svekk þegar maður er búinn að kaupa sér íbúð að hafa ekki tök á að búa í henni,“ segir hann.
Skráði sig í sambúð með vini sínum til að standast greiðslumat
ViðtalFasteignamarkaðurinn

Skráði sig í sam­búð með vini sínum til að stand­ast greiðslu­mat

Hannes Árni Hann­es­son keypti sína fyrstu íbúð með vini sínum árið 2021. Hvorugur gat stað­ist greiðslu­mat einn og sér og gripu þeir því til þess ráðs að skrá sig í sam­búð. Vinunum gekk vel að búa saman þar til báðir eign­uð­ust kærustur. Mánuði eftir að þær fluttu inn seldi Hannes sinn hlut til vinar síns og þau fóru í íbúð­ar­leit að nýju.
„Af því að mér finnst gaman að vinna með börnum þá er ég föst heima“
ViðtalFasteignamarkaðurinn

„Af því að mér finnst gaman að vinna með börnum þá er ég föst heima“

Hildur Iðunn Sverr­is­dóttir vinnur á leik­skóla og stefnir á meistara­gráðu í list­kenn­ara­námi. Hún býr í íbúð í bíl­skúr for­eldra sinna og veit að það verður erfitt að safna fyrir íbúð þar sem starfs­vett­vang­ur­inn sem hún vill vera á er lágt laun­aður. „Það verður alltaf erfitt fyrir mig að safna,“ segir hún.
Safnar fyrir útborgun í bílskúr foreldra sinna
ViðtalFasteignamarkaðurinn

Safnar fyrir útborgun í bíl­skúr for­eldra sinna

Hjálmar Snorri Jónsson inn­rétt­aði í sumar bíl­skúr for­eldra sinna en hann býr í honum ásamt kær­ustu sinni. Hann segir auð­veld­ara að geta safnað fyrir íbúð þannig heldur en að fara fyrst inn á leigu­mark­að­inn. „Það er svo­lítið hugs­unin að í stað þess að vera á leigu­mark­aði get ég bara verið hér og safnað pen­ingum,“ segir Hjálmar.
Reynisfjara: Öryggið og ábyrgðin
Úttekt

Reyn­is­fjara: Öryggið og ábyrgðin

„Tími aðgerða er ein­fald­lega runn­inn upp,“ segir Hanna Katrín Frið­riks­son atvinnu­vega­ráð­herra um örygg­is­mál í ferða­þjón­ust­unni. Land­eig­endur í Reyn­is­fjöru telja örygg­is­ráð­staf­anir þar vera sam­starfs­verk­efni. Varnir voru hertar í fjör­unni eftir að níu ára gömul þýsk stúlka lést þar í byrjun ágúst. Sjón­ar­vottur segir krafta­verk að ekki fleiri hefðu farist þennan dag. Ferða­menn halda áfram að streyma niður í fjöru þrátt fyrir nýtt lok­un­ar­hlið og leggja ólíkt mat á hætt­una.
Brotthvarf að meðaltali hærra úr íslenskum háskólum en í OECD-ríkjum
Fréttir

Brott­hvarf að með­al­tali hærra úr íslenskum háskólum en í OECD-ríkjum

Nið­ur­stöður nýrrar skýrslu OECD um háskóla­mál sýna að brott­hvarf er hærra á Íslandi en að með­al­tali í OECD-ríkjum. Þá segir að tryggja þurfi að íslenskir háskólar standi jafn­fætis öðrum OECD háskólum. „Þessar nið­ur­stöður stað­festa að háskóla­málin þurfa að njóta sér­stakrar athygli,“ segir Logi Ein­ars­son menn­ingar-, nýsköp­unar- og háskóla­ráð­herra.
Guðfaðir plokksins: „Þú brennir meira með því að plokka en skokka“
Viðtal

Guðfaðir plokks­ins: „Þú brennir meira með því að plokka en skokka“

„Þetta er ekki ruslið þitt en þetta er plánetan okkar,“ segir Erik Ahlström, guð­faðir plokks­ins. Ekki bara felst heilsu­bót í plokk­inu heldur segir Erik það líka gott fyrir umhverfið og kom­andi kyn­slóðir. Hann telur mik­il­vægt fyrir sjáv­ar­þjóð eins og Ísland að koma í veg fyrir að rusl fari í sjó­inn en 85 pró­sent þess kemur frá landi. Blaða­maður Heim­ild­ar­innar fylgdi Erik út að plokka.
Breið samstaða gegn þjóðarmorði
Fréttir

Breið sam­staða gegn þjóð­ar­morði

„Rík­is­stjórn Íslands – eins og rík­is­stjórnir ann­arra ríkja – verða að bregð­ast af hörku við mann­rétt­inda­brotum og glæpum,“ segir Tótla Sæmunds­dóttir fram­kvæmda­stjóri Barna­heilla. Yfir hund­rað sam­tök og félög taka þátt í fjölda­fund­inum Þjóð gegn þjóð­ar­morði á laug­ar­dag­inn. Tótla segir sam­stöð­una breiða enda teygi ógnin sig í margar áttir.
Ungfrú Ísland Teen, útlitsstaðlar og tíðarandi fegurðarsamkeppna
Samantekt

Ungfrú Ísland Teen, útlits­staðlar og tíð­ar­andi feg­urð­ar­sam­keppna

Feg­urð­ar­sam­keppnin Ungfrú Ísland Teen hefur hlotið umdeilda athygli nýlega. En í ár er í fyrsta sinn keppt í ung­linga­flokki. Sólrún Ósk Lár­us­dóttir sál­fræð­ingur telur mik­il­vægt að ýta undir aðra þætti fólks en útlit. Nanna Hlín Hall­dórs­dóttir heim­spek­ingur segir feg­urð­ar­sam­keppn­ina mögu­lega birt­ing­ar­mynd um bakslag í jafn­rétt­is­málum.

Mest lesið undanfarið ár