Hryðjuverk og ofstæki munu ekki stjórna dönsku samfélagi

Helle Thorning-Schmidt for­sæt­is­ráð­herra Dan­merkur segir voða­at­burð­ina í Kaup­manna­höfn í gær og síð­ast­liðna nótt ekki breyta dönsku sam­fé­lagi. Tján­ingar- og trú­frelsi verði áfram einn af horn­steinum sam­fé­lags­ins.

For­sæt­is­ráð­herr­ann og Mette Frederik­sen dóms­mála­ráð­herra héldu frétta­manna­fund í morgun. Eftir að hafa vottað aðstand­endum hinna látnu hlut­tekn­ingu sína lögðu ráð­herr­arnir áherslu á að á stundum sem þessum stæði danska þjóðin saman. Voðaverk, eins þau sem hér voru framin, verði ekki til að hindra tján­inga­frelsi borg­ar­anna hvorki varð­andi trú­frelsi né stjórn­mála­skoð­anir. „Við látum ekki kúga okkur” sagði Helle Thorning-Schmidt. Ráð­herr­arnir hrósuðu lög­regl­unni og störfum hennar.

Myrti einn og særði þrjá


Síðdegis í gær réðst vopn­aður maður inn í sam­komu- og kaffi­húsið Krudttønden á Aust­ur­brú í Kaup­manna­höfn. Maðurinn lét skotum úr hríð­skotariffli rigna yfir fólk í salnum en þar stóð yfir fundur um mál­frelsi. Meðal ræðu­manna var sænski teikn­ar­inn Lars Vilks, hann hefur meðal ann­ars teiknað skop­myndir af Múhameð spá­manni í hunds­líki. Í eða við and­dyri sam­komu­húss­ins skaut til­ræð­is­mað­ur­inn einn fund­ar­gesta til bana, hann hét Finn N ørgaard og var 55 ára. Árás­armað­ur­inn særði tvo líf­verði og einn lög­reglu­þjón áður en hann lagði á flótta.

Mikil og fjöl­menn leit hófst strax, en mann­inum tókst að kom­ast undan á bíl sem hann neyddi eig­and­ann til að afhenda sér. Bílinn skildi hann eftir skammt frá Svanemøl­len lest­ar­stöð­inni, gekk nokkurn spöl og hringdi síðan á leigu­bíl.

Leigubílstjórinn kom lögreglunni á sporið


Leigu­bíl­stjór­inn ók mann­inum að íbúð­ar­húsi, rétt hjá Nørrebro lest­ar­stöð­inni. Lög­reglan fékk nokkru síðar upp­lýs­ingar um þessa öku­ferð og á eft­ir­lits­mynda­vél sást að mað­ur­inn hafi stoppað í hús­inu í um tutt­ugu mín­útur og farið þaðan á fimmta tím­anum síð­degis og komið við í öðru húsi í nágrenn­inu. Lög­reglan vaktaði eftir það bæði húsin.

Ekki er síðan vitað um ferðir manns­ins fyrr en um klukkan eitt síð­ast­liðna nótt þegar hann skaut til bana Dan Uzan, 37 ára gamlan en hann stóð vörð við bæna­hús gyð­inga við Krystal­gade, skammt frá Frú­ar­kirkju. Tveir lög­reglu­menn særð­ust en hefðu þeir ekki verið á staðnum hefði til­ræð­is­mað­ur­inn átt greiða leið inn í veislu­sal við bæna­húsið en þar voru átta­tíu manns í ferm­ing­ar­veislu. Maðurinn hljóp svo í átt að Nør­report lesta­stöð­inni, skammt frá bæna­hús­inu.

Um klukkan fimm í morgun kom mað­ur­inn, sem lög­regla taldi víst að hefði verið að verki, bæði í Krudttønden og í Krystal­gade, aftur að öðru íbúð­ar­hús­anna á Nørrebro, sem lög­regla vaktaði. Þegar kallað var til hans svar­aði hann með skot­hríð. Lög­reglan skaut á móti og mað­ur­inn lést.

[caption id="attachment_20280" align="alignnone" width="786"] Vopnaður maður réðst inn í sam­komu- og kaffi­húsið Krudttønden á Aust­ur­brú í Kaup­manna­höfn í gær. Maðurinn lét skotum úr hríð­skotariffli rigna yfir fólk í salnum en þar stóð yfir fundur um mál­frelsi. Meðal ræðu­manna var sænski teikn­ar­inn Lars Vilks, hann hefur meðal ann­ars teiknað skop­myndir af Múhameð spá­manni í hunds­líki.[/caption]

Lögreglan þekkti til mannsins


Á frétta­manna­fundi um hádeg­is­bil í dag kom fram að lög­reglan hefði þekkt til árás­armanns­ins en vildi á þeirri stundu ekki veita frek­ari upp­lýs­ingar um hann. Ítarleg rann­sókn er í fullum gangi, hún bein­ist að fjöl­mörgum þáttum: var mað­ur­inn einn að verki, hver er bak­grunnur hans, hver var til­gangur hans o.s.frv. Rannsókn lög­regl­unnar bein­ist ekki hvað síst að því hvort mað­ur­inn hafi með ein­hverjum hætti tengst alþjóð­legum hryðju­verka­sam­tökum. Á áður­nefndum frétta­manna­fundi kom fram að lög­regla vissi ekki til að mað­ur­inn hefði starfað með erlendum sam­tökum eða fengið þar þjálfun.

Hefði getað farið mun verr


Danskir fjöl­miðlar hafa í dag fjallað fjallað ítar­lega um atburði gær­dags­ins og næt­ur­innar. Meðal ann­ars um frammi­stöðu lög­regl­unnar. Allir sem rætt hefur verið við eru á einu máli um að lög­reglan hafi staðið sig mjög vel og komið í veg fyrir að að verr færi.

Vopnaður maður réðst inn í samkomu- og kaffihúsið Krudttønden á Austurbrú í Kaupmannahöfn í gær. Maðurinn lét skotum úr hríðskotariffli rigna yfir fólk í salnum en þar stóð yfir fundur um málfrelsi. Meðal ræðumanna var sænski teiknarinn Lars Vilks, hann hefur meðal annars teiknað skopmyndir af Múhameð spámanni í hundslíki.
Vopnaður maður réðst inn í sam­komu- og kaffi­húsið Krudttønden á Aust­ur­brú í Kaup­manna­höfn í gær. Maðurinn lét skotum úr hríð­skotariffli rigna yfir fólk í salnum en þar stóð yfir fundur um mál­frelsi. Meðal ræðu­manna var sænski teikn­ar­inn Lars Vilks, hann hefur meðal ann­ars teiknað skop­myndir af Múhameð spá­manni í hunds­líki.

Fyrr­ver­andi yfir­maður dönsku rann­sókn­ar­lög­regl­unnar hrós­aði lög­regl­unni, sem hann sagði hafa sýnt og sannað að hún kynni til verka. Hann lagði líka sér­staka áherslu á að aldrei yrði hægt að koma í veg fyrir hryðju­verk en það væri lög­reglu að þakka að ekki fleiri skyldu týna lífi.

[caption id="attachment_20281" align="alignnone" width="793"] Danski dóms­mála­ráð­herr­ann, Mette Frederik­sen (til hægri) og franski inn­an­rík­is­ráð­herr­ann Bernard Cazeneuve leggja blóm fyrir utan Krudttønden í morgun.[/caption]

Hryðjuverkaógnin vofir áfram yfir


Danska lög­reglan hefur lengi talið sig vita að fyrr eða síðar myndu hryðju­verka­menn láta til skarar skríða í Danmörku. Sú umræða varð meira áber­andi eftir voða­verkin í París fyrir rúmum mán­uði. Spurn­ing­unni hvort þau óhæfu­verk hafa á ein­hvern hátt verið kveikja að því sem gerð­ist hér í Kaup­manna­höfn verður kannski svarað síðar. Helle Thorning Schmidt sagði í dag að hættan á hryðju­verkum væri áfram til staðar en danska þjóðin stæði saman og „við búum í góðu landi og það tekur eng­inn frá okkur"

Danski dómsmálaráðherrann, Mette Frederiksen (til hægri) og franski innanríkisráðherrann Bernard Cazeneuve leggja blóm fyrir utan Krudttønden í morgun.
Danski dóms­mála­ráð­herr­ann, Mette Frederik­sen (til hægri) og franski inn­an­rík­is­ráð­herr­ann Bernard Cazeneuve leggja blóm fyrir utan Krudttønden í morgun.
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár