Stuðningsfólk Miðflokks hefur minnstar áhyggjur af hlýnun jarðar

Tæplega 70 pró­sent Íslend­inga hafa áhyggjur af hlýnun jarðar. Áhyggj­urnar eru mis­mun­andi miklar eftir kyni, aldri, búsetu og stjórn­mála­skoð­unum.

Mikill meiri­hluti lands­manna hefur áhyggjur af hlýnun jarðar, sam­kvæmt nýrri könnun MMR. Þar sögð­ust alls 68 pró­sent aðspurðra hafa mjög miklar eða frekar miklar áhyggjur en ein­ungis ell­efu pró­sent kváð­ust hafa litlar áhyggjur.

Áhyggjur fólks eru mis­mun­andi miklar eftir því hvaða stjórn­mála­flokka það seg­ist kjósa. Þannig hafa 96 pró­sent þeirra sem kjósa Sam­fylk­ing­una miklar áhyggjur af stöðu mála og 89 pró­sent þeirra sem kjósa Vinstri græn.

Umtals­verður meiri­hluti vænt­an­legra kjós­enda Við­reisnar (78 pró­sent með miklar áhyggjur en sjö pró­sent með litlar), Pírata (tæp­lega 78 pró­sent með miklar áhyggjur en þrjú pró­sent með litlar), Sjálf­stæð­is­flokks (60 pró­sent með miklar áhyggjur en 12 pró­sent með litlar) og Fram­sókn­ar­flokks (51 pró­sent með miklar áhyggjur en 24 pró­sent litlar) hafa meiri áhyggjur af loft­lags­vand­anum en litlar.

Þeir sem kjósa Mið­flokk­inn sjá hlut­ina aðeins öðrum litum. Þar segj­ast 39 pró­sent hafa miklar áhyggjur en 36 pró­sent litlar áhyggjur. Þing­maður flokks­ins, Birgir Þór­ar­ins­son, gerði umræð­una um að loft­lags­mál væru af manna­völdum að umtals­efni á Alþingi fyrr í þessum mán­uði. Í frásögn Stund­ar­innar af mál­flutn­ingnum kom fram vilji Birgis til að sjón­ar­mið þeirra vís­inda­manna sem telja loft­lags­breyt­ingar ekki vera af manna­völdum yrðu kennd í grunn- og fram­halds­skólum lands­ins.

Stuðn­ings­menn Flokks fólks­ins koma næstir í áhyggju­leysi, en 28 pró­sent þeirra hafa litlar áhyggjur af stöðu mála á meðan að 52 pró­sent hafa miklar áhyggjur.

Konur hafa meiri áhyggjur af hlýnun jarðar en karlar. Alls segj­ast 76 pró­sent þeirra hafa mjög eða frekar miklar áhyggjur af stöð­unni en 60 pró­sent karla.

Áhyggjur af hlýnun jarðar voru hvað mestar hjá yngsta og elsta ald­urs­hópnum. Alls sögð­ust 77 pró­sent fólks á aldr­inum 18 til 29 ára hafa frekar eða mjög miklar áhyggjur og 70 pró­sent aðspurðra sem voru 68 ára og eldri.

Þá voru íbúar höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins áhyggju­fyllri en þeir sem búa á lands­byggð­inni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár