Litadýrð á sólríkum degi í miðborginni

Er sumarið komið? Svarið er já, að minnsta kosti á suðvestur­horninu akkúrat þessa stundina. Ljós­myndari Heim­ild­ar­innar var á vappi um miðborginni í dag og fangaði mannlífið.

Miðborgin iðar af lífi og lita­dýrðin var alls­ráðandi þegar ljós­myndari Heimildarinnar var á ferðinni um hádegisbil.

Veður­guðirnir verða blíðastir við íbúa höfuð­borgar­svæðisins og Sunnlendinga um helgina en búast má við að gestkvæmt á Suður­landinu um helgina. 

Fremur hæg norðlæg átt eða hafgola verður á landinu á morgun, laugardag, en hiti gæti farið yfir 20 gráðurnar í innsveitum á Suður­landi. Á Austur- og Norður­landi er ekki alveg sömu sögu að segja þar sem hiti verður á bilinu fjórar til níu gráður. 

Gæðum sumarsins er misskipt, en borgar­búar njóta þessa stundina eins og sjá má á þessum myndum:

Kjósa
9
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár