Stofna samráðshóp um vernd einstaklinga í aðdraganda kosninga

Tækni­þróun síð­ustu ára hafa skapað aðstæður sem geta leitt af sér nýjar ógnir við lýð­ræði sem aftur getur leitt af sér að reynt verði að hafa óeðli­leg áhrif á nið­ur­stöður kosn­inga í lýð­ræð­is­ríkjum, að því er fram kemur hjá Per­sónu­vernd.

Fjöl­miðla­nefnd, Fjar­skipta­stofa og net­ör­ygg­is­sveitin (CERT-IS), lands­kjör­stjórn og Per­sónu­vernd hafa stofnað sam­ráðs­hóp um vernd ein­stak­linga í aðdrag­anda kosn­inga. Þetta er gert vegna fyr­ir­hug­aðra kosn­inga til Alþingis þann 25. sept­em­ber næst­kom­andi.

Frá þessu er greint á vef Per­sónu­verndar.

Fram kemur hjá Per­sónu­vernd að tækni­þróun síð­ustu ára hafi skapað aðstæður sem geta leitt af sér nýjar ógnir við lýð­ræði sem aftur geti leitt af sér að reynt verði að hafa óeðli­leg áhrif á nið­ur­stöður kosn­inga í lýð­ræð­is­ríkjum. „Samtal þeirra aðila sem hér eru undir er talið henta best til að geta komið í veg fyrir að slíkar ógnir raun­ger­ist,“ segir á vef Per­sónu­verndar.

Meg­in­mark­mið sam­ráðs­hóps­ins er að tryggja að stjórn­völd, sam­kvæmt þeim lag­ara­mma sem hvert um sig starfar eftir, fái við­eig­andi upp­lýs­ingar um atriði sem geri þeim kleift að bregð­ast við, eins fljótt og auðið er, ef metið er að uppi séu aðstæður sem við­eig­andi stjórn­völd þurfi að bregð­ast við. Hugs­an­legar ógnir við fram­kvæmd kosn­inga sem hér geta verið undir varða meðal ann­ars per­sónu­vernd, upp­lýs­inga­óreiðu, net­ör­yggi eða þjóðar­ör­yggi.

Hlutverk sam­ráðs­hóps­ins er að auð­velda upp­lýs­inga­skipti milli við­eig­andi stjórn­valda í aðdrag­anda kosn­inga. Hópnum er ekki ætlað að taka ákvarð­anir. Upp­lýs­inga­skipti er lúta að nafn­greindum ein­stak­lingum eða fyr­ir­tækjum eru óheimil, nema slíkt sé heim­ilt lögum sam­kvæmt, að því er fram kemur hjá Per­sónu­vernd.

Samráðshópurinn skipaður í kjölfar Cambridge Analytica-málsins

Á vef Per­sónu­verndar er for­saga stofn­unar sam­ráðs­hóps­ins rakin en í jan­úar 2019 sendi Per­sónu­vernd bréf til for­sæt­is­ráðu­neytis og dóms­mála­ráðu­neytis, þar sem óskað var eftir stofnun sam­ráðs­vett­vangs um vernd ein­stak­linga í tengslum við kosn­ingar. Bréf Per­sónu­verndar var sent í kjöl­far Cambridge Analytica-máls­ins þar sem í ljós kom að fyr­ir­tæki og stjórn­mála­sam­tök höfðu reynt að hafa áhrif á stjórn­mála­af­stöðu ein­stak­linga undir ann­ar­legum for­merkjum, meðal ann­ars með því að nota per­són­u­snið á ógagn­sæjan og nær­göngulan hátt.

Í kjöl­far bréfs­ins fór dóms­mála­ráðu­neytið þess á leit við Net­ör­ygg­is­ráð að fjallað yrði um erindið á vett­vangi ráðs­ins og unnið að þeim ráð­stöf­unum sem lík­leg­astar væru til árang­urs í því augna­miði að tryggja örugga fram­kvæmd kosn­inga að þessu leyti.

Af hálfu Net­ör­ygg­is­ráðs var ákveðið að stofn­aður skyldi und­ir­hópur sem sam­an­stæði af full­trúum helstu stjórn­valda sem hefðu aðkomu að kosn­ingum. Þá var einnig ákveðið að bjóða stjórn­völdum, sem standa utan Net­ör­ygg­is­ráðs, aðkomu að hópnum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2021

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár