Paulson enn tengdur inn í kröfuhafahóp Glitnis

Þrátt fyrir að vog­un­ar­sjóður banda­ríska fjár­fest­is­ins John Paulson, Paulson Credit Opportunities Master, hafi selt allar kröfur sínar á slitabú Glitnis í ágúst 2014 er hann enn mjög tengdur stórum kröfu­hafa. Í sama mán­uði og Paulson seldi keypti PAC Credit Fund Limited mikið magn krafna á Glitni og er nú fjórði stærsti kröfu­hafi bús­ins. Annar stjórn­enda PAC Credit Fund Limited er lyk­il­stjórn­andi vog­un­ar­sjóðs Paulsons.

Keyptu mikið í ágúst 2014


Írski sjóð­ur­inn PAC Credit Fund er sá aðili sem hefur bætt mest af kröfum á Glitni við sig á und­an­förnum miss­erum. Sjóð­ur­inn keypti sig upp­haf­lega inn í kröfu­hafa­hóp Glitnis í febr­úar þegar hann eign­að­ist kröfur upp á 20 millj­arða króna að nafn­virði. Hann bætti svo við sig 63 millj­örðum í kröfum þann 28. ágúst síð­ast­lið­inn. Annar hlut­hafi PAC er starfs­stöð banda­ríska fjár­fest­inga­bank­ans J.P. Morgan í Írlandi.

Í gögnum frá írsku fyr­ir­tækja­skránni,sem Kjarninn hefur undir höndum, má hins vegar sjá að annar tveggja stjórn­enda PAC Credit Fund er Stuart Leslie Merzer. Hann er lyk­il­stjórn­andi hjá vog­un­ar­sjóðnum Paulson&Co.

Sjóður Paulson, Paulson Credit Oportunities Master, keypti kröfur á slitabú Glitnis í mars 2013. Í apríl síð­ast­liðnum var umfang krafna sem hann átti á Glitni orðið um 53 millj­arðar króna að nafn­virði.

Í nýrri kröfu­hafa­skrá Glitnis, frá 20. nóv­em­ber 2014, kemur hins vegar fram að sjóð­ur­inn hafi selt allar kröfur sínar á Glitni. Það gerð­ist, sam­kvæmt heim­ildum Kjarnans, í ágúst síð­ast­liðnum, sama mán­uði og PAC Credit Fund keypti þorra þeirra krafna sem hann á á Glitni. PAC Credit Fund er eftir upp­kaupin fjórði stærsti kröfu­hafi Glitnis.


Hagnaðist mikið á stöðutöku fyrir hrun


Líkt og áður sagði er stofn­andi og stjórn­andi Paulson&Co John Paulson. Um hann hafa verið skrif­aðar bækur, á meðal þeirra „The big­gest trade ever“, sem fjall­aði um stöðu­töku hans gegn hús­næð­is­bólunni í Banda­ríkj­unum sem gerði hann óheyri­lega ríkan. Einn fimm aðal­sjóða hans, Paulson Credit Opportunities Master, hóf að kaupa kröfur á Glitni af miklum móð vorið 2013.

Sjóðs­stýr­ing­ar­fyr­ir­tæki Paulson var sjö­undi stærsti vog­un­ar­sjóður Banda­ríkj­anna í árs­lok 2012. Það e með um sex millj­arði dala, um 750 millj­arða króna, í stýr­ingu.

Síðasta ár var hins vegar ekki gott ár fyrir Paulson. Businessweek greindi frá því í gær að afkoma vog­un­ar­sjóðs hans var sú næst versta frá því að hann var stofn­aður árið 1994. Í raun hefur fátt gengið upp hjá Paulson frá því að hann græddi 15 millj­arði dala, tæp­lega 2.000 millj­arða króna, á stöðu­töku sinni gegn hús­næð­is­bólunni í Banda­ríkj­unum. Eignir sjóðs­ins eru í dag taldar vera um 19 millj­arðar dala, um 2.500 millj­arðar króna. Þær hafa lækkað um helm­ing frá árinu 2011, þegar þær voru sem mestar.

Burlington og Deutsche Bank sanka að sér kröfum


Stærsti ein­staki kröfu­hafi Glitnis er Burlington Loan Mana­gement, sem er í eigu banda­ríska sjóðs­stýr­ing­ar­fyr­ir­tæk­is­ins Davidson Kempner. Sjóð­ur­inn, sem er stór kröfu­hafi margra ann­arra íslenskra slita­búa, og eig­andi ýmissa íslenskra fyr­ir­tækja, er stærsti ein­staki kröfu­hafi íslensks atvinnu­lífs.

Þýski bankaris­inn Deutsche Bank er skráður eig­andi að kröfum í þrotabú Glitnis upp á 157,1 millj­arð króna að nafn­virði. Það gerir hann að þriðja stærsta kröfu­hafa bank­ans.

[caption id="attachment_13888" align="alignnone" width="1024"] Deutsche Bank er þriðji stærsti kröfu­hafi Glitnis. Talið er að hann haldi að mestu á kröfum sínum fyrir aðra.[/caption]

Deutsche Bank er þriðji stærsti kröfuhafi Glitnis. Talið er að hann haldi að mestu á kröfum sínum fyrir aðra.
Deutsche Bank er þriðji stærsti kröfu­hafi Glitnis. Talið er að hann haldi að mestu á kröfum sínum fyrir aðra.

Samkurl Burlington við Deutsche Bank hefur verið nokkuð mikið. Dótt­ur­fyr­ir­tæki þýska bankaris­ans, Deutsche Bank AG í Amster­dam, heldur til að mynda á 99 pró­sent af hlut­deild­ars­kirteinum í ALMC. Heim­ildir Kjarnans herma að Burlington eða sjóðir Davidson Kempner séu end­an­legir eig­endur hluta þeirra skirteina. Þá keypti Burlington 26 millj­arða króna skuldir Lýsingar af Deutsche Bank skömmu fyrir síð­ustu ára­mót.

Við­mæl­endur Kjarnans telja að Deutsche Bank sé að halda á þeim kröfum sem bank­inn er skráður fyrir á Glitni fyrir ein­hverja aðra. Bankinn sé milli­liður, ekki end­an­legur eig­andi þeirra.

Næst stærsti kröfu­hafi Glitnis er vog­un­ar­sjóð­ur­inn Silver Point. Hann var á sínum tíma stofn­aður af tveimur fyrrum starfs­mönnum fjár­fest­inga­bank­ans Goldman Sachs og er í dag í 79. sæti yfir stærstu vog­un­ar­sjóði heims. Sjóð­ur­inn hefur bætt við sig kröfum upp á 25,2 millj­arða króna að nafn­virði und­an­farið eitt og hálft ár og á kröfur upp á 157,1 millj­arð króna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár