ESB heldur neyðarfund í dag vegna flóttamanna

Leið­togar Evr­ópu­sam­bands­ríkj­anna munu halda annan neyð­ar­fund í dag vegna straums flótta­manna yfir Mið­jarð­ar­hafið til Evrópu. Ætlunin er að ræða leiðir til þess að stemma stigu við fjölda þeirra flótta­manna sem leggja í hættu­för yfir hafið til að kom­ast frá heim­kynnum sínum.

Drög að til­lögum fela meðal ann­ars í sér að ráð­ist verði í hern­að­ar­að­gerðir til þess að eyði­leggja báta og skip sem notuð eru við flutn­inga á fólki yfir Mið­jarð­ar­hafið. Fleiri en 800 ein­stak­lingar drukkn­uðu undan ströndum Líbíu á sunnu­dag, og yfir 1.750 manns hafa lát­ist á þess­ari leið á þessu ári.

Matteo Renzi, for­sæt­is­ráð­herra Ítalíu, hefur kallað eftir því að gripið verði til aðgerða gegn man­sali. Hann sagði þá sem flytja fólk með þessum hætti vera þræla­hald­ara 21. ald­ar­innar. Lang­flestir flótta­mann­anna reyna að kom­ast til Ítalíu og Möltu.

Samkvæmt AFP frétta­stof­unni kemur fram í drögum að aðgerðum Evr­ópu­sam­bands­ins að leið­togar muni skuld­binda sig til þess að ráð­ast í kerf­is­bundnar aðgerðir til að bera kennsl á, fanga og eyði­leggja far­ar­tæki áður en þau eru notuð. Federica Mog­her­ini, utan­rík­s­mála­stjóri ESB, er sam­kvæmt drög­unum beðin um að hefja strax und­ir­bún­ing að öryggis- og varn­ar­að­gerðum.

Meðal ann­arra aðgerða sem grípa á til er að styðja betur við Sam­ein­uðu þjóð­irnar í því að reyna að tryggja stöðuga rík­is­stjórn í Líbíu. 90% þeirra sem reyna að fara yfir Mið­jarð­ar­hafið á bátum fara frá Líbíu, að sögn ítal­skra stjórn­valda.

Einnig er búist við því að rætt verði hvernig eigi að taka á móti þeim flótta­mönnum sem koma til Evrópu. Tillaga um að dreifa flótta­mönnum á jafn­ari hátt meðal allra ESB-ríkj­anna er mjög umdeild.

Ein­stak­lingum sem hafa flúið stríð og fátækt í Mið­aust­ur­löndum og Afríku hefur fjölgað gríð­ar­lega und­an­farna mán­uði.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár