Sema fyrir dóm vegna söfnunar sem kom hátt í 200 manns frá Gaza

Lögmaður úr mið­stjórn Sjálf­stæð­is­flokks­ins kærði Semu Erlu fyrir söfnun sem sner­ist um að bjarga hæl­is­leit­endum með dval­ar­leyfi á Íslandi frá þjóð­ar­morð­inu á Gasa. Hún er nú ákærð fyrir að til­kynna söfn­un­ina of seint til sýslu­manns.

Stefnt fyrir dóm
Stefnt fyrir dóm Sema Erla Serdar fer fyrir dóm vegna söfn­unar Solaris. Mynd: Davíð Þór

Sema Erla Serdaroglu, aðjúnkt á mennta­vís­inda­sviði Háskóla Íslands og stjórn­ar­for­maður hjálp­ar­sam­tak­anna Solaris, fer fyrir Hér­aðs­dóm Reykja­víkur 24. nóv­em­ber næst­kom­andi í kjöl­far þess að hún var ákærð fyrir söfnun sem „leiddi til þess að hátt í 200 ein­stak­lingar, að mestu konur og börn, komust á lífi undan þjóð­ar­morði á Gaza,“ að sögn Semu.

Sema hefur verið með rétt­ar­stöðu sak­born­ings eftir að ein­stak­lingur kærði söfn­un­ina. Málið hefur öðl­ast póli­tíska vídd og orðið að víð­ari átökum um útlend­inga­mál á Íslandi, þar sem áber­andi með­limir í Sjálf­stæð­is­flokknum hafa tekið stöðu gegn Solaris.

Blásið var til söfn­un­ar­innar vegna þess að á annað hund­rað Palest­ínu­manna, aðal­lega konur og börn, höfðu fengið dval­ar­leyfi á Íslandi, en komust ekki til lands­ins vegna aflok­unar þess á sama tíma og yfir stóð það sem alþjóða­sam­tök hafa úrskuðað „þjóð­ar­morð“. Íslensk stjórn­völd aðhöfð­ust ekki í mál­inu, þar sem „er það á þeirra ábyrgð að kom­ast til Íslands af eigin …

Kjósa
17
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Maria Maack skrifaði
    Sá nokkur kvikmyndina Schindlers list. Um manninn sem varð obboslega frægur? Og bjargaði nokkrum frá útrýmingarbúðum. Fylgdi hann ekki aaaalgjörlega nýjustu lögum og reglum um notkun fjármagns? Ó var það ekki söfnunarfé. Í alvöru krakkar má ekki lengur sýna mannúð ef peningar eru í húfi.
    4
  • SIB
    Sigurður I Björnsson skrifaði
    Hvað ætli séu þá mörg þúsund ólöglegar fjársafnanir sem hafa farið fram á undanförnum árum t.d. hjá íþróttafélögum og samtökum og jafnvel stjórnmálasamtökum, man ekki betur en slíkt hafi verið algengt á héraðsmótunum í denn. Ætli Einar hafi aldrei verið í félagi sem safnaði einhverju " ólöglega"? eða er hann orðinn of gamall til að muna slíkt?
    11
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Árásir á Gaza

Mest lesið undanfarið ár