Verðbólga helst í stað

Visitala neyslu­verðs hækk­aði um 0,39 pró­sent í des­em­ber. Vísitala neyslu­verðs yfir síð­ustu 12 mán­uði hækk­aði um 4,8 pró­sent sem er sama hlut­fall og mæld­ist í síð­asta mán­uði. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá Hagstofu Íslands.

Verðbólga helst óbreytt
Verð­bólga helst óbreytt Verð­bólga mæld­ist 4,8 í des­em­ber sem var takti við spár grein­ing­ar­að­ila Mynd: Golli

Verð­bólga helst í stað og mæld­ist 4,8 pró­sent í des­em­ber sem er sama hlut­fall og mæld­ist í nóv­em­ber. Mælingin er í takti við spár grein­ing­ar­að­ila. Til að mynda spáði Íslands­banki óbreyttri verð­bólgu í des­em­ber. Í grein bank­ans er einnig spáð því að verð­bólga verði komin nokkuð nálægt 2,5 pró­senta verð­bólgu­mark­miði Seðla­bank­ans.

Í til­kynn­ingu frá Hagstofu Íslands kemur fram að vísi­tala neyslu­verðs hafi hækkað um 0,39 pró­sent milli mán­aða. Án hús­næðis nemur hækk­unin 0,37 pró­sentum. 

Kostn­aður við búsetu í eigin hús­næði hækk­aði um 0,5 pró­sent og flug­far­gjöld til útlanda um átta pró­sent. Þegar litið er á þróun vísi­taln­anna má glöggt sjá að verð­bólga hefur dreg­ist saman jafnt og þétt frá því að hún stóð í 10,2 pró­sentum í febr­úar 2023. Línan flett­ist út undir lokin vegna mæl­inga síð­ustu tveggja mán­aða. 

Kjósa
3
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár