Yfirmenn lögreglu lugu að ráðherrum

Yfirmenn dönsku leyni­þjón­ust­unnar sögðu for­sætis- og dóms­mála­ráð­herrum lands­ins ósatt um fjöl­margt varð­andi við­brögð lög­regl­unnar eftir hryðju­verkin í Kaup­manna­höfn 14. og 15. febr­úar síð­ast­lið­inn. Þetta kemur fram í skýrslu rann­sókn­ar­nefndar. Yfir­maður leyni­þjón­ust­unnar, PET, til­kynnti um upp­sögn sína klukku­stund áður en skýrslan var gerð opin­ber og hættir 1. júní nk.

Mette Frederik­sen dóms­mála­ráð­herra kynnti skýrslu rann­sókn­ar­nefndar lög­regl­unnar á fundi með frétta­mönnum sl. fimmtu­dag. Rann­sókn­ar­nefndin starfar algjör­lega sjálf­stætt og heyrir beint undir ráð­herr­ann.

Hryðjuverkin


Eins og mörgum er lík­lega í fersku minni réðst ungur maður, Omar El- Hussein að nafni, til atlögu við sam­komu­húsið Krudttønden á Aust­ur­brú laug­ar­dagionn 14. febr­úar. Þá stóð þar yfir fundur um tján­ing­ar­frelsi og meðal fund­ar­manna var sænski teikn­ar­inn Lars Wilks sem meðal ann­ars hafði teiknað Múhameð spá­mann í hunds­gervi. Einn maður lést, danski kvik­mynda­gerð­ar­mað­ur­inn Finn Nörgaard.

Þetta gerð­ist um hálf­fjögur síð­degis. Til­ræð­is­mað­ur­inn komst undan. Rúmum níu klukku­stundum síðar, skömmu fyrir klukkan eitt aðfara­nótt sunnu­dags­ins 15. febr­úar kom Omar El- Hussein að bæna­húsi gyð­inga við Krystal­gade í Kaup­manna­höfn. Þar skaut hann einn mann til bana, sá var vörður við húsið, Dan Uzan að nafni. Aftur komst Omar El- Hussein undan en rétt fyrir klukkan fimm á sunn­dags­morgn­inum skaut lög­reglan hann til bana fyrir utan hús í norð­ur­hluta Kaup­manna­hafnar.

[caption id="attachment_20184" align="alignnone" width="800"] Árásin átti sér stað á Krudttønden.[/caption]

Forsætisráðherrann brást skjótt við


Helle Thorning-Schmidt for­sæt­is­ráð­herra brást skjótt við, kall­aði saman sér­staka neyð­ar­nefnd rík­is­stjórn­ar­innar og hélt frétta­manna­fund strax á laug­ar­dags­kvöld­inu. Það var áður en til­ræð­is­mað­ur­inn lét til skarar skríða í seinna skiptið. Þar fór hún yfir atburða­rás­ina eins og yfir­maður leyni­þjón­ust­unnar hafði lýst henni. For­sæt­is­ráð­herr­ann þótti standa sig vel við þessar erf­iðu og óvana­legu aðstæður, vera lands­föð­ur­leg eins og það var orðað.

Árásin átti sér stað á Krudttønden.
Árásin átti sér stað á Krudttønden.

Um nótt­ina komu svo frétt­irnar af seinna til­ræð­inu og á sunnu­dags­morgn­inum þau tíð­indi að til­ræð­is­mað­ur­inn, sem hefði verið að verki í bæði skiptin, hefði fallið fyrir byssu­kúlum lög­reglu. Lög­reglan hand­tók síðar þann dag fimm menn sem voru taldir vit­orðs­menn, eða sam­verka­menn til­ræð­is­manns­ins. Þrír þeirra sitja enn í gæslu­varð­haldi og sömu­leiðis tveir sem hand­teknir voru síðar.

[caption id="attachment_20279" align="alignnone" width="732"] Helle Thorning-Schmidt, for­sæt­is­ráð­herra Dan­merkur, þótti standa sig afar vel við erf­iðar aðstæður sem sköp­uð­ust eftir árás­irnar. MYND:EPA[/caption]

Skýrslan


Nokkrum dögum eftir þessa atburði, sem eiga sér vart, eða ekki, hlið­stæðu í Danmörku óskaði Mette Frederik­sen dóms­mála­ráð­herra eftir skýrslu rann­sókn­ar­nefndar lög­regl­unnar. Ráð­herr­ann óskaði eftir að nefndin ynni hratt og skýrslan, 142 blað­síður, barst ráð­herr­anum fyrir nokkrum dögum.

Helle Thorning-Schmidt, forsætisráðherra Danmerkur, þótti standa sig afar vel við erfiðar aðstæður sem sköpuðust eftir árásirnar. MYND:EPA
Helle Thorning-Schmidt, for­sæt­is­ráð­herra Dan­merkur, þótti standa sig afar vel við erf­iðar aðstæður sem sköp­uð­ust eftir árás­irnar. MYND:EPA

Óhætt er að segja að skýrsl­unnar hafi verið beðið með nokk­urri eft­ir­vænt­ingu því spurst hafði út að þar kæmi ýmis­legt fram sem ekki væri bein­línis í sam­ræmi við það sem lög­reglu­yf­ir­völd hefðu áður greint for­sætis- og dóms­mála­ráð­herr­unum frá. Það reynd­ust orð að sönnu. Atburða­rásin, og við­brögð lög­reglu voru um margt mjög frá­brugðin því sem greint var frá í upp­hafi.

Engin gæsla við samkomuhúsið


Vitni greindu frá því að til­ræð­is­mað­ur­inn hafi komi gang­andi að sam­komu­hús­inu Krudttønden. Þegar hann átti eftir tutt­ugu til þrjá­tíu metra að hús­inu dró hann upp byss­una og skrúf­aði hlaupið á. Síðan gekk hann rak­leiðis að hús­inu án þess að verð­irnir tveir sem voru í and­dyr­inu veittu honum minnstu athygli.

[quote font="0" align="right"]Samkvæmt frá­sögnum vitnis sat annar varð­anna, með kaffi­bolla í hendi, og snéri baki að inn­gang­inum. Hinn var að skoða eitt­hvað í sím­anum. Vitnið sagði að þessir tveir hefðu ein­fald­lega sofið á verð­inum.[/quote]

Samkvæmt frá­sögnum vitnis sat annar varð­anna, með kaffi­bolla í hendi, og snéri baki að inn­gang­inum. Hinn var að skoða eitt­hvað í sím­anum. Vitnið sagði að þessir tveir hefðu ein­fald­lega sofið á verð­inum. Fleiri verðir voru á staðnum en þeir voru inni í sam­komusalnum og sáu þess vegna ekki hvað fram fór. Kvik­mynda­gerð­ar­mann­inn sem lést skaut Omar El- Hussein af stuttu færi eftir stutt orða­skipti og komst svo undan, eng­inn vissi hvert hann fór. Ráð­herr­arnir fengu í upp­hafi mjög tak­mark­aðar upp­lýs­ingar um verð­ina og vitn­is­burður manns­ins sem sá til varð­anna var ekki skráður í skýrslur lög­reglu í upp­hafi.

Á frétta­manna­fundi dag­inn eftir til­ræðin sagði Helle Thorning-Schmidt for­sæt­is­ráð­herra að strax og fréttir hefðu borist af til­ræð­inu við sam­komu­húsið hefði lög­reglan sent verði að bæna­húsi gyð­inga við Krystal­gade. Þessar upp­lýs­ingar fékk ráð­herr­ann frá leyni­þjón­ust­unni. Síðar kom í ljós að þetta var víðs­fjarri sann­leik­anum.

Engin gæsla fyrr en fjórum klukkustundum seinna


Það var ekki fyrr en tæpum fjórum klukku­stundum síðar sem verðir komu að bæna­hús­inu en þá höfðu for­svars­menn gyð­inga marg­sinnis hringt til lög­regl­unnar og óskað eftir örygg­is­gæslu við bæna­húsið. Formaður sam­taka gyð­inga sagði að gyð­ingar hefðu verið þess full­vissir að þeir væru skot­markið og ótt­ast um líf sitt.

Enginn vissi hvar til­ræð­is­mað­ur­inn var nið­ur­kom­inn en stór hluti mið­borgar Kaup­manna­hafnar var nán­ast lok­aður af og mörg hund­ruð lög­reglu-og her­menn á göt­unum.

Hvernig komst tilræðismaðurinn að bænahúsinu?


Þessari spurn­ingu hefur ekki verið svarað með full­nægj­andi hætti. Fram hefur komið að sam­tals voru sex lög­reglu­menn við bæna­húsið. Tveir í garð­inum, innan við hliðið sem snýr að göt­unni og fjórir á götu­hornum í næsta nágrenni.

Engin skýr­ing hefur feng­ist á því hvernig Omari El- Hussein tókst að kom­ast fram­hjá þeim og að hlið­inu við bæna­húsið. Þegar vörður sem starf­aði sem sjálf­boða­liði við bæna­húsið ávarp­aði hann dró Omar El- Hussein upp byssu og skaut vörð­inn, sem lést af sárum sínum.

Sannarlega víti til varnaðar


Þegar Mette Frederik­sen dóms­mála­ráð­herra kynnti skýrslu rann­sókn­ar­nefnd­ar­innar lagði hún meg­in­á­herslu á þrennt. Í fyrsta lagi að við (eins og hún orð­aði það) hefðum brugð­ist gyð­ingum með því að bregð­ast allt of seint við og lög­reglan og leyni­þjón­ustan hrein­lega ekki verið við því búnar að atburðir sem þessir gætu átt sér stað.

[caption id="attachment_28294" align="align­right" width="200"] Mette Fred­rik­sen dóms­mála­ráð­herra Dan­merkur.[/caption]

Mette Fredriksen dómsmálaráðherra Danmerkur.
Mette Fred­rik­sen dóms­mála­ráð­herra Dan­merkur.

Í öðru lagi væri það mjög alvar­legt að leyni­þjón­ustan hefði bein­línis sagt ráð­herrum ósatt, slíkt væri algjör­lega óvið­un­andi. Stjórn­völd yrðu að geta treyst yfir­stjórn lög­regl­unnar og þótt sann­leik­ur­inn væri kannski óþægi­legur á stundum þýddi það ekki að honum mætti hag­ræða til að fegra hlut­ina.

Í þriðja lagi væri svo það að hér væri um að ræða hryðju­verk þess eðlis sem Danir hefðu bless­un­ar­lega ekki áður kynnst og það kalli á önnur vinnu­brögð. Með því sagð­ist ráð­herr­ann eiga við að í sam­fé­lag­inu vaxi upp ein­stak­lingar sem víli ekki fyrir sér að ráð­ast gegn sam­borg­urum sínum með þeim hætti sem hér gerð­ist. "Hvernig við getum komið í veg fyrir slíkt er stór og erfið spurn­ing sem við verðum að takast á við" sagði ráð­herr­ann og bætti við "Hvað er það í sam­fé­lagi okkar og upp­vexti ung­menna sem verður til þess að búa til slíkt hatur í garð sam­borgar­anna ?"

Yfirmaður leyniþjónustunnar tilkynnti afsögn


Þótt Mette Frederik­sen dóms­mála­ráð­herra væri kurt­eis og gætin í orða­vali þegar hún kynnti skýrslu rann­sókn­ar­nefnd­ar­innar gat engum dulist tónn­inn í orðum hennar. Þegar frétta­manna­fund­ur­inn hófst var rúm klukku­stund frá því að yfir­maður leyni­þjón­ust­unnar Jens Madsen til­kynnti um upp­sögn sína. Hvorki hann né ráð­herr­ann vildu bein­línis tengja upp­sögn­ina við skýrsl­una en "við skiljum nú áður en skellur í tönnum" sagði einn frétta­manna þegar ráð­herr­ann vildi ekki tala um upp­sögn­ina.

[caption id="attachment_28295" align="alignnone" width="620"] Jens Madsen hafði aðeins verið yfir­maður leyni­þjón­ust­unnar í rúma sextán mán­uði þegar hann sagði af sér. Hann var áður yfir­maður rann­sókn­ar­deildar lög­regl­unnar.[/caption]

Jens Madsen hafði aðeins verið yfirmaður leyniþjónustunnar í rúma sextán mánuði þegar hann sagði af sér. Hann var áður yfirmaður rannsóknardeildar lögreglunnar.
Jens Madsen hafði aðeins verið yfir­maður leyni­þjón­ust­unnar í rúma sextán mán­uði þegar hann sagði af sér. Hann var áður yfir­maður rann­sókn­ar­deildar lög­regl­unnar.

Jens Madsen sem hafði aðeins verið yfir­maður leyni­þjón­ust­unnar í rúma sextán mán­uði var áður yfir­maður rann­sókn­ar­deildar lög­regl­unnar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár