Allt er breytt - Hvað er Amazon að hugsa?

Bylt­ing­ar­kenndur nýr hug­bún­aður í smá­sölu er kom­inn fram. Margar spurn­ingar vakna um breytt lands­lag í smá­sölu.

Í dag opn­aði Amazon Go verslun Amazon í Seattle. Þetta eru tíma­mót í heimi smá­söl­unnar og tækn­innar. Búðin er hátækni­undur. Fólk gengur inn í búð­ina. Síminn er sjálf­krafa skann­aður inn í kerfi búð­ar­innar. Síðan fer fólk um og finnur vör­urnar, og gengur svo rak­leiðis út aftur. Engar biðraðir. Engir búð­ar­kassar eða starfs­menn við þá. Við­skiptin fara fram í gegnum not­enda­svæði Amazon í sím­anum. Það sem gerir þetta mögu­legt, er mynda­véla- og skynjara­bún­aður í lofti versl­un­ar­innar, sem hefur verið í mörg ár í þróun. Fjórtán mán­uðir eru frá því að búðin var opnuð fyrir starfs­mönnum Amazon, en nú hefur stóra skrefið verið stigið, og getur almenn­ingur nú verslað í búð­inni.

Stans­laus umferð hefur verið um búð­ina í dag, sam­kvæmt skrifum Seattle Times, en blaða­maður hyggst heim­sækja hana þegar örlítið um hægist, von­andi síðar í vik­unni.

Hvað svo?

Stóra spurn­ingin sem nú er spurt, er hvað Amazon hyggst gera. Munu nú spretta fram versl­anir vítt og breitt um Banda­ríkin, eða jafn­vel heim­inn?

Verður 470 Whole Foods versl­unum fyr­ir­tæk­is­ins breytt í þessa veru? Munu mán­að­ar­gjöld not­enda Amazon vild­ar­kjara­kerf­is­ins (Amazon Prime) hækka?

Þrjú atriði hafa helst verið nefnd, nú strax á fyrsta degi.

1. Búðin er bylt­ing í verslun, og má líkja henni við það þegar strik­a­merkin komu fram. Þá fengu versl­un­ar­rek­endur verk­færi til að auka hag­kvæmni og áreið­an­leika í þjón­ustu. Tæknin sem Amazon hefur nú kynnt til sög­unnar - og hefur einka­leyfi á - getur aukið hag­kvæmni til muna en hún stuðlar líka að mun betri nýt­ingu á plássi. Tölvu­stýrðir lag­erar hjálpa til við að nýta pláss og stuðla að betri nýt­ingu á vörum. Þetta eru áhættu­þættir sem oft geta reynst versl­unum erf­iðir; ann­ars vegar afföll og hins vegar hús­næð­is­kostn­aður. Margir virð­ast gera ráð fyrir að Amazon muni nýta sér bún­að­inn í Whole Foods versl­unum, en einnig í fleiri Amazon Go búðum. Þegar tæknin var fyrst kynnt skrif­aði Laura Stevens, blaða­maður Wall Street Journal, frétta­skýr­ingu þar sem hún sagð­ist vera með heim­ildir fyrir því, að Amazon væri búið að vinna með fjár­festum að því að tryggja sér um tvö þús­und stað­setn­ingar fyrir Amazon Go versl­anir í Banda­ríkj­unum. Amazon neit­aði, en þó með þeim orðum að þessi áform væru ekki orðin að veru­leika. Neitunin var ekki sann­fær­andi, með öðrum orðum.

2. Amazon er orð­inn að for­dæma­lausum risa í smá­sölu, vegna net­versl­un­ar­innar. Talið er að áskrif­endur vild­ar­kjara­kerfis Amazon séu nú orðnir yfir 90 millj­ónir, en opin­ber tala er ekki gefin upp. Eftir því sem þessi mark­aður stækkar, þeim mun verð­mæt­ara verður fyrir fram­leið­endur og umboðs­að­ila að koma vörum á fram­færi á hinu risa­vaxna Amazon mark­aðs­torgi. Amazon hyggst hækka mán­að­ar­gjaldið fyrir Prime með­limi úr tæp­lega 10 Banda­ríkja­dölum á mán­uði, í 12. En á sama tíma vill fyr­ir­tækið bjóða fólki að halda sömu „gömlu“ kjör­unum ef það skiptir yfir í árs­á­skift. Kunnugir blaða­menn í tækni­geir­anum hér í Seattle, sem blaða­maður Kjarnans ræddi við, segja að Amazon vilji frekar hafa fólk í árs áskrift en mán­að­ar­legri, þar sem áreið­an­leiki í greiðslu­kerfum fyr­ir­tæk­is­ins er meiri þannig. Upp­hæð­irnar eru miklar, og hags­mun­irnir miklir. Eftir því sem útbreiðsla á þessu vild­ar­kjara­kerfi verður meiri því mun auð­veld­ara verður fyrir fyr­ir­tækið að tengja við­skipta­vini við Amazon Go versl­anir, vítt og breitt. Allt helst þetta í hendur hjá þessum risa; versl­anir, net­versl­unin og vild­ar­kjara­kerfið. Það er eins konar horn­steinn í við­skipta­sam­bandi Amazon við sína við­skipta­vini.

3. Blaða­maður New York Times heim­sótti Amazon Go versl­un­ina í gær, degi áður en hún opn­aði, og gerði til­raun til að stela vörum. Það gekk ekki betur en svo, að hann var rukk­aður fyrir þær. Í umfjöllun sinni veltir hann því upp, að hugs­an­lega muni Amazon ein­blína á að breiða út hug­bún­að­ar­kerfi sitt, og selja öðrum smá­sölu­fyr­ir­tækjum aðgang að því. Með því móti myndi fyr­ir­tækið ein­blína fyrst og síð­ast á þennan hluta versl­un­ar­rekstr­ar­ins, það er hug­bún­að­ar­hlut­ann.

Það má taka dæmi: Íslensk verslun not­ast við hug­búnað Amazon, og greiðir eina milljón á mán­uði til fyr­ir­tæk­is­ins. Hug­bún­að­ur­inn og kerfið allt, er síðan hryggjar­stykkið í skipu­lag­inu, og hjálpar til við að gera versl­anir og lag­era hag­kvæm­ari. Það er vel hugs­an­legt, að þetta sé eitt af því sem komi til greina hjá Amazon, þegar kemur að þessum bylt­ing­ar­kennda hug­bún­aði.

Það er erfitt að spá fyrir um fram­tíð­ina, en miðað það skref sem Amazon steig í dag, þá er óhætt að tala um að bylt­ing sé framundan í smá­sölu. Vaxandi net­verslun er eitt, en þessi skynjara- og gervi­greind­ar­verslun er annað. Amazon er leið­andi í hvoru tveggja. Fyr­ir­tækið er nú virði tæp­lega 600 millj­arða Banda­ríkja­dala, eða sem nemur um 65 þús­und millj­arða króna. Stofn­and­inn Jeff Bezos heldur enn um þræð­ina sem for­stjóri, og á enn 17 pró­sent hlut í fyr­ir­tæki. Sem gerir hann að auð­ug­asta manni heims, með um 100 millj­arða Banda­ríkja­dala eignir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár