Jólaævintýri leynikórsins

Tár falla, bæði í salnum og í kórnum sjálfum, og sumir í salnum syngja með. Loka­tónninn hverfur út í skammdegið, einlægt klapp, þurrkuð tár og ótal bros. Það þekkja allir andlit í kórnum en hann kemur bara fram fyrir sérvalinn hóp og syngur þá inn jólin.

Á æfingu
Á æfingu „Ég get ekki leyft mér að vera mjög strangur kór­stjóri, þetta er auð­vitað bara vina­hópur sem er að hafa gaman, það skiptir miklu máli að ég sé ekki að koma hingað og skamma með­limi,“ segir Hildigunnur Ein­ars­dóttir á æfingu Jóla­kórs­ins sem hún segir langt í frá stund­vís­asta kór sem hún hafi stjórnað. Mikill tími fari í fagn og faðm­lög. Mynd: Golli

Í hlýlegum samkomusal hjúkrunar­heimilis sitja spari­búnir eldri­borgarar og bíða. Fyrir framan þá stendur jólakór sem gerir sig tilbúinn fyrir hátíðar­söng. Andlitin eru kunnugleg og mætti halda að hér væri verið að taka upp íslenska kvikmynd. Stór­leikarar þjóðarinnar í bland við minna þekkt andlit draga djúpt andann og hefja söng.

Tár falla, bæði í salnum og í kórnum sjálfum, og sumir í salnum syngja með. Nokkrir syngja á innsoginu um meinvilla mannkind sem lá í myrkrunum. Loka­tónninn hverfur út í skammdegið, einlægt klapp, þurrkuð tár og ótal bros. 

Þó að þetta gæti verið sena í kvikmynd, er enginn sem hrópar „KÖTT“ að lagi loknu. Engar mynda­vélar eru á staðnum, engin upptaka gerð – aðeins stöku farsími á lofti í hrukkóttum höndum og einn ljós­myndari. Í áratug hefur þessi kór starfað í kyrrþey með eitt hlutverk: að gleðja gamla fólkið á aðventunni – og sjálfan sig í leiðinni.

…
Kjósa
27
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Kristjana Magnusdottir skrifaði
    ALLIR VERÐA GAMLIR SVO ÚRELDAST KENNINGAR TÆKNI HVERRA TÍMA OG HVAÐ SEM ER ÞVÍ ALLIR HLUTIR HRÖRNA OG ENDURNÝJAST ÞVÍ ÞANNIG ER GANGUR LÍFSINS EKKERT SNÝR AFTUR SEM HORFIÐ ER Í GLEYMSKU EN SAMT LIFIR MINNINGIN UM ÞAÐ LIÐNA OG EKKERT ER SEM ÁÐUR VAR
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár