Samfylkingin og Viðreisn eru einu skráðu stjórnmálasamtök landsins

Dóms­mála­ráðu­neytið minnir á það í dag að vegna laga­breyt­inga þurfa öll stjórn­mála­sam­tök sem ætla sér að bjóða fram til sveit­ar­stjórna að skrá sig form­lega sem stjórn­mála­sam­tök hjá Rík­is­skatt­stjóra. Í dag eru bara tveir flokkar búnir að skrá sig form­lega.

Hér má sjá formenn stjórnmálasamtakanna tveggja sem skráð eru á Íslandi, Loga Einarsson formann Samfylkingar og Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur formann Viðreisnar.
Hér má sjá for­menn stjórn­mála­sam­tak­anna tveggja sem skráð eru á Íslandi, Loga Ein­ars­son for­mann Sam­fylk­ingar og Þorgerði Katrínu Gunn­ars­dóttur for­mann Við­reisnar. Mynd: Samsett mynd

Viðreisn – stjórn­mála­sam­tök og Sam­fylk­ingin – jafn­að­ar­manna­flokkur Íslands eru einu skráðu stjórn­mála­sam­tök lands­ins, sam­kvæmt upp­lýs­ingum sem finna má á vef stjórn­ar­ráðs­ins og byggja á skrán­ingu stjórn­mála­sam­taka hjá Rík­is­skatt­stjóra.

Það má þó fast­lega búast við því að fleiri flokkar og sam­tök skrái sig hjá Rík­is­skatt­stjóra á næst­unni, enda þurfa allir flokkar sem ætla að bjóða fram lista til sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ing­anna 14. maí að vera skráðir sem stjórn­mála­sam­tök 14. maí. Á þetta var minnt í til­kynn­ingu frá dóms­mála­ráðu­neyt­inu í dag.

Stjórnmálasamtakaskrá sett á fót með lögum

Ákvæði um að stjórn­mála­sam­tök skuli skrá sig sér­stak­lega hjá Rík­is­skatt­stjóra var bætt inn í lög um starf­semi stjórn­mála­sam­taka í fyrra.

Í þeim lögum segir að Rík­is­skatt­stjóri skrái stjórn­mála­sam­tök og starf­ræki í því skyni stjórn­mála­sam­taka­skrá, sem birt skuli almenn­ingi á vef stjórn­ar­ráðs­ins ásamt upp­lýs­ingum sem fylgi umsóknum stjórn­mála­sam­tak­anna um skrán­ingu.

[adspot]

Þau nýmæli eru svo að finna í nýjum kosn­inga­lögum, sem tóku gildi um ára­mót, að stað­fest­ing á skráðu heiti og lista­bók­staf stjórn­mála­sam­taka á að fylgja öllum fram­boðs­listum sem skilað er inn til yfir­kjör­stjórna.

„Hyggist stjórn­mála­sam­tök bjóða fram í sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ing­unum þann 14. maí nk., þurfa þau að vera skráð í stjórn­mála­sam­taka­skrá,“ segir í til­kynn­ingu dóms­mála­ráðu­neyt­is­ins í dag og er síðan vísað á vef Skatts­ins þar sem stjórn­mála­sam­tök geta fundið frek­ari upp­lýs­ingar um umsókn­ar­ferlið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár