Var ætlunin að myrða umdeildan stjórnmálamann

Rétt­ar­höld vegna ódæð­is­verk­anna sem framin voru í Kaup­manna­höfn fyrir rúmu ári síðan eru hafin. Sá sem framdi voða­verkin er lát­inn. Þeir sem eru á saka­manna­bekk eru meintir vit­orðs­menn hans.

Mikil öryggisgæsla, og áhugi frá fjölmiðlum, er á réttarhöldunum.
Mikil örygg­is­gæsla, og áhugi frá fjöl­miðlum, er á rétt­ar­höld­unum. Mynd: EPA

Rétt­ar­höld vegna til­ræð­anna í Kaup­manna­höfn í febr­úar í fyrra, þar sem tveir lét­ust og nokkrir særð­ust hófust í vik­unni. Sá sem stóð að til­ræð­unum er þó ekki fyrir rétt­inum, hann féll fyrir byssu­kúlum lög­reglu.

Við upp­haf rétt­ar­hald­anna sem danskir fjöl­miðlar kalla stærsta hryðju­verka­mál í sögu Dan­merkur kom fram að að til­ræð­is­mað­ur­inn Omar El-Hussein kynnti sér meðal ann­ars sér­stak­lega upp­lýs­ingar um stjórn­mála­mann­inn Mogens Camre. Það gerði hann eftir að hann hafði orðið manni að bana við sam­komu­hús í Kaup­manna­höfn 14. febr­úar í fyrra en áður en hann skaut vörð við sam­komu­hús gyð­inga í borg­inni. Rétt­ar­höldin eiga að standa í einn mánuð og dóms er að vænta í sept­em­ber.

Síð­ast­lið­inn fimmtu­dag hófust í Kaup­manna­höfn rétt­ar­höld yfir fjórum mönnum sem ákærðir eru fyrir að hafa vitað um og aðstoðað Omar El-Hussein við und­ir­bún­ing til­ræðis sem hann framdi við bæna­hús gyð­inga í Krystal­gade skömmu eftir mið­nætti sunnu­dag­inn 15. febr­úar 2015. Omar El-Hussein féll fyrir skotum lög­reglu nokkrum klukku­stundum síðar á Norð­ur­brú í Kaup­manna­höfn. Síðdegis þennan sama dag hand­tók lög­reglan fjóra menn, tveimur var fljót­lega sleppt en hinir tveir hafa setið í gæslu­varð­haldi síðan. Fimmti mað­ur­inn var hand­tek­inn seint í febr­úar í fyrra en hann var síðar lát­inn laus. Tveir menn til við­bótar voru hand­teknir, 19. og 20. mars í fyrra og hafa setið inni síðan.

Menn­irnir fjórir, sá yngsti tví­tugur og sá elsti rúm­lega þrí­tugur, þekktu allir Omar El-Hussein. Allir höfðu þeir áður kom­ist í kast við lögin og setið inni um lengri eða skemmri tíma. Einn úr hópnum hafði hlotið dóm fyrir inn­brot sem hann framdi ásamt Omari El-Hussein og sá elsti hefur tengst þekktum afbrota­sam­tökum og var nýkom­inn úr fang­elsi.

Kom ekki öllum á óvart

Á öðrum degi rétt­ar­hald­anna yfir fjór­menn­ing­unum kom fram að kannski hefðu fregnir af til­ræð­unum 14. og 15. febr­úar í fyrra ekki komið öllum á óvart. Einn sak­born­ing­anna greindi frá því fyrir rétt­inum að í Mjølnerpar­ken hverf­inu á Norð­ur­brú hefði verið á sveimi orðrómur þess efnis að ein­hver, sumir nefndu Omar El-Hussein, hefði í hyggju að fremja hryðju­verk af svip­uðu tagi og átt höfðu sér stað í París rúmum mán­uði fyrr.

Þessi sak­born­ingur, nefndur LE fyrir rétt­inum, hafði áður sagt þetta sama við yfir­heyrslur lög­reglu skömmu eftir að hann var hand­tek­inn 15. febr­úar í fyrra. LE er yngstur sak­born­ing­anna fjög­urra og hann var yfir­heyrður allan föstu­dag­inn, með stuttum hléum. Fulltrúi ákæru­valds­ins gekk mjög hart að LE með spurn­ingum sínum en LE bar iðu­lega við minnis­leysi. Sak­sókn­ari minnti hann þá á að margt af því sem hann segð­ist ekki muna núna hefði hann munað mjög vel við yfir­heyrslur lög­reglu.

Ákæruvaldið vel undirbúið

Rúmt ár er liðið frá til­ræð­unum í Kaup­manna­höfn. Á fyrstu tveimur dögum rétt­ar­hald­anna kom glögg­lega í ljós að ákæru­valdið hefur ekki setið auðum höndum við und­ir­bún­ing máls­ins.

Í rétt­inum var lagður fram fjöld­inn allur af mynd­bands­upp­tökum sem sýna ferðir LE, Omars El-Hussein og hinna þriggja sak­born­ing­anna fyrir og eftir til­ræðin. Iðulega hefur verið um það deilt hvort allur sá ara­grúi mynda­véla sem er að finna í Kaup­manna­höfn þjóni til­gangi og þá hvaða til­gangi og enn­fremur hvort slíkar upp­tökur séu í raun lög­legar. Full­trúar lög­reglu og ákværu­valds hafa í þessu máli kært sig koll­ótta um slíkt tal og mynd­bands­upp­tök­urnar eru eitt helsta gagn sak­sókn­ara. Af frá­sögnum fjöl­miðla sem fylgj­ast grannt með gangi mála í rétt­ar­salnum hefur tek­ist að fylgja fjór­menn­ing­unum og Omari El-Hussein nán­ast hvert fót­mál fyrir til­stilli mynda­vél­anna.

Tölvurnar segja sína sögu

Við rann­sókn máls­ins hefur komið í ljós að til­ræðið við sam­komu­húsið Krudttønden á Aust­ur­brú var vand­lega und­ir­búið af hálfu Omars El-Hussein. Í tölvum sem lög­reglan lagði hald á sést að hann hefur skoðað sam­komu­húsið vel og vand­lega á myndum, kynnt sér vel inn og útgöngu­leiðir húss­ins, dag­skrána 14. febr­úar í fyrra og enn­fremur upp­lýs­ingar um sænska teiknar­ann Lars Vilks sem átti að vera aðal­ræðu­maður á fundi um tján­ing­ar­frelsi þennan eft­ir­mið­dag. Ákæru­valdið telur að ætlun Omars El-Hussein hafi verið að ráða teiknar­ann af dögum, og kannski fleiri við­stadda.

Sú áætlun fór hins­vegar úr skorðum þegar í ljós kom að lög­reglu­vörður var við húsið en Omar El-Hussein skaut kvik­mynda­gerð­ar­mann­inn Finn Nörgaard, sem lést sam­stundis, og særði tvö lög­reglu­menn áður en hann lagði á flótta. Rannsókn á tölvum sýndi enn­fremur að Omar El-Hussein hafði skoðað myndir og kynnt sér upp­lýs­ingar um fyrr­ver­andi for­mann sam­taka um prent­frelsi, Lars Hedegaard, en hann hefur marg­sinnis í ræðu og riti gagn­rýnt skoð­anir og við­horf múslima.

Hvað vissu fjórmenningarnir?

Rannsókn lög­regl­unnar vegna rétt­ar­hald­anna sem nú eru hafin hefur fyrst og fremst beinst að þætti fjór­menn­ing­anna. Hvað vissu þeir, hjálp­uðu þeir Omari El-Hussein við að skipu­leggja til­ræðin, einkum hið síð­ara, keyptu þeir fyrir hann föt sem hann klædd­ist eftir fyrra til­ræðið, hjálp­uðu þeir honum að losna við byss­una sem hann not­aði í til­ræð­inu við sam­komu­húsið. Vissu þeir að hann ætl­aði ekki að láta staðar numið eftir fyrra til­ræðið? Fögnuðu þeir með honum þegar hann sagði þeim frá til­ræð­inu í Krystal­gade?

Um þessar spurn­ingar og margar fleiri snú­ast rétt­ar­höldin.

Riffillinn, jakkinn og húfan

Eftir fyrra til­ræðið hitti Omar El-Hussein fjór­menn­ing­ana sem í rétt­ar­höld­unum ganga undir nöfn­unum LE, BH, IA og MR. Fyrst einn eða tvo þeirra í heima­húsi við Mjølnerpar­ken á Norð­ur­brú en síðan bætt­ust hinir í hóp­inn. Á mynd­bands­upp­tökum sést einn fjór­menn­ing­anna kaupa hlið­ar­tösku í Fötex verslun á Mimers­gade á Norð­ur­brú, sömu tösk­una og Omar El-Hussein var með þegar hann framdi síð­ara til­ræðið í Krystal­gade.

I Mimer­spar­ken fann lög­reglan síðar húfu og trefil sem Omar El-Hussein bar við fyrra til­ræðið og enn­fremur jakka og síð­ast en ekki síst riffil­inn sem hann not­aði þá. Á myndum sést þegar tveir hinna ákærðu koma gang­andi að end­ur­vinnslu­stöð i Mimer­spar­ken. Þar kom að þriðji mað­ur­inn, sem lög­reglan hefur ekki sagt hver sé, sá var með aflangan poka sem hann los­aði sig við í tunnu eða gám. Í pok­anum var riffill­inn. Við yfir­heyrslur fyrir rétt­inum kvaðst LE, einn þeirra sem þarna var, ekki muna glöggt eftir þessu og ekki haft hug­mynd um hvað í pok­anum var.

Netkaffið og Mogens Camre

Um klukkan níu að kvöldi 14. febr­úar kom Omar El-Hussein á net­kaffið Powerplay á Norð­ur­brú. Þar hitti hann fjór­menn­ing­ana og af mynd­bands­upp­tökum og athug­unum á tölvum sést að Omar El-Hussein ásamt fjór­menn­ingum hefur skoðað myndir af sam­komu­húsi gyð­inga í Krystal­gade og dag­skrána þar.

Við rétt­ar­haldið sl. föstu­dag var enn­fremur greint frá því, sem ekki hafði komið fram áður, að Omar El-Hussein hefði í tölvu aflað sér upp­lýs­inga um stjórn­mála­mann­inn Mogens Camre, hvar hann byggi o.s.frv. Mogens Camre var um ára­bil þing­maður sós­í­alde­mókrata en gekk síðar í Danska Þjóð­ar­flokk­inn. Hann hefur iðu­lega tekið stórt uppí sig um mál­efni inn­flytj­enda, einkum og sér­ílagi múslima. Omar El-Hussein skoð­aði líka upp­lýs­ingar um for­mann Pegida sam­tak­anna sem eru andsnúin múslimum og enn­fremur upp­lýs­ingar um sölu­turn á Vest­ur­brú þar sem franska teikni­mynda­tíma­ritið Charlie Hebdo hefur verið selt.

Netkaffið aftur

Rúmum klukku­tíma eftir seinna til­ræðið, í Krystal­gade, kom Omar El-Hussein aftur á net­kaffið Powerplay. Þar hitti hann tvo fjór­menn­ing­anna. Eftir að þeir höfðu heils­ast fóru þeir inn í bak­her­bergi á staðnum (kallað VIP her­bergi) til að tala saman. Þeir slökktu ljósið, kannski til að eft­ir­lits­mynda­vélar sæju ekki til þeirra. Það breytti hins­vegar engu, vél­arnar sáu og skráðu eftir sem áður.

Engar hljóð­upp­tökur eru til af því sem þarna fór fram en á mynd­unum sést Omar El-Hussein tala og með því að lesa í handa­hreyf­ingar má geta sér þess til að hann sé að segja frá því að haldið sé á byssu. Annar hinna virð­ist svo með hægri hendi sýna að skorið sé á háls. Þetta sem þarna fór fram kvaðst sá sem yfir­heyrður var ekki muna gjörla. Á net­kaff­inu dvöld­ust þeir þre­menn­ing­arnir drjúga stund, ákæru­valdið hefur ekki enn upp­lýst nánar um það sem svo gerð­ist.

Bara byrjunin

Rétt­ar­höldin yfir fjór­menn­ing­unum eru bara rétt að byrja, en gert er ráð fyrir að þau standi í heilan mánuð. Ákæru­valdið er greini­lega mjög vel und­ir­búið, það eru verj­endur sak­born­inga lík­lega einnig. Dómarar eru þrír en einnig hafa verið kvaddir til þrír með­dóm­arar.Danskur blaða­maður sagði í við­tali að rétt­ar­höldin væru eins og þús­und blað­síðna saka­mála­saga og núna hefði maður bara lesið tvær fyrstu blað­síð­urnar. Eins og í bók­unum kæmi eitt­hvað nýtt í ljós á hverri síðu og nið­ur­staðan birt­ist ekki fyrr en á síð­ustu blað­síðu. ”það sem er öðru­vísi” sagði blaða­mað­ur­inn ”en í skáld­sög­unum er, að að hér er ekki hægt að fletta upp á öft­ustu síðu og lesa nið­ur­stöð­una.”

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár