Frumvarp um jafnlaunavottun afgreitt úr ríkisstjórn

Frum­varpið sem var kynnt á blaða­manna­fundi Við­reisnar í októ­ber og átti að verða for­gangs­mál varð ekki fyrsta frum­varpið sem ráð­herra lagði fram á Alþingi líkt og lagt var upp með. Frum­varpið hefur vakið heims­at­hygli þótt það hafi í raun ekki enn komið fyrir Alþingi. Það var hins vegar afgreitt úr rík­is­stjórn í síð­ustu viku.

Þor­steinn Víglunds­son, félags- og jafn­rétt­is­ráð­herra, lagði í dag fram sitt fyrsta frum­varp á Alþingi, um  breyt­ingu á lögum um hús­næð­is­sam­vinnu­fé­lög. Áður hafði hann boðað að sitt fyrsta frum­varp yrði um jafn­launa­vottun en Viðreisn lagði mikla áherslu á málið í kosn­inga­bar­átt­unni. Boðað var til sér­staks blaða­manna­fundar til þess að kynna frum­varpið, sem var þá þegar til­búið og full­yrt að það yrði fyrsta þing­mál Við­reisnar. Frum­varpið hefur hins vegar legið inni í ráðu­neyt­inu frá því að ráð­herr­ann tók til starfa og hefur ekki enn verið lagt fyrir þingið. „Það er rétt að þetta átti að vera mitt fyrsta mál,“ sagði Þor­steinn, í sam­tali við Vísi um miðjan mars.  

Helsta áherslumál Viðreisnar

Í októ­ber boð­aði Viðreisn til sér­staks blaða­manna­fundar til þess að kynna frum­varp sem skyldar fyr­ir­tæki og stofn­anir með 25 starfs­menn eða fleiri til þess að skila jafn­launa­vottun. Samkvæmt frum­varpinnu átti að gera það opin­bert ef fyr­ir­tæki eða stofn­anir greiða starfs­mönnum sínum ólík laun á grund­velli kyn­ferðis en ekki ann­arra sjón­ar­miða, en slík mis­munun er lög­brot. Með frum­varp­inu var lagt upp með að upp­ræta óút­skýrðan launa­mun kynj­anna.  

Málið rataði inn í stjórn­ar­sátt­mála Sjálf­stæð­is­flokks, Við­reisnar og Bjartrar Fram­tíðar og sam­kvæmt þing­mála­skrá ráð­herr­ans átti frum­varpið að koma til þings í jan­úar. Í sama mán­uði boð­aði Þor­steinn að frum­varpið yrði það fyrsta sem hann myndi leggja fyrir á Alþingi. Síðan var stefnt að því að leggja frum­varpið fyrir í mars, en það hefur enn ekki verið gert.

Frum­varpið hefur hins vegar verið lagt fram í rík­is­stjórn og var sam­þykkt þaðan í síð­ustu viku, sam­kvæmt svari frá aðstoð­ar­manni ráð­herra, Þor­björgu Sigríði Gunn­laugs­dóttur, við fyr­ir­spurn Stund­ar­innar. 

Blendin viðbrögð 

Hug­myndin um jafn­launa­vottun hefur vakið blendin við­brögð á meðal þing­manna. Óli Björn Kárason og Brynjar Níelsson, þing­menn Sjálf­stæð­is­flokks­ins, hafa sagt að þeir ætli ekki að styðja frum­varpið. Auk þess hefur Sigríður Andersen dóms­mála­ráð­herra lýst yfir efa­semdum um kyn­bund­inn launa­mun og jafn­launa­vottun.

Samtök atvinnu­lífs­ins hafa einnig gagn­rýnt frum­varpið, en Vísir greindi frá því í mars að reynt væri að fá jafn­launa­vottun inn í kjara­samn­inga. Frum­varpið gæti því orðið óþarft eftir samn­inga­við­ræður aðila vinnu­mark­að­ar­ins og laun­þega­hreyf­ing­ar­innar í land­inu. „Frum­varpið er til­búið í ráðu­neyt­inu og verður lagt fyrir þingið í lok mán­aðar ef ekki næst sam­komu­lag milli aðila á vinnu­mark­aði um að koma jafn­launa­vottun inn í samn­inga,“ sagði Þor­steinn þá.

Þótt frum­varpið hafi ekki enn verið lagt fyrir á þingi hefur það vakið athygli langt út fyrir land­stein­ana og verið til umfjöll­unar í erlendum fjöl­miðlum á borð við Time, The New York Times, NPR, Independent og fleiri. Í mars sagði Þor­steinn í við­tali við norska fjöl­mið­il­inn Dagsa­visen að Norðmenn gætu svo sann­ar­lega fetað í fót­spor Íslend­inga og lög­fest jafn­launa­vottun. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár