Rannsaka ferðir hryðjuverkamanns um Ísland

Minnst er á Ísland í stefnu­yf­ir­lýs­ingu hryðju­verka­manns­ins í Nýja-Sjálandi.

Ferðir hryðju­verka­manns­ins Brentons Tarrant eru nú til rann­sóknar emb­ættis rík­is­lög­reglu­stjóra, en hann hefur meðal ann­ars komið hingað til lands­ins. Þetta er meðal þess sem fram kemur í stefnu­yf­ir­lýs­ingu hans, sem telur 74 síður.

RÚV greindi frá því að emb­ætti rík­is­lög­reglu­stjóra væri með ferðir hans til rann­sóknar.

Upp­lýs­ingar um þetta hafa borist frá yfir­völdum í Nýja-Sjálandi en hann kom til Íslands árið 2017, sam­kvæmt svari rík­is­lög­reglu­stjóra við fyr­ir­spurn frétta­stofu RÚV.

Að öðru leyti verst emb­ætti rík­is­lög­reglu­stjóra frétta af mál­inu.

Í stefnu­yf­ir­lýs­ing­unni kemur Ísland fyrir, þar sem Tarrant segir að það sé hvergi að finna skjól í heim­inum, ekki einu sinni í Nýja-Sjálandi, Póllandi, Íslandi og Argent­ínu. Það viti hann af reynslu, þar sem hann hafi verið þar.

Tarrant hefur verið ákærður fyrir hryðju­verkið í tveimur moskum í Christchurch þar sem 50 lét lífið, og tugir særð­ust, margir alvar­lega.

Yfirvöld í Nýja-Sjálandi hafa heitið því að velta við öllum steinum í rann­sókn á mál­inu, og styðja aðstand­endur fórn­ar­lamba árás­ar­innar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár