Mynd: TOLGA AKMEN / EPA-EFE

Sjö molar um efnahags- og stjórnmálastorm í Bretlandi

Er Bretar leyfðu sér loks að líta upp úr lang­dreg­inni erfi­drykkju Elísa­betar drottn­ingar tók ekki skárra við. Ný rík­is­stjórn Liz Truss virð­ist búin að skapa sér djúpa efna­hags­lega og póli­tíska krísu, ofan á orku­krís­una.

Óhætt er að segja að und­an­farin rúm vika hafi verið svipti­vinda­söm í meira lagi á breskum fjár­mála­mark­aði og ekki síður á stjórn­mála­svið­inu. Kjarninn tók saman nokkra mola um atburði síð­ustu daga, sem kalla má erf­iða hveiti­brauðs­daga nýrrar rík­is­stjórnar.

Risavaxin, en ófjármögnuð skattalækkunaráform

Að nota skatta­lækk­anir sem kveikju vaxtar í Bret­landi var það sem Liz Truss, nýr for­sæt­is­ráð­herra Bret­lands, sagði að hún myndi gera er hún sann­færði meiri­hluta flokks­manna um að kjósa sig í leið­toga­stól Íhalds­flokks­ins í lok sum­ars.

Ný rík­is­stjórn hennar beið ekki boð­anna í þessum efnum. Á föstu­dag­inn í síð­ustu viku kynnti Kwasi Kwarteng fjár­mála­ráð­herra fyr­ir­hug­aðar efna­hags­að­gerðir, svokölluð „smá-fjár­lög“, sem fela í sér miklar skatta­lækk­anir, raunar þær mestu sem boð­aðar hafa verið á einu bretti í Bret­landi í um 50 ár.

Samkvæmt til­lög­unum, sem meðal ann­ars gera ráð fyrir því að hæsta tekju­skatts­þrepið verði fellt á brott, yrði kostn­að­ur­inn við skatta­lækk­anir um 45 millj­arðar punda á árs­grund­velli. Samhliða stendur til að breska rík­is­stjórnin, eins og margar aðrar í Evrópu, verji gríð­ar­miklu fé til þess að greiða niður orku­kostnað heim­ila.

Í Bret­landi er sjálf­stæður eft­ir­lits­að­ili á vegum hins opin­bera, Office for Budget Responsi­bility, sem leggur mat á efna­hags­leg áhrif aðgerða sem snerta afkomu hins opin­bera. Engin grein­ing þaðan var sett fram sam­hliða kynn­ingu til­lagn­anna, en Kwarteng fjár­mála­ráð­herra kaus að fá eft­ir­lits­að­il­ann ekki til þess að rýna í áætl­an­irnar sem hann lagði fram og hafði raunar látið kröfur þing­manna þess efnis sem vind um eyru þjóta.

Kwasi Kwarteng fjármálaráðherra Bretlands.
Kwasi Kwarteng fjár­mála­ráð­herra Bret­lands.

Að hafa enga rýni frá eft­ir­lits­að­il­anum, og þar með enga óháða grein­ingu á því hvort full­yrð­ingar fjár­mála­ráð­herr­ans um áhrif aðgerð­anna stæð­ust skoðun, leiddi til þess að þeir sem sýsla með fé, sitt eigið eða ann­arra, þurftu ein­fald­lega að vega og meta orð fjár­mála­ráð­herr­ans um að það sem hann og rík­is­stjórn Liz Truss settu fram væri skot­held leið til vaxtar.

Sterlingspundið kolféll og vextir ríkisskuldabréfa snarhækkuðu

Nið­ur­staða flestra á mark­aði var og er sú að áform bresku stjórn­ar­innar séu hæpin. Margir fjár­festar ótt­ast að aðgerð­irnar sem boð­aðar hafa verið muni leiða til frek­ari efna­hags­vand­ræða í Bret­landi og að skulda­staða rík­is­sjóðs muni fara æ versn­andi.

Áhrifin komu fljótt fram, fjár­festar los­uðu sig við stöður í breskum pundum og urðu afhuga því að kaupa bresk rík­is­skulda­bréf. Virði breska punds­ins féll nokkuð strax eftir kynn­ingu Kwarteng á aðgerðum og náði svo sögu­legum botni á mánu­dag­inn, er hægt var að kaupa eitt breskt pund fyrir tæp­lega 1,04 banda­ríkja­dali. Eftir því sem leið á vik­una reis pundið þó á ný gagn­vart doll­ar­anum og var gengið komið yfir 1,1 síð­degis í gær. Álag á bresk rík­is­skulda­bréf rauk á sama tíma upp, sem þýðir að orðið er dýr­ara fyrir ríkið að taka fé að láni.

Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn lét í sér heyra

Alþjóða­gjald­eyr­is­sjóð­ur­inn fylgd­ist grannt með stöðu mála í Bret­landi og sendi frá sér nokkuð óvenju­lega yfir­lýs­ingu á mið­viku­dag. Þar voru áætl­anir breskra stjórn­valda gagn­rýndar harka­lega og rík­is­stjórn Truss hrein­lega bent á að vit­ur­legt væri að end­ur­skoða þær.

Í yfir­lýs­ingu AGS sagði að vegna verð­bólgu­þrýst­ings í mörgum ríkjum, meðal ann­ars Bret­landi, myndi sjóð­ur­inn ekki mæla með stórum og ómark­vissum útgjalda­pökkum á þessum tíma­punkti, en sjóð­ur­inn hefur í ráð­legg­ingum sínum lagt áherslu á það að rík­is­út­gjöldum sé for­gangs­raðað í þágu þeirra hópa sem verða fyrir mestum áhrifum af hækk­andi verði orku og dag­legra nauð­synja.

Sagði AGS að aðgerð­irnar í Bret­landi væru til þess fallnar að auka ójöfnuð, enda koma skatta­lækk­an­irnar sem boð­aðar eru aðal­lega efn­uðu fólki til góða.

Seðlabankinn steig inn til að tryggja fjármálastöðugleika

Á mið­viku­dag bár­ust fréttir af því að breski seðla­bank­inn, Eng­lands­banki, hefði ákveðið að grípa til neyð­ar­að­gerða til að koma í veg fyrir að á staða mála á skulda­bréfa­mörk­uðum færi úr bönd­unum.

Aðgerðir Seðla­bank­ans eru á stórum skala, en bank­inn hyggst kaupa bresk rík­is­skulda­bréf fyrir allt að 5 millj­arða punda á dag fram til 14. októ­ber.

Liz Truss forsætisráðherra Bretlands
Liz Truss for­sæt­is­ráð­herra Bret­lands

Breskir fjöl­miðlar hafa sagt frá því að bank­inn hafi kosið að stíga inn á mark­að­inn til þess að koma í veg fyrir að breskir líf­eyr­is­sjóðir eða trygg­inga­fé­lög hrein­lega færu í greiðslu­þrot, en raun­veru­leg hætta ku hafa verið talin á því að svo færi á mið­viku­dag.

Óvissa á húsnæðislánamarkaði

Þegar hag­fræð­ingar fóru að reyna að rýna í vænt áhrif af aðgerðum Truss-stjórn­ar­innar sem kynntar voru fyrir rúmri viku varð nið­ur­staða margra þeirra sú að Eng­lands­banki myndi þurfa að grípa til veru­legra vaxta­hækk­ana.

Meg­in­vextir seðla­bank­ans eru í dag 2,25 pró­sent en nú búast sumir við því að þeir verði jafn­vel komnir vel yfir 5 pró­sentu­stig snemma á næsta ári.

Áhrif svo örra vaxta­hækk­ana gætu svo orðið þau að hús­næð­is­mark­að­ur­inn í land­inu kóln­aði mjög mikið. Í grein­ingu frá fjár­fest­inga­bank­anum Credit Suisse sagði að hús­næð­is­verð gæti „auð­veld­lega“ lækkað um 10-15 pró­sent á nokkuð skömmum tíma, eða 18 mán­uðum.

Þessi nýja staða leiddi til þess að í vik­unni end­ur­skoð­uðu fjár­mála­stofn­anir sem veita hús­næð­is­lán vöru­fram­boð sitt og kipptu ýmsum val­kostum sem voru í boði í síð­ustu viku af borð­inu, ekki síst hag­kvæmum leiðum til end­ur­fjár­mögn­unar. Neyt­endur finna fyrir því nú þegar – það er orðið dýr­ara en áður að taka ný hús­næð­is­lán.

Truss og Kwarteng standa keik

Þrátt fyrir að ein­ungis kynn­ingin á fyr­ir­hug­uðum aðgerðum nýrrar rík­is­stjórnar hafi valdið glund­roða á fjár­mála­mörk­uðum hafa leið­togar bresku stjórn­ar­innar ekki látið neinn bil­bug á sér finna.

Truss for­sæt­is­ráð­herra skrif­aði aðsenda grein í The Sun í gær, og lof­aði því þar að engin U-beygja yrði tekin frá þeirri stefnu sem mörkuð hefur verið.

„Það verða ekki allir hrifnir af því sem við erum að gera, en ég vil full­vissa almenn­ing um að rík­is­stjórnin er með skýra áætlun sem ég trúi að sé sú rétta fyrir landið,“ skrif­aði Truss.

Um helg­ina fer fram lands­fundur Íhalds­flokks­ins, þar sem Truss mun þurfa að sann­færa flokks­menn um hið sama, en veru­leg ólga hefur verið í þing­liði flokks­ins und­an­farna daga og hreint ekki allir á eitt sáttir um ágæti þeirrar nýju efna­hags­stefnu sem Truss og Kwarteng boða. Jafnvel hefur verið kallað eftir afsögn Kwarteng nú þegar.

Kannanir sýna sögulega mikla forystu Verkamannaflokksins

Skoð­ana­kann­anir í vik­unni hafa komið hreint bölv­an­lega út fyrir nýja rík­is­stjórn Íhalds­flokks­ins. Könnun frá YouGov sem birt var á fimmtu­dag sýndi hvorki meira né minna en 33 pró­sentu­stiga for­skor Verka­manna­flokks­ins, sem mæld­ist með 54 pró­senta fylgi á lands­vísu gegn 21 pró­sents fylgi Íhalds­flokks­ins.

Aðrar kann­anir hafa sýnt minna for­skot, en þó mjög afger­andi for­ystu og gríð­ar­mikið fylgi Verka­manna­flokks Keir Starmer, sem hefur í vik­unni talað með ein­örðum hætti fyrir því að Truss og Kwarteng dragi til­lögur sínar um skatta­lækk­anir til baka.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár