Mynd: Bára Huld Beck

Forsætisráðherra segir allan þingheim þurfa að sýna forystu

Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra sagði að íslenskt sam­fé­lag þyrfti að standa saman við þær aðstæður sem eru uppi í ræðu á þingi í dag. „ Við vitum að þetta verður erfitt, en staðan er góð, inn­við­irnir eru traustir“

„Ég vil segja það að mark­viss og traust við­brögð skipta sköpum í aðstæðum eins og við glímum nú við. Aðgerðir stjórn­valda munu miða við að styðja við atvinnu­lífið og fólkið í land­inu, enda er það tengt órjúf­an­legum böndum.“

Þetta sagði Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra á Alþingi í dag þegar hún gaf munn­lega skýrslu um aðgerðir stjórn­valda í efna­hags­málum vegna veiru­far­ald­urs­ins sem nú geisar.

Katrín kynnti engar nýjar aðgerðir en fór yfir það sem þegar verið verið lagt á borðið og sagði að mestu máli skipti að aðgerðir stjórn­valda verði mark­vissar, rétt­látar og skyn­samar. „Gerum okkur grein fyrir því, við sem hér sitjum, að íslenskt sam­fé­lag stendur frammi fyrir mik­illi áskorun. Og það er áskorun sem er mik­il­vægt að við mætum í sam­ein­ingu og leggjum öll okkar að mörkum til að sigr­ast á henni. Þar er hlut­verk okkar allra mik­il­vægt, bæði rík­is­stjórnar en ekki síður þings­ins. Við þurfum öll að sýna for­ystu til þess að við getum tek­ist á við þessa áskorun með sóma­sam­legum hætti.“

Í nið­ur­lagi ræðu sinnar sagði for­sæt­is­ráð­herra að stjórn­völd myndu gera allt sem í þeirra valdi stendur til að tryggja að yfir­stand­andi hremm­ingar verði tíma­bundnar og að íslenskt sam­fé­lag muni standa sterkara eftir en áður. „Við þurfum sem sam­fé­lag að standa saman við þessar aðstæður og það skiptir máli að við öll sendum þau skýru skila­boð út í sam­fé­lagið. Ef okkur ber gæfa til þess þá hef ég ekki áhyggjur af því að okkur muni lán­ast að gera þetta eins vel og við getum. Við vitum að þetta verður erfitt, en staðan er góð, inn­við­irnir eru traustir og við höfum alla mögu­leika á því að mæta þess­ari áskorun af sóma.“

Ferðabannið „áfall“

Í ræð­unni fór Katrín yfir það að hún telur íslensk stjórn­völd hafa verið vel und­ir­búin undir þann veiru­far­aldur sem nú geisar vegna veirunnar sem veldur COVID-19 sjúk­dómnum. Hér hefði verið lögð áhersla á að hlífa veiku fólki og lág­marka álag á heil­brigð­is­kerfið. Sagði hún þær aðgerðir sem þegar hefði verið gripið til vera til mik­illar fyr­ir­myndar og að ánægju­legt væri hversu alvar­lega almenn­ingur hefði almennt tekið stöð­una.

Stjórn­völd muni hins vegar ekki hika viðað beita öllum þeim úrræðum sem þau eigi til­tæk, hvort sem það sé á sviði heil­brigðis- eða efna­hags­mála, við að koma land­inu í gegnum þá stöðu sem sé uppi. Sú staða sé þó tíma­bundin, en ekki var­an­legt ástand.

Katrín fór yfir þá ákvörðun Banda­ríkja­for­seta að setja ferða­bann á Ísland, þær afleið­ingar sem það hefur þegar haft á íslenskan hluta­bréfa­markað og þær sem gætu orðið til lengri tíma, sér­stak­lega á ferða­þjón­ustu. Hún sagði að ákvörð­unin væri áfall og að íslensk stjórn­völd væru búin að gera þeim banda­rísku grein fyrir afstöðu sinni til hennar.

Far­ald­ur­inn væri að skekja öll opin hag­kerfi í heim­inum og Ísland væri þar engin und­an­tekn­ing. Neikvæð áhrif væru þegar komin fram í formi minnk­andi eft­ir­spurnar sem myndi leiða til minni tekna. Þá gætu falist vand­kvæði í því að ekki myndu fást aðföng í mik­il­væga fram­leiðslu.

Fór yfir fyrri aðgerðir en kynnti engar nýjar

Ljóst sé að þörf sé á við­spyrnu og að for­sendur fjár­mála­á­ætl­unar séu þegar brostnar. Ný slík verður lögð fram í maí, eða eftir tvo mán­uði. Katrín sagði að það þyrfti að horfa til lengri og skemmri tíma þegar áhrif af stöð­unni væru metin.

Hún fór svo yfir þær aðgerðir sem kynntar voru á þriðju­dag á blaða­manna­fundi, sem voru sjö tals­ins. Í þeim pakka voru meðal ann­ars aðgerðir sem þegar höfðu verið kynntar, eins og til­færsla á inn­stæðum Íbúða­lána­sjóðs úr Seðla­banka Íslands og yfir til við­skipta­banka til að auka laust fé innan þeirra.

Þá hafði áður verið greint frá því að aukin kraftur yrði settur í fjár­fest­ingar hins opin­bera og engar nýjar slíkar til­greindar á blaða­manna­fundi rík­is­stjórn­ar­innar. Þar var hins vegar greint frá því að fyr­ir­tækjum sem lenda í tíma­bundnum rekstr­ar­örð­ug­leik­um ­vegna tekju­falls verði veitt svig­rúm, t.d. með lengri fresti til að standa skil á sköttum og opin­berum gjöld­um og að gistin­átta­skattur verði felldur niður. Hann hefur skilað rúm­lega einum millj­arði króna í tekjum á und­an­förnum árum en fyrir liggur að gistin­átta­skatt­ur­inn, sem er 300 krónur á hverja selda gistinótt, mun hvort eð er skila mun minna í tekjur fyrir rík­is­sjóð ef ferða­menn eru ekki að koma til lands­ins.

Þá greindi rík­is­stjórnin frá því að hún ætl­aði í mark­aðsá­tak erlendis „þeg­ar að­stæður skap­ast til þess að kynna Ísland sem áfanga­stað, auk átaks til að hvetja til ferða­laga Íslend­inga inn­an­lands.“

Virkt sam­tal um hvernig bankar eigi að taka á stöðu fyr­ir­tækja sem geta ekki staðið við greiðslur af lánum né almennar rekstr­ar­greiðslur, eins og launa­greiðslur, hefur verið í gangi en engin nið­ur­staða kynnt um hvernig þeim málum verði háttað að öðru leyti en að til standi að reyna að fleyta „líf­væn­legum fyr­ir­tækjum“ í gegnum þann kúf sem framundan er.

Katrín ræddi líka í ræðu sinni um að áhrif af þeim aðgerðum sem ríkið skuld­batt sig til við gerð lífs­kjara­samn­ing­anna væru nú að koma til fram­kvæmda á hár­réttum tíma­punkti og benti á að fyrir lægi frum­varp sem tryggði að laun allra sem sitja í sótt­kví verði greidd. Enginn þurfi því að ótt­ast um afkomu sína á meðan að við­kom­andi er í sótt­kví og sagði að það væru fjarri því allar þjóðir að beita sótt­kví­ar­úr­ræð­inu til að hindra útbreiðslu veirunnar. Við gætum hins vegar gert það vegna þeirrar yfir­sýnar sem væri hægt að hafa hér­lendis, þar sem alþjóða­flug­völl­ur­inn væri ein­ungis einn og þjóðin fámenn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið undanfarið ár