Grikkir sagðir búa sig undir greiðslufall í lok mánaðar

Grikkir búa sig nú undir mögu­leik­ann á gjald­þroti rík­is­ins, sam­kvæmt nýj­ustu fréttum. Ríkið þarf nauð­syn­lega að fá aukið fjár­magn frá lán­ar­drottnum sínum en samn­inga­við­ræður þess efnis hafa ekki borið árangur enn.

Ef stjórn­völd fá ekki næsta skammt af neyð­ar­lánum fyrir 24. apríl aukast lík­urnar á greiðslu­falli tölu­vert. 24. apríl er áætl­aður fundur í evru­hópnum svo­kall­aða, fundi fjár­mála­ráð­herra evru­ríkj­anna. Upphæðin sem Grikkir ættu að fá nemur 7,2 millj­örðum evra.

Financial Times greinir frá því í dag að ekki aðeins sé algjört greiðslu­fall að verða lík­legri kostur í stöð­unni heldur virð­ist sem stjórn­völd séu farin að gera áætl­anir um gjald­þrot. Stjórn­völd báru þessar fregnir þó til baka, en miðað við stöð­una í land­inu þykir mörgum ólík­legt annað en að þessi mögu­leiki sé í það minnsta í skoðun.

FT hefur eftir heim­ild­ar­mönnum, sem hafa fengið kynn­ingu á stöðu mála hjá stjórn­völdum, að ef ekki tekst að semja við Evr­ópu­sam­bandið, Seðla­banka Evrópu og Alþjóða­gjald­eyr­is­sjóð­inn fyrir lok apríl verði greiðslu­falli rík­is­ins lýst yfir.

Rík­is­stjórnin hefur ákveðið að greiða þá ekki 2,5 millj­arða evra end­ur­greiðslur til AGS í maí og júní, ef til þessa kemur. Stjórn­völd eru óðum að verða uppi­skroppa með fé til að borga opin­berum starfs­mönnum laun og líf­eyri. „Við erum komin á enda­stöð...ef Evrópa greiðir ekki neyð­ar­lán þá er eng­inn annar val­kostur,“ hefur FT eftir emb­ætt­is­manni á vegum rík­is­stjórn­ar­innar.

Viðræður um áfram­hald­andi aðstoð ESB og AGS við Grikki eru hafnar á nýjan leik, en hafa ekki verið mjög árang­urs­ríkar hingað til. Þá er vert að hafa í huga að sú aðstoð sem nú er samið um er ein­göngu tíma­bundin og átti að brúa fjög­urra mán­aða bil. Jafnvel þótt samið verði verður sama staða komin upp aftur innan skamms.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár