Topp 10: Afdrifaríkustu ákvarðanir knattspyrnustjóra

Enska úrvals­deildin hefst 8. ágúst þegar fyrsta umferð tíma­bils­ins hefst en á morgun keppa Eng­lands­meist­arar Chelsea og bik­ar­meist­arar Arsenal um góð­gerð­ar­skjöld­inn. Þessi vin­sælasta deild­ar­keppni heims­ins á sér marga fylgj­endur um allan heim enda spennan oft raf­mögnuð og ástríða áhorf­enda fyrir leiknum næstum áþreif­an­leg.

Kast­ljósið bein­ist ekki síður að knatt­spyrnu­stjórum félag­anna tutt­ugu sem reyna að stýra liðum sínum til sig­urs í hverjum leik og byggja upp lið með því að kaupa og selja leik­menn, oft ótt og títt.

Margar ákvarð­anir knatt­spyrnu­stjóra í sögu úrvals­deild­ar­innar hafa reynst afdrifa­ríkar þegar leik­manna­málin eru ann­ars vegar. Kjarninn tók saman lista yfir tíu afdrík­ustu ákvarð­anir knatt­spyrnu­stjóra í enskri knatt­spyrnu á síð­ustu 25 árum.



  1. Salan á Gordon Strachan til Leeds – Seldur á slikk




Howard Wilkinson, þáver­andi knatt­spyrnu­stjóri Leeds United, náði að sann­færa Gordon Strachan um að koma til félags­ins árið 1989. Strachan var þá 32 ára. Alex Ferguson, knatt­spyrnu­stjóri Manchester United, var búinn að vera við stjórn­völd­inn í þrjú ár án þess að vinna deild­ina á þessum tíma og sá ekki fram á að geta notað Strachan í liði sínu en hann hafði í fimm ár verið lyk­il­maður hjá Manchester United. Ferguson var í mik­illi til­tekt í leik­manna­hópnum og hefur sjálfur frá því greint , meðal ann­ars í bók­inni Managing My Life, að meðal þess sem hann var að gera á þessum fyrstu árum hjá félag­inu, var að taka á drykkju­kúltur innan þess og aga­vand­málum (Paul McGrath var lát­inn fara til Aston Villa, hann var val­inn leik­maður árs­ins 1994). Hann þurfti að byggja upp nýjan leik­manna­hóp og efla ung­linga­starfið. En Strachan var frá­bær leik­maður og 200 þús­und punda kaup Wilkinson reynd­ust afdrifa­rík fyrir topp­bar­átt­una á Englandi. Strachan var hluti af frá­bærri miðju Leeds sem end­aði í fjórða sæti tíma­bilið 1990-91, og var hann kos­inn leik­maður árs­ins á Englandi. Með honum á miðj­unni voru Gary McAllister, David Batty og Gary Speed. Ári seinna, tíma­bilið 91-92, tók hann við titl­inum sem fyr­ir­liði Leeds og hafði þar betur gegn fyrr­ver­andi knatt­spyrnu­stjóra sínum Alex Ferguson og Manchester United, sem end­aði í 2. sæti. En Ferguson lét þetta ekki á sig fá, svo ekki sé meira sagt.

https://www.youtube.com/watch?v=PpMsn1CshYI



  1. Patrick Vieira mætir til Arsenal – Leiðtogi fæddur




Franski miðju­mað­ur­inn Patrick Vieira kom til Arsenal, tví­tugur að aldri, eftir mis­heppn­aða dvöl hjá AC Milan. Þangað fór hann frá Cannes, og þótti mikið efni; teknískur og hávax­inn miðju­maður, með mikla leið­toga­hæfi­leika. Arsene Wenger, knatt­spyrnu­stjóri Arsenal, keypti Vieira á 3,5 millj­ónir punda árið 1996 og ráku margir upp stór­augu þegar til­kynnt var um þessi vista­skipti Frakkans hávaxna. Hvaða maður var þetta eig­in­lega? Hann hafði aðeins spilað tvo leiki fyrir aðal­lið AC Milan, en mest verið í vara­lið­inu, og þótti ekki nógu góður fyrir félagið hans Berlusconi. Hvernig hann átti að verða lyk­il­maður hjá Arsenal þótti mörgum hulin ráð­gáta. Vieira sýndi strax að hann var eng­inn venju­legur miðju­maður heldur efni í einn þann allra besta. Hann var frá­bær bæði í vörn og sókn og gjör­sam­lega keyrði yfir marga þá bresku miðju­menn sem oft voru sagðir vera harðir í horn að taka. Þeir réðu ekk­ert við Vieira og félaga, og með fyr­ir­liða­bandið fór hann fyrir sínu liði. Hann varð í þrí­gang enskur meist­ari, meðal ann­ars árið 2004 þegar Arsenal tap­aði ekki leik í deild­inni. Þessi ákvörðun Wengers, að veðja á Frakkann unga, var afdrifa­rík til góðs fyrir Lund­úna­fé­lagið og ein af ástæðum þess að lið Arsenal var ill­við­ráð­an­legt árum saman.

https://www.youtube.com/watch?v=jbdwKW93P_g



  1. Beardsley frá Liverpool til Everton – Souness glórulaus




Enski sókn­ar­miðju­mað­ur­inn Peter Beardsley var einn af lyk­il­mönnum í sig­ur­sælu liði Liverpool á árunum 1987 til 1991. Hann lék 131 leik og skor­aði 46 mörk, eða að með­al­tali meira en mark í þriðja hverjum leik. Tíma­bilið 1990/91 var vand­ræða­gangur hjá Liverpool miðað við sig­ur­sælt tíma­bil árin á undan. Kenny Dalglish keypti fram­herjan David Speedie til þess að hressa upp á sókn­ar­leik­inn, og var Beardsley tek­inn út úr lið­inu í nokkra leiki. Nokkrum vikum síðar sagði Dalglish upp og hætti, og skoski harð­haus­inn Graeme Souness tók við stjórn­ar­taumunum. Hann boð­aði nýja og betri tíma og ætl­aði sér að losa sig við leik­menn sem ekki ættu fram­tíð hjá félag­inu. Beardsley fór í kjöl­farið til Everton og lék þar mjög vel. Árið 1993 var hann síðan keyptur til Newcastle þar sem hann var ein aðaldrif­fjöð­urin í sókndjörfu liði undir stjórn Kevin Keegan. Skoraði 47 mörk í 129 leikjum fyrir félagið á fjög­urra ára tíma­bili. Þetta var annað skeiðið á ferl­inum sem hann lék með Newcastle en þar lét hann einnig ljós sitt skína á árunum 1983 til 1987. Souness hefði betur átt að halda Beardsley hjá Liverpool frekar en að láta hann frá sér, eins og frá­bær frammi­staða hans næstu sex ár á eftir sýndi glögg­lega.

https://www.youtube.com/watch?v=uBlha9_fxRE



  1. Cantona í Sheffield – Fékk ekki samning!




Árið er 1992 og það er jan­úar. Trevor Francis, knatt­spyrnu­stjóri Sheffi­eld Wednesday, var í vand­ræðum með liðið sitt og fékk hring­ingu frá gömlum umboðs­manni sínum, Dennis Roach. Úr varð að franskur vand­ræða­gemsi, Eric Cantona, mætti til æfinga hjá Sheffi­eld í þeirri von að fá samn­ing. Hann æfði í tvo daga en Francis ákvað að bjóða honum ekki samn­ing. Sú ákvörðun reynd­ist afdrifa­rík enda átti Cantona eftir að verða goð­sögn á Englandi. Francis hefur varið þessa ákvörðun sína og sagt að ástæð­urnar fyrir þess­ari ákvörðun hafi verið aðrar en þær að hann hafi ekki talið Cantona nægi­lega góðan leik­mann. Ein helsta ástæðan hafi verið sú að slæmt veður hafi gert það að verkum að ekki var hægt að æfa á grasi. Í stað­inn þurfti að fara með leik­menn inn í íþrótta­hús og láta þá hlaupa og gera tækni­æf­ingar. Cantona hafi ekki sýnt neitt sem hafi kallað á samn­ing. Auk þess hafi ýmis­legt úr for­tíð Cantona í Frakk­landi, þar sem hann fékk ítrekað rauð spjöld, ekki verið til þess að styrkja skyndi­á­kvörðun. Í ljósi þess að Cantona varð goð­sögn með frammi­stöðu sinni hjá Leeds og Manchester United, eftir að Francis hafði neitað honum um samn­ing, verður að segja alveg eins og er, að það var algjör­lega óverj­andi fyrir félag eins og Sheffi­eld Wednesday að semja ekki við Cantona án þess að þurfa að greiða neitt fyrir hann. Trevor Francis hefur engar afsak­anir. Alveg ægi­lega afdrifa­rík mis­tök.

https://www.youtube.com/watch?v=r8vnfUrXcdk



  1. Frank Lampard færði sig til í London




Ítalinn Claudio Ranieri stýrði liði Chelsea árið 2001 og ákvað að kaupa ungan enskan miðju­mann frá West Ham United, Frank Lampard, fyrir tíu millj­ónir punda. Sumum þótti þetta alltof hár verð­miði, og má vafa­lítið deila um hvað er sann­gjart í þeim efnum á hverjum tíma. En Frank Lampard átti eftir að sýna og sanna að þessi kaup hjá Ranieri væru ekki bara rétt heldur afdrifa­rík fyrir sögu Chelsea. Lampard er án nokk­urs vafa einn allra besti leik­maður í sögu Chelsea og var hann lyk­il­maður í upp­gangi Chelsea og á tíma­bil­unum þar sem deild­ar­meist­ara­tit­ill­inn vannst þegar hann lék með félag­inu. Ótrúleg töl­fræði hans þegar kemur að marka­skorun segir sína sögu. Hann er marka­hæsti leik­maður í sögu Chelsea með 211 mörk í öllum keppnum, og marka­hæsti miðju­maður í sögu ensku úrvals­deild­ar­innar. Ranieri getur ekki verið stoltur af öllu á sínum ferli hjá Chelsea, en í maí á þessu ári sagði hann í við­tali við Sky Sports að Lampard væri besti leik­maður sem hann hefði þjálfað á löngum ferli. Ekki Totti. Ekki Zola. Ekki Batistuta. Ekki Del Piero. Heldur Lampard.

https://www.youtube.com/watch?v=JtiJ-COs6Fc



  1. Henry kom sá og sigraði




Thierry Henry var mest not­aður á hægri kant­inum hjá Juventus og fann sig aldrei þar almenni­lega. Arsene Wenger, sem þjálf­aði hann þegar hann steig sín fyrstu skref hjá Mónakó, vissi af hæfi­leikum þessa frá­bæra leik­manns en taldi best að nota hann í fram­lín­unni. Hann sló til og keypti hann á ell­efu millj­ónir punda árið 1999. Nánast um leið og hann steig fæti inn á knatt­spyrnu­völl í Arsenal bún­ingnum varð ljóst að Wenger hafði tekið adrifa­ríka ákvörðun fyrir félagið með því að fá Henry til félags­ins. Hann blómstr­aði í fram­lín­unni við hlið­ina á hinum frá­bæra Dennis Bergkamp, vann titla og var óstöðv­andi, einkum á árunum 2001 til 2005. Henry lék með Arsenal í átta ár og skor­aði sam­tals 224 mörk í 377 leikjum og er marka­hæsti leik­maður í sögu félags­ins. Hann fór til Barcelona árið 2007 og lék þar til árs­ins 2010, áður en hann flutti til New York til að spila með NY Red Bulls. Hann lagði skóna end­an­lega á hill­una í fyrra.

https://www.youtube.com/watch?v=0ejI30Yx6UA



  1. Írinn ungi sem breyttist í fótboltaafl




Goð­sögnin Brian Clough gaf Roy Keane fyrst tæki­færi þegar hann kom inn á gegn Liverpool á Anfield Road með Nott­ing­ham Forrest árið 1990. Hann kall­aði á hann á hlið­ar­lín­unni; „Come here, Irish boy“ og sagði honum að láta finna fyrir sér. Það gerði hann og leit aldrei til baka á ferl­inum eftir þetta, ef svo má að orði kom­ast. Alex Ferguson, knatt­spyrnu­stjóri Manchester United, sá leið­toga­hæfi­leika í Keane og keypti hann fyrir metfé, 3,75 millj­ónir punda, árið 1993. Ekki var aug­ljóst að Keane myndi kom­ast í byrj­un­ar­lið Man. Utd. þar sem fyrir voru Paul Ince og Bryan Robson á miðri miðj­unni. En fljót­lega varð ljóst að Keane átti eftir að taka völdin og verða hálf­gert fót­bolta­afl, svo magn­aður sig­ur­veg­ari var hann. Frá árinu 1997 var hann fyr­ir­liði Manchester United á einu mesta blóma­skeiði í sögu félags­ins. Hann hætti hjá félag­inu 2005, eftir deilur við Ferguson og fór til Celtic í Skotlandi þar sem hann lauk ferli sínum sem leik­maður ári síðar. Á tólf árum hjá Manchester United varð hann sjö sinnum Eng­lands­meist­ari og vann sam­tals þrettán titla. Þegar Keane lék sem best virt­ist hann vera í flestum stöðum á vell­inum. Slík var yfir­ferðin og vinnu­semin í þessum klóka og frá­bæra knatt­spyrnu­manni. Alex Ferguson veðj­aði á réttan hest þegar hann keypti Keane ungan að árum og lét hann bera fyr­ir­liða­bandið.

https://www.youtube.com/watch?v=Mlc5D8E4irM



  1. Ungur Portúgali lék sér að John O‘Shea og var keyptur




Cristiano Ronaldo var átján ára gam­all þegar Alex Ferguson ákvað að kaupa hann til Manchester United. Meg­in­á­stæðan fyrir því að hann ákvað að slá til og kaupa þennan unga og efni­lega Portú­gala var frammi­staða hans í æfinga­leik gegn Sporting frá Lissabon, þar sem Ronaldo var í aðal­hlut­verki. Írinn John O´Shea var í því að dekka hann lengst af leik og mátti sín lít­ils gegn hraða og tækni Ronaldo. Strax í fyrsta leik sínum í ensku úrvals­deild­inni, gegn Bolton 16. ágúst 2003, sló Ronaldo í gegn. Hann spil­aði í rúman hálf­tíma og tætti varn­ar­menn Bolton í sig með frá­bærum til­þrifum. Árin á eftir átti það eftir að verða venjan hjá honum í bún­ingi Manchester United að gera and­stæð­ing­unum lífið leitt. Eftir sex ár var hann seldur fyrir metfé til Real Madrid þar sem hann hefur haldið áfram að raða inn mörkum og vinna titla. Hann hefur auk þess í þrí­gang verið val­inn leik­maður árs­ins hjá FIFA, sem er eitt­hvað sem eng­inn annar leik­maður sem leikið hefur í ensku úrvals­deild­inni hefur náð að afreka. Líklega mun Ronaldo fara í sögu­bækur enskrar knatt­spyrnu sem einn allra besti, ef ekki besti, leik­maður sem leikið hefur í ensku úrvals­deild­inni.

https://www.youtube.com/watch?v=m2ha1a74hm8



  1. Skapbráður Frakki færði ungum mönnum sjálfstraust




Árið 1992 hafði Leeds United betur gegn Manchester United í bar­áttu um enska meist­ara­tit­il­inn. Þó margir góðir leik­menn hafi leikið með Leeds þá reynd­ist Frakkinn Eric Cantona drjúgur fyrir þessa erki­fj­endur og nágranna Man. Utd. Alex Ferguson greip tæki­færi sem honum bauðst, sum­arið 1992, og keypti Cantona til Man. Utd. fyrir 1,2 millj­ónir punda. Þrátt fyrir að hann haf leikið stórt hlut­verk í liði Leeds þá taldi Howard Wilkinson að hann hefði ekki not fyrir hann áfram. Ferguson heill­að­ist af hinum óút­reikn­an­lega Cantona og taldi að hann gæti veitt ungum leik­mönnum liðs­ins inn­blástur með óút­reikn­an­legum hæfi­leikum sínum og sjálfs­trausti. Þrátt fyrir aga­vanda­mál, meðal ann­ars tíð ásetn­ings­brot og hreint og klárt ofbeldi (réðst á áhorf­anda gegn Crystal Palace 25. jan­úar 1995 og hlaut níu mán­aða keppn­is­bann fyrir), þá reynd­ust kaupin á Cantona gríð­ar­lega afdrifa­rík fyrir ungt lið Manchester United sem var í mótun á þessum tíma. Titl­arnir komu á færi­bandi strax frá hans fyrsta tíma­bili og oftar en ekki var það Cantona, með snilli sinni og útsjón­ar­semi, sem gerði gæfumun­inn, oft á síð­ustu stundu í mik­il­væg­ustu leikj­unum. Það sem verður líka að telj­ast óvenju­legt var hversu mikið traust Ferguson sýndi þessum skap­bráða Frakka. En það sýnir kannski öðru fremur hversu mikla og óvenju­lega hæfi­leika hann hafði.

https://www.youtube.com/watch?v=r7RMfj4WRRw



  1. Krakkaliðið sem tók við keflinu




Skotinn Alan Hansen, sem var varn­ar­klettur í sig­ur­sælu liði Liverpool á níunda ára­tug síð­ustu aldar, lét hafa eftir sér í beinni útsend­ingu í sjón­varpi, eftir að Man. Utd. tap­aði gegn Aston Villa 3-1 haustið 1995, að það væri ekki hægt að vinna ensku deild­ina með krakka í lið­inu. („You don´t win anyt­hing with kids“). Vísaði hann þar til þess að ungir leik­menn Man. Utd., undir stjórn Alex Ferguson, virt­ust ekki til­búnir til þess að halda sig­ur­kyndl­inum á lofti. Í sjálfu sér var þetta ekki endi­lega galin yfir­lýs­ing hjá Hansen, á þeim tíma­punkti sem hún kom úr munni hans, en óhætt er að segja að hann hafi ekki verið að greina stöð­una rétt miðað við það sem á eftir fór. Ferguson tók mikla áhættu með því að veðja á unga leik­menn í bland við eldri, ekki síst Frakkann Cantona. Roy Keane, David Beckham, Paul Scholes, Andy Cole, Nicky Butt, Gary Neville, Phil Neville og Ryan Giggs töld­ust allir til ungra leik­manna, sem þó voru með mikla leik­reynslu. Giggs var til dæmis búinn að vera lyk­il­maður frá því árið 1991 en var þó, tæp­lega fjórum árum síðar, aðeins tæp­lega 22 ára gam­all (Hann lék í 23 ár með Man. Utd. Hætti vorið 2014!), og Roy Keane var einnig búinn að stimpla sig inn í liðið sem lyk­il­maður. En þrátt fyrir þetta var ekki aug­ljóst að þetta unga lið gæti farið alla leið og unnið. Það var það sem gerð­ist og eftir fylgdi langt sig­ur­tíma­bil þar sem „krakk­arnir“ voru kjarn­inn sem allt snérist um og var aldrei haggað, þó leik­menn kæmu og færu.

https://www.youtube.com/watch?v=3Es-RIBnba8

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár