Dugnaðarforkurinn Jessica Alba

Leik­konan Jessica Alba er snjöll í við­skiptum og nýsköpun. Því til sönn­unar er fyr­ir­tækið The Honest Company, sem sótt hefur meira en 122 millj­ónir Banda­ríkja­dala, eða sem nemur meira en 16 millj­örðum króna, til sex fjár­festa. Það er nú að sækja meira fé, sam­kvæmt fréttum frá því í gær, á grund­velli verð­miða upp á tæp­lega tvo millj­arða Banda­ríkja­dala, eða sem nemur tæp­lega 270 millj­örðum króna.

Ólíkt mörgum öðrum fyr­ir­tækjum sem eru að stíga sín fyrstu skref þá hefur The Honest Company tek­ist að byggja upp traustar og hratt vax­andi tekjur, sem námu rúm­lega 150 millj­ónum Banda­ríkja­dala í fyrra, og þykja fram­tíð­ar­mögu­leik­arnir vera miklir.

Hvað gerir fyrirtækið?


Í stuttu mál vildu stofn­endur fyr­ir­tæk­is­ins, Jessica Alba og Christopher Gavigan, bjóða upp á vist­vænar bleyjur og aðrar nauð­synja­vörur fyrir börn. Í fyrstu var ein­blínt á bleyjur og klúta, en síðan hefur fyr­ir­tækið breyst í að vera mið­punktur fyrir vist­vænar vörur fyrir börn sem hægt er að kaupa í áskrift og beint í gegnum netið. Þar komu Sean Kane, for­maður stjórnar félags­ins, og Brian Lee, for­stjóri, til sög­unnar. Þeir hafa báðir mikla reynslu af stofnun fyr­ir­tækja.

Meðal þess sem fyr­ir­tækið selur eru líf­ræn og vist­væn krem og vökvar, en auk þess eru reknar rann­sókn­ar­stofur á vegum fyr­ir­tæk­is­ins sem kanna gæði ákveð­inna efna sem notuð eru í vörur fyr­ir­tæk­is­ins. Tekj­urnar koma einkum í gegnum hratt vax­andi áskrift­ar­kerfi og sam­fé­lag sem orðið hefur til í kringum við­skipta­vini fyr­ir­tæk­is­ins og þjón­ustu þess, sem stað­settir eru fyrst og fremst í borgum, ekki síst í Kali­forníu, þar sem fyr­ir­tækið er með höf­uð­stöðvar. En mark­miðið er að byggja upp alþjóð­lega starf­semi í meira mæli þegar fram í sækir. Starfs­menn eru nú um 400 tals­ins, og starfar stærstur hluti þeirra við síma­svörun í höf­uð­stöðv­unum í Santa Monica og fleira sem snýr að þjón­ustu við við­skipta­vini (Customer Support), en for­rit­arar og sér­fræð­ingar í vöru­þróun eru einnig fjöl­mennir í hópnum.

https://www.youtube.com/watch?v=j96ahWHIt7Q

Snjall vinnuþjarkur


Jessica Alba, sem er gift 34 ára gömul tveggja barna móðir, hefur orð á sér fyrir að vera eit­ur­snjöll, yfir­veguð og mik­ill dugn­að­ar­forkur. Hún mætir í vinnu hjá The Honest Company alla virka daga, nema þegar töku­dagar fyrir leik- eða fyr­ir­sætu­störf þurfa hennar tíma. Samkvæmt umfjöllun Forbes, þar sem hún var í ítar­legu við­tali 27. maí síð­ast­lið­inn, þá eru eignir hennar metnar á 200 millj­ónir Banda­ríkjdala nú þegar, en ljóst má vera að ört hækk­andi verð­miði á fyr­ir­tæk­inu sem hún á stóran hluta í hækkar virði eigna hennar hratt. Í við­tal­inu kemur fram að eign­ar­hlutur hennar sé á milli 15 og 20 pró­sent.

Notar nafn sitt til góðs


Að baki hug­mynd­inni býr sú hug­mynd að breyta til góðs neyslu­venjum og lifn­að­ar­háttum, svo að börn geti búið við örugg­ara líf, og þar með fjöl­skyldur þeirra. Þannig lýsir hún grunn­vanda­mál­inu sem hún vildi reyna að leysa. Hún seg­ist heppin með með­stjórn­endur og bjart­sýn á að fyr­ir­tækið verði far­sælt þegar fram í sækir. Hún sé hins vegar rétt að byrja.

Í mark­aðs­setn­ingu á fyr­ir­tæk­inu hefur hún notað frægð sína til að fá athygli, en um leið notað tæki­færið til þess að breyta ímynd sinni sem sæta stelpan í frekar lélegum bíó­myndum og kyn­tákn, en hún hefur oftar en einu sinni verið kosin kyn­þokka­fyllsta kona heims, meðal ann­ars af FHM tíma­rit­inu árið 2006.

Eftir að hún lauk fjár­mögnun upp á 70 millj­ónir Banda­ríkja­dala, rúm­lega 10 millj­arða króna, í ágúst í fyrra, þar sem fjár­magn var sótt til fjár­fest­inga­sjóða í Kali­forníu, þá gerðu flestir sér grein fyrir því að það væri greini­lega mikið í hana spunnið sem frum­kvöðul og með­starfs­menn hennar sömu­leiðis.

Brian Lee, for­stjóri fyr­ir­tæk­is­ins, sagð­ist í við­tal­inu við Forbes hafa fengið 50 síðan glæru­pakka sendan frá Jessicu, áður en fyr­ir­tækið varð til, þar sem farið var yfir hug­mynd­ina að baki fyr­ir­tæk­inu. Þá hafi hann áttað sig á því að þetta væri góð hug­mynd sem hefði mögu­leika á því að verða að fyr­ir­tæki, ef rétt væri haldið á spöð­unum og heppnin væri með teym­inu. Fyrstu hindr­an­irnar hafa verið yfir­s­tignar en þrátt fyrir að allt hafi gengið að óskum til þessa, og fyr­ir­tækið leiti nú að enn meira fjár­magni til vaxtar, þá er ekki þar með sagt að enda­laus vel­gengni muni ein­kenna fyr­ir­tækið til fram­tíðar. Sam­keppnin er hörð og það getur hallað hratt undan fæti ef ekki er haldið rétt á spil­unum, eins og Jessica segir raunar sjálf í við­tali við Forbes.

Vörurnar frá The Honest Company hafa sumar fengið á sig gagn­rýni, meðal ann­ars sól­ar­vörn fyrir börn sem þykir ekki virka nægi­lega vel. Alba segir sjálf að þau reyni að hafa vör­urnar alveg til­búnar áður en þær fara á markað, en stundum tak­ist það ekki nægi­lega vel. Það sé eitt­hvað sem rann­sókn­ar­stofa fyr­ir­tæk­is­ins sé að reyna að ná betri tökum á.



RETWEET if you agree! #Honestly pic.twitter.com/jCGUtHM7nT


— The Honest Company (@Honest) August 9, 2015

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár