Pútín kominn í leitirnar

Vladimír Pútín Rúss­lands­for­seti er kom­inn í leit­irnar eftir miklar vanga­veltur und­an­farna daga um afdrif hans. Hann er mættur á fund með for­seta Kirgist­ans, Almazbek Atambayev, í St. Pét­urs­borg.

There he is, still break­ing hands. RT @dimsmirnov175: Судя по лицу Атамбаева, рукопожатие и Путина крепкое pic.twitter.com/dGnfZdjVsb

— Christopher Miller (@ChristopherJM) March 16, 2015

Pútín hafði ekki sést opin­ber­lega frá því 5. mars síð­ast­lið­inn. Und­an­farna daga hafa ýmsar sögu­sagnir kom­ist á kreik og þegar hann aflýsti opin­berri heim­sókn sinni til Astana, höf­uð­borgar Kasakstan, fóru af stað háværar sögu­sagnir um að Rúss­lands­for­seti hefði fengið heila­blóð­fall.

Þær voru bornar til baka en skömmu síðar bár­ust fréttir af því að Pútín væri dauður. Þær voru líka bornar til baka og þá spruttu upp fréttir í fjöl­miðlum víða um heim um að Pútín væri í raun í Sviss til að taka á móti barni sem hann sé að eign­ast í lausa­leik með einni af ást­konum sínum, en Pútín skildi við Lyudmilu, eig­in­konu sína til tæp­lega þriggja ára­tuga, í fyrra. Sú saga sem hefur verið líf­seig­ust er samt sú að ástæða þess að Pútín sést ekki opin­ber­lega sé sú að harð­vítug átök séu á meðal valda­el­ít­unnar í Kreml á bak­við tjöldin, og að þar séu öfl sem vilji svipta Pútín völdum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár