„Megum ekki glutra þessu úr höndunum á þessum tímapunkti“

„Órói“ í sam­fé­lag­inu um sótt­varna­ráð­staf­anir getur komið niður á sam­stöð­unni. „Ef brestir fara að koma í sam­stöð­una þá getum við auð­veld­lega séð hér aftur upp­sveiflu í far­aldr­inum,“ segir sótt­varna­læknir.

Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir.
Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir. Mynd: Almannavarnir

Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir segir að á meðan hann njóti góðs sam­starfs og stuðn­ings hjá bæði heil­brigð­is­ráð­herra og for­sæt­is­ráð­herra sé „engan bil­bug“ á sér að finna. Hann hafi því ekki íhugað að gef­ast upp og láta stjórn­mála­menn­ina um að taka við verk­efn­inu – bar­átt­unni við far­ald­ur­inn. „Ég vinn ekki þannig.“ Hann segir nið­ur­stöðu dóm­stóla um far­sótt­ar­húsin von­brigði og að gæta þurfi þess að brestir komi ekki í sam­stöð­una í sam­fé­lag­inu.

Enn er að grein­ast tals­verður fjöldi með kór­ónu­veiruna inn­an­lands dag­lega. Flestir eru „gleði­lega“ í sótt­kví við grein­ingu,“ sagði Þórólfur á upp­lýs­inga­fundi dags­ins. Í fyrra­dag greindust fimm á Suð­ur­landi utan sótt­kvíar með nýtt und­ir­af­brigði af breska afbrigð­inu sem ekki hefur greinst hér á landi áður. Ljóst þykir, að sögn Þórólfs, að sýk­ingin hafi upp­haf­lega komið með mann­eskju sem sýndi vott­orð um fyrri sýk­ingu á landa­mær­unum og var með mótefni. Hún þurfti því ekki að fara í skimun við kom­una til lands­ins. „Þannig virð­ist um end­ur­sýk­ingu að ræða og að sá hinn sami hafi borið smitið inn í hóp­inn sem setti af stað þessa hóp­sýk­ingu,“ sagði Þórólfur. Slíkt sagði hann „sem betur fer“ mjög sjald­gæft og „von­andi er hér um und­an­tekn­ingu að ræða“. Hann segir því enn sem komið er ekki ástæða til að breyta nálgun og við­brögð við far­aldr­inum en að vel þurfi að fylgj­ast með mál­inu. „Ef við sjáum fleiri end­ur­sýk­ingar gæti það breytt nálgun. Sjald­gæfir atburðir geta gerst og við þurfum að vera við­búin að takast á við það.“

Í gær greindust fjögur inn­an­lands­smit og var allt fólkið í sótt­kví við grein­ingu.

[adspot]

Frá því að hertar aðgerðir tóku gildi 25. mars hafa tæp­lega 80 manns greinst inn­an­lands, þar af 22 utan sótt­kvíar. Öll smitin eru af völdum breska afbrigð­is­ins. Á landa­mærum í gær greindust þrír með virkt smit – og frá 25. mars hefur 21 greinst með virkt smit, allir af breska afbrigð­inu.

Leki á landamærum

Á síð­ast­liðnum tveimur mán­uðum hafa 105 greinst á landa­mær­unum og 97 inn­an­lands og rakn­ing og rað­grein­ing sýnir að öll tengj­ast þau landa­mær­unum og fólki sem ekki hefur farið „eftir sinni fimm daga sótt­kví“ og því um „smit­leka“ að ræða. Þrjár hóp­sýk­ingar hafa orðið á þessum tíma. Ein sam­an­stóð af einni veiru­teg­und sem ekki hefur verið hægt að rekja til fulln­ustu og ekki til grein­ingar á landa­mær­unum. 48 smit tengj­ast sýk­ing­unni og á annað þús­und manns fóru í sótt­kví vegna hennar.

Í annarri hóp­sýk­ingu greindust tólf manns. Hún er rakin til mann­eskju sem kom til lands­ins og hélt ekki sótt­kví. Þriðja hóp­sýk­ingin, sem telur ell­efu manns, er einnig rakin til landamær­anna og mann­eskju sem ekki hélt reglur um sótt­kví.

„Þannig er greini­legt að nægi­legt er að nokkrir kom­ist í gegnum girð­ingar sem við höfum reist á landa­mær­unum til að setja af stað hóp­sýk­ingar og geta auð­veld­lega sett af stað nýja bylgju.“

Niðurstaða dómstóla vonbrigði

Þórólfur sagði nið­ur­stöður dóm­stóla vegna reglna sem skikk­uðu fólk frá háá­hættu­svæðum í sótt­varna­hús von­brigði fyrir sótt­varnir og þau sjón­ar­mið að hér sé verið að vernda heilsu almenn­ings“. Hann hefur því sent nýtt minn­is­blað til heil­brigð­is­ráð­herra með til­lögum að aðgerðum á landa­mær­unum, innan núver­andi lag­ara­mma, til að tryggja sem best að áfram hald­ist að halda far­aldr­inum í skefjum. „Þær eru að mínu mati ekki eins áhrifa­ríkar og fyrri til­lögur voru en von­andi munu þær skila til­ætl­uðum árangri.“

Spurður nánar út í til­lög­urnar sagði hann ýmis­legt hægt að gera, t.d. að skerpa á reglum um sótt­kví í heima­húsi og skýra betur hvað hús­næði þurfi að upp­fylla og hvaða skyldur fólk í sótt­kví þurfi að upp­fylla. Einnig sé hægt að auka eft­ir­lit með fólki í heima­sótt­kví og skerpa enn eft­ir­litið á landa­mær­unum.

[adspot]

Sótt­varna­læknir sagði að und­an­farið hafi verið „tölu­verður órói“ um þær sótt­varna­ráð­staf­anir sem hafa verið í gangi, einkum á landa­mær­unum. „Þetta finnst mér miður og ég tel að þessi órói geti komi niður á okkar sam­stöðu sem ein­kennt hefur okkar við­brögð til þessa. Ef brestir fara að koma í sam­stöð­una þá getum við auð­veld­lega séð hér aftur upp­sveiflu í far­aldr­inum. Eins og við erum að sjá í okkar nán­ast öllum nágranna­löndum. Við verðum von­andi á síð­ustu metr­unum í þessu lang­hlaupi og megum ekki glutra þessu út úr hönd­unum á þessum tíma­punkti.“

Þórólfur var spurður hvort aðgerðir inn­an­lands væru enn nauð­syn­legar í ljósi þess að bólu­setn­ing við­kvæm­ustu hópa sé komin vel á veg. „Við erum að byggja á því að við erum með breska afbrigðið,“ svar­aði hann og vís­aði til þess að erlendis væri útbreiðsla þess svo mikil, nán­ast í hverju ein­asta Evr­ópu­landi, og að yngra fólk væri að leggj­ast inn á sjúkra­hús en áður. Þetta hafi ekki enn sést hér enda náðst að halda útbreiðsl­unni í skefjum. „Það er engin ástæða til að halda það að útbreiðsla hér eins og við erum að sjá á hinum Norð­ur­lönd­unum myndi ekki valda mörgum inn­lögnum á sjúkra­hús. Raunar eru eru sum sjúkra­húsin þar alveg á þol­mörkum. Við verðum að koma í veg fyrir það eins fljótt og við getum. Það er of seint þegar þetta er allt farið af stað.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár