Grikkir óska eftir þriðju neyðarlánaveitingunni - fjármálaráðherrar funda

Gríska rík­is­stjórnin hefur lagt til nýjan samn­ing um neyð­ar­lán. Samn­ing­ur­inn er til tveggja ára og yrði þriðji neyð­ar­lána­samn­ing­ur­inn sem gerður yrði.

Samkvæmt grískum fjöl­miðlum myndi þessi neyð­ar­lána­samn­ingur taka gildi sam­hliða end­ur­skipu­lagn­ingu á skuldum Grikkja. Samn­ing­ur­inn yrði gerður í gegnum Evrópska stöð­ug­leika­kerfið (European Stability Mechanism) og án þátt­töku Alþjóða­gjald­eyr­is­sjóðs­ins.

Í til­kynn­ingu frá skrif­stofu for­sæt­is­ráðu­neyt­is­ins segir að Grikkir séu enn við samn­inga­borðið og leit­ist eftir líf­væn­legri lausn með það að mark­miði að halda áfram í evru­sam­starf­inu.

Skömmu áður en greint var frá þessu var blaða­manna­fundi með erlendum blaða­mönnum í Aþenu frestað á síð­ustu stundu. Það var gert vegna þess að halda þurfti neyð­ar­rík­is­stjórn­ar­fund.

Helena Smith, blaða­maður Guardian, er í Aþenu og hefur eftir ónefndum heim­ild­ar­mönnum að Alexis Tsipras for­sæt­is­ráð­herra fljúgi nú strax til Brussel.

Fyrir nokkrum mín­útum var bréfið sem sent var til Brussel birt á Twitter, eins og sjá má hér að neðan. Þar kemur meðal ann­ars fram að Grikkir óska eftir fram­leng­ingu á núver­andi sam­komu­lagi á meðan ákvörðun er tekin um næstu skref. Þeir óska einnig eftir því að skuldir verði end­ur­skipu­lagðar og þá kemur fram að þeir ætla sér að vera komnir með aðgang að alþjóð­legum fjár­magns­mörk­uðum eftir tvö ár.

Tsipras' letter to the #Eurogroup requesting 3rd bailout, debt restructuring. #Greece pic.twitter.com/ienUCymoVo

— Piers Scholfield (@inglesi) June 30, 2015

Jeroen Dijs­sel­bloem, for­seti Evru­hóps­ins, stað­festi fyrir skömmu að til­lög­urnar hefðu borist seinni part­inn í dag og að Evru­hóp­ur­inn, fjár­mála­ráð­herrar evru­ríkj­anna, muni halda síma­fund um þær síðar í dag, eða klukkan 5 að íslenskum tíma.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár