RannsóknLeyndarmál Kýpur

Tortóla­snún­ingur Hreiðars á Íslandi afhjúpað­ist í Danmörku

Sami maður sá um félag Hreiðars Más Sig­urðs­sonar, fyrr­ver­andi for­stjóra Kaup­þings, sem afhjúpað­ist í Panama­skjöl­unum og fyrir Önnu Lísu Sig­ur­jóns­dóttur, eig­in­konu hans, og tvær aðrar konur sem giftar eru fyrr­ver­andi lyk­il­stjórn­endum bank­ans. Ný gögn sýna hvernig pen­ingar úr aflands­fé­lögum á Tortóla flæddu í gegnum sjóðs­stýr­inga­fé­lag Arion banka og inn í íslenska ferða­þjón­ustu.
Fréttir

Formaður VR kallar líf­eyr­is­sjóð­ina sið­lausa plágu í sam­fé­lag­inu

Ragnar Þór Ing­ólfs­son segir að það sé „alltaf að koma betur og betur í ljós að líf­eyr­is­sjóð­irnir eru plága í íslensku sam­fé­lagi“. Vísar hann til þess að sjóð­irnir beri fyrir síg laga­legri óvissu, er kemur að því að koma til móts við stöðu Grind­vík­inga með sama hætti og við­skipta­bank­arnir hafa ákveðið að gera.
Fréttir

Ummæli um þing­konu til skoð­unar hjá lög­regl­unni á höf­uð­borg­ar­svæð­inu

Í svari lög­regl­unnar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu við fyr­ir­spurn Heim­ild­ar­innar um það hvort það sam­ræm­ist vinnu­reglum lög­regl­unnar að gefa það upp við Nútímann í hvers­konar ástandi Arndís Anna Krist­ín­ar­dóttir Gunn­ars­dóttir var í þegar lög­reglan hand­tók hana á skemmti­stað, segir að það sé með öllu óheim­ilt að gefa slíkar upp­lýs­ingar upp og það verði nú tekið til skoð­unar hjá lög­reglu hvort slíkar upp­lýs­ingar hafi verið gefnar.
Greining

Enn óljóst hvaða ráð­legg­inga Bjarni vís­aði til þegar hann sagði af sér

Bjarni Bene­dikts­son hefur verið boð­aður á opinn fund stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefndar um miðjan næsta mánuð. Til­gangur fund­ar­ins er að óska eftir frek­ari skýr­ingum á ráð­gjöf til hans við sölu á Íslands­banka sem leiddi til þess að hann gætti ekki nægi­lega vel að hæfi sínu. Gögn sem fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neytið afhenti nefnd­inni og Heim­ild­inni varpa ekki skýru ljósi á hver sú ráð­gjöf var.

Mest lesið undanfarið ár