Fréttir

„Þung skref“: Árborg hækkar útsvarið upp í 16,21 pró­sent

Bæj­ar­stjórnin í Árborg sam­þykkti í gær að leggja 10 pró­sent álag ofan á útsvar íbúa sveit­ar­fé­lags­ins á næsta ári, í kjöl­far þess að heim­ild fékkst til þess frá inn­við­a­ráðu­neyt­inu. Eft­ir­lits­nefnd með fjár­málum sveit­ar­fé­laga telur að minna megi það vart vera. Sveit­ar­fé­lög í fjár­kröggum mega setja allt að 25 pró­sent álag á útsvör íbúa.
Skýring

„Kyn­þáttur skiptir máli á Íslandi í dag“

Einn af hverjum tíu fyrstu kyn­slóðar inn­flytj­endum á aldr­inum 13-17 ára hefur orðið fyrir hat­ur­sof­beldi á síð­ustu 12 mán­uðum. Fjöl­breyti­leiki íslensks sam­fé­lags er að aukast og Margrét Valdi­mars­dóttir, doktor í afbrota­fræði, segir tíma­bært að rann­saka stöðu ungra inn­flytj­enda. „Það að verða fyrir aðkasti vegna þess hver þú ert hefur alvar­legar afleið­ingar á sjálfs­mynd þína.“
Viðtal

Heimur Asil rifn­aði í sundur

Asil Al Masri, sautján ára stúlka sem slas­að­ist alvar­lega í loft­árás Ísra­els­hers segir í sam­tali við Heim­ild­ina að það sé eins og heim­ur­inn hennar hafi rifnað í sundur. For­eldrar hennar, eldri systir, mágur og fimm ára frændi hennar dóu í árásinni. Barn­ungir syst­ur­synir hennar slös­uð­ust. Asil er á spít­ala í Egypta­landi en Suleiman Al Masri, bróðir hennar sem býr á Íslandi, vill fá hana hingað.

Mest lesið undanfarið ár