Fréttir

Skipið sem skemmdi vatns­leiðsl­una hafði áður misst akk­erið í sjó­inn

Þegar akk­erið á skipi Vinnslu­stöðv­ar­innar féll útbyrðis, dróst eftir botn­inum og stór­skemmdi einu neyslu­vatns­lögn­ina til Eyja var skipið, Huginn VE, ekki að missa akk­erið útbyrðis í fyrsta skipti. Fram­kvæmda­stjóri fyr­ir­tæk­is­ins, Sig­ur­geir Brynjar Krist­geirs­son, stað­festir þetta við Heim­ild­ina. „Þetta er bull,“ sagði skip­stjóri tog­ar­ans síð­asta föstu­dag, er Heim­ildin spurði hvort búið væri að segja honum og frænda hans upp. Starfs­loka­samn­ingur var gerður við menn­ina sama dag.
Greining

Í fyrsta sinn van­treysta fleiri lands­menn Katrínu en treysta

Sitjandi for­sæt­is­ráð­herra, Katrín Jak­obs­dóttir, hefur lengi notið vin­sælda og trausts umfram það fylgi sem flokkur hennar mælist með og stuðn­ings við rík­is­stjórn hennar. Alla hennar for­sæt­is­ráð­herra­tíð hafa fleiri lands­menn borið mikið traust til hennar en þeir sem hafa treyst henni illa. Á því hefur orðið breyt­ing. Í nýj­ustu könnun Maskínu segj­ast fleiri van­treysta Katrínu en treysta henni.
FréttirKlíníkin og einkarekstur í heilbrigðiskerfinu

Reikn­ingar frá Klíník­inni í skoðun hjá Sjúkra­trygg­ingum

Sjúkra­trygg­ingar Íslands hafa opnað mál gegn einka­rekna heil­brigð­is­fyr­ir­tæk­inu Klíník­inni vegna meintra of hárra reikn­inga til rík­is­ins fyrir þjón­ustu við við­skipta­vini. Eitt málið snýst um tugi millj­óna króna. Sjúkra­trygg­ingar Íslands svör­uðu ekki spurn­ingum þrátt fyrir tæp­lega tveggja vikna frest.

Mest lesið undanfarið ár