NeytendurLaxeldi

Einungis tvö fyr­ir­tæki á Íslandi selja ein­göngu reyktan og graf­inn lax úr land­eldi

Stærstu sölu­að­ilar á reyktum og gröfnum laxi hér á landi nota sjó­kvía­eldis- og land­eld­is­lax í fram­leiðslu sína á þessum vörum sem Íslend­ingar borða mikið af á jólum. Tvö af fyr­ir­tækj­unum fyrir norðan nota bara land­eld­is­lax frá Samherja í Öxar­firði en útgerð­ar­fé­lagið er frum­kvöð­ull í land­eldi á lax­fiskum hér á landi.
FréttirÁrásir á Gaza

Sam­sær­is­kenn­ingu Stefáns Einars hafnað í ráðu­neyt­inu

Þátta­stjórn­and­inn Stefán Einar Stef­áns­son á mbl.is full­yrðir að Íslend­ingar hafi fjár­magnað hern­að­ar­mann­virki Hamas með fram­lagi til mann­úð­ar­hjálpar. Hann hvetur til þess að með­limum sam­tak­anna sé „eytt af yfir­borði jarðar“ til að verja óbreytta borg­ara, meðal ann­ars á Íslandi. Utan­rík­is­ráðu­neytið hafnar kenn­ing­unni um að flótta­manna­hjálp Palest­ínu renni til hern­aðar Hamas-sam­tak­anna.
Fréttir

Skil­grein­ing á spill­ingu þegar opin­beri geir­inn er not­aður til að umb­una veittan stuðn­ing

Pró­fessor í stjórn­mála­fræði segir það erfitt að rétt­læta póli­tískar stöðu­veit­ingar sem verð­laun fyrir veittan stuðn­ing. Ekki eigi að nota opin­bera geir­ann í þeim til­gangi. „Það fellur undir að mis­nota opin­bert vald í þágu einka­hags­muna, sem er skil­grein­ing Transparency International á spill­ingu,“ segir hann. Starfs­menn utan­rík­is­þjón­ust­unnar sem gagn­rýndu frum­varpið sem Bjarni Bene­dikts­son nýtti til að skipa Svan­hildi Hólm vilja nú lítið tjá sig um málið.
FréttirPressa

Inga er óánægð með Ásmund: „Ég fæ aula­hroll þegar ég horfi á ráð­herra“

Inga Sæland for­dæmdi skort á aðgerðum stjórn­valda í mála­flokki fátækra í Pressu fyrr í dag. Sagði hún þar að hún fengi aula­hroll yfir mál­flutn­ingi Ásmunds Einars Daða­sonar barna­mála­ráð­herra. Hún sagð­ist hafa fengið nóg af stýri­hópum, nefndum og ráðum. Það þyrfti ein­fald­lega að hækka laun þeirra fátæk­ustu.
Fréttir

Breið­fylk­ing stétt­ar­fé­laga stefnir á nýja þjóð­ar­sátt – Stjórn­völd verða að leið­rétta til­færslu­kerfin

Stærstu stétt­ar­fé­lögin á almennum mark­aði hafa náð saman um nálgun á kom­andi kjara­samn­inga. Þau eru til­búin að sætt­ast á hóf­legar krónu­tölu­hækk­anir á launum ef fyr­ir­tæki, stjórn­völd og sveit­ar­fé­lög leggja sitt að mörkum. Formaður Eflingar segir að laga þurfi til­færslu­kerfin með þeim hætti að þau fari aftur á þann stað sem þau voru árið 2013.
ViðtalFlóttafólk frá Venesúela

Flúðu frá Venes­ú­ela og Grinda­vík og eign­uð­ust jóla­barn

Par frá Venes­ú­ela, Roger Guerra og Rosimar Barrozi, flúði upp­lausn­ina í Venes­ú­ela í fyrra og sett­ist að í Grinda­vík. Þegar ógn vegna jarð­skjálta og yfir­vof­andi eld­goss steðj­aði að voru þau flutt í hús­næði í Hafn­ar­firði. Þau voru að eign­ast litla dóttur sem heitir Roma Victoria Guerra. Í við­tali við Heim­ild­ina ræða þau um líf sitt í Venes­ú­ela og Grinda­vík og óviss­una sem fylgir því að vera hæl­is­leit­endur sem íslenska ríkið hefur nú þegar synjað einu sinni um leyfi til að setj­ast að í örygg­inu á Íslandi.

11 mín. lestur

FréttirPressa

Barna­mála­ráð­herra um fátæk börn: „Við erum að falla þarna“

Ásmundur Einar Daðason mennta- og barna­mála­ráð­herra segir í þætt­inum Pressu að þörf sé á miklu meiri póli­tískri umræðu um þá stað­reynd að börnum sem búi við fátækt á Íslandi hafi fjölgað. Rúmlega 10 þús­und börn eru fátæk hér á landi sam­kvæmt UNICEF, það er eitt barn af hverju átta. „Við þurfum að stíga inn í aðgerðir í meira mæli gagn­vart þessum hópi,“ segir Ásmundur Einar.
Fréttir

Margeir gerði leyni­upp­töku af lög­reglu­kon­unni sem hann áreitti

Hátt­settur lög­reglu­þjónn, sem áreitti lög­reglu­konu kyn­ferð­is­lega og sýndi henni ofbeld­is­fulla hegðun, hljóð­rit­aði án hennar vit­undar sam­tal þeirra og reyndi að nýta það sem kom fram á upp­tök­unni þegar sál­fræði­stofa var fengin til að leggja mat á sam­skipti þeirra. Lög­reglu­mað­ur­inn tók við nýrri stöðu þegar hann sneri aftur úr leyfi.

Mest lesið undanfarið ár