Fréttir

Lög­reglan kann­ast ekki við að hafa hand­tekið mann fyrir það að vera þeldökkur

Stjúp­móðir þeldökks manns greindi frá því á sam­fé­lags­miðlum í gær að sonur hennar hafi verið hand­tek­inn á aðfanga­dags­kvöld fyrir það eitt að hafa ekki skil­ríki með­ferðis. Lög­reglan hafi komið illa fram við mann­inn og ásakað hann um lygar. Lög­reglan kann­ast ekki við lýs­ingu líkt og lýst er í færsl­unni og seg­ist ekki hand­taka fólk fyrir það eitt að vera þeldökkt.
Greining

Ríkasta 0,1 pró­sent lands­manna eign­að­ist 28 nýja millj­arða í fyrra

Þær 242 fjöl­skyldur lands­ins sem þén­uðu mest í fyrra áttu sam­tals 353 millj­arða króna um síð­ustu ára­mót og skuld­uðu lítið sem ekk­ert. Næstum þrjár af hverjum fjórum krónum sem hóp­ur­inn þénar eru fjár­magnstekjur. Eignir hans eru van­metnar þar sem verð­bréf eru metin á nafn­virði, ekki á því virði sem hægt væri að selja þau á.
Leiðari

Alma Mjöll Ólafsdóttir

Sam­an­burður er okkar leið til að þekkja heim­inn

Kemur ekki vor að liðnum vetri? Vakna ei nýjar rósir sumar hvert? spyr lagið Þrek og tár. Nú er jóla­bóka­flóðið senn á enda, árið líka og jólin á næsta leiti. Og ég, sem hef fengið að rit­stýra sex tölu­blöðum af bóka­blaði Heim­ild­ar­innar þennan vet­ur­inn, veit að vorið kemur og er þess full­viss að næsta sumar vakna nýjar rósir og að...
Úttekt

Rúmlega 15 ára saga Skelj­ungs­máls­ins sem end­aði með nið­ur­fell­ingu

Íslands­banki grun­aði fyrr­ver­andi starfs­menn sína um að hafa gert sam­komu­lag á árunum 2008 og 2009 sem gerði þá ævin­týra­lega ríka gegn því að vinna gegn hags­munum bank­ans í við­skiptum með hluti í Skelj­ungi. Málið var kært til hér­aðs­sak­sókn­ara sum­arið 2016 og tveimur árum síðar var fólk hand­tekið ásamt því að hús­leitir áttu sér stað. Í síð­ustu viku, rúmum 15 árum eftir upp­haf máls­ins, tæpum átta árum eftir að það var kært og tæpum sex árum eftir hand­tök­urnar, var málið fellt niður. Enginn verður ákærður.

16 mín. lestur

Fréttir

Biðla til þing­manna að stöðva frum­varp for­sæt­is­ráð­herra: „Eftir standa smán­aðir þolendur“

Rósa Ólöf Ólaf­íu­dóttir segir að til­lögur und­ir­bún­ings­hóps vegna frum­varps um sann­girn­is­bætur hafi verið hafðar að engu. For­sæt­is­ráð­herra hafi síðan þakkað öllum með nafni, nema þeim sem beittir voru rang­læti á stofn­unum. Í umsögn frá Viðari Egg­erts­syni og Árna H. Krist­jáns­syni er svip­uðum sjón­ar­miðum lýst, en þeir biðla til þing­manna að láta til sín taka í mál­inu.
Myndir

Börn sem þurftu að yfir­gefa heim­ili sín finna ró í Graf­ar­vogi

Á leik­skóla í Graf­ar­vogi koma grind­vísk börn og kenn­arar þeirra saman nokkra daga í viku. Sum koma jafn­vel alla leið frá Akranesi til þess að hitta félaga sína. Það gerir ekki bara börn­unum gott að hitt­ast, heldur líka kenn­ur­unum, sem þekkja sárs­auka hver ann­ars sem mynd­að­ist á svip­uðum tíma og sprungur urðu til í grind­vískri jörðu í síð­asta mán­uði.

Mest lesið undanfarið ár