Biðla til þingmanna að stöðva frumvarp forsætisráðherra: „Eftir standa smánaðir þolendur“

Rósa Ólöf Ólaf­íu­dóttir segir að til­lögur und­ir­bún­ings­hóps vegna frum­varps um sann­girn­is­bætur hafi verið hafðar að engu. For­sæt­is­ráð­herra hafi síðan þakkað öllum með nafni, nema þeim sem beittir voru rang­læti á stofn­unum. Í umsögn frá Viðari Egg­erts­syni og Árna H. Krist­jáns­syni er svip­uðum sjón­ar­miðum lýst, en þeir biðla til þing­manna að láta til sín taka í mál­inu.

Biðla til þingmanna að stöðva frumvarp forsætisráðherra: „Eftir standa smánaðir þolendur“
Vill rétt­læti Rósa, Viðar og Árni tóku sæti í und­ir­bún­ings­nefnd en gagn­rýna öll nýtt frum­varp for­sæt­is­ráð­herra. Mynd: Golli

Rósa Ólöf Ólaf­íu­dóttir skrif­aði for­sæt­is­ráð­herra opið bréf fyrir ári síðan, þar sem hún gagn­rýndi fyr­ir­liggj­andi frum­varp um heild­ar­lög um sann­girn­is­bætur. Rósu var boðið að taka sæti í und­ir­bún­ings­nefnd fyrir nýtt frum­varp, sem liggur nú hjá alls­herjar- og mennta­mála­nefnd. Hún segir hins vegar ekki hafa verið hlustað á eina ein­ustu til­lögu sem hún og þeir Árni H. Krist­jáns­son og Viðar Egg­erts­son lögðu fram.  

Unnu að tillögum allt sumarið

„Bjarna Karls­syni var falið af for­sæt­is­ráð­herra að hafa sam­band við þolendur vegna gagn­rýni á fyrra frum­varpið. Hann hafði sam­band við Árna, Viðar og mig. Við fórum á fund með for­sæt­is­ráð­herra, á fund í for­sæt­is­ráðu­neyt­inu með lög­fræð­ingi og það voru kall­aðir til sér­fræð­ingar. Við hitt­umst í allt fyrra­sumar, frá vori og fram á haust, til þess að vinna að þessu.

Allir full­trúar nefnd­ar­innar voru laun­aðir nema við, …

Kjósa
35
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (4)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Bryndís Dagbjartsdóttir skrifaði
    Já það skánar ekki álitið á Katrínu, hún syndir skriðsund að feigðarósi með þennan flokk sinn allt gert til að þóknast D og B
    2
  • Kári Jónsson skrifaði
    Arfleifð Katrínar Jak verður sífellt skelfilegri.
    2
  • Jón Ragnarsson skrifaði
    Hver hefur verið tilgangur VG liða í íslenskri pólitík ?
    Jú, að þjóna sjálfstæðisflokknum og framsóknarflokknum til að eyðileggja íslenskt samfélag.
    Katrín Jakobsdóttir titluð forsætisráðherra . Aumust af þeim öllum !
    4
  • SO
    Sigurður Oddgeirsson skrifaði
    Já, hún Katrín.......
    2
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár