Viðskipti

Banka­sýslan getur ekki gert grein fyrir tug millj­óna kaupum á þjón­ustu

Frá því að til­kynnt var að leggja ætti niður Banka­sýslu rík­is­ins og fram að síð­ustu ára­mótum þá keypti stofn­unin þjón­ustu fyrir 57,4 millj­ónir króna. Hún getur ekki svarað því nema að hluta af hverjum hún keypti þessa þjón­ustu. Mest af því sem stofn­unin getur gert grein fyrir fór til Logos, eða alls 15,3 millj­ónir króna á átta mán­uðum í fyrra.
FréttirEinkarekstur í heilbrigðiskerfinu

Ríkið ætlar að útvista lið­skipta­að­gerðum til einka­fyr­ir­tækja í allt að fimm ár

Sjúkra­trygg­ingar Íslands ætla að útvista lið­skipta­að­gerðum, aðgerðum vegna endó­metríósu og brjósklosi með samn­ingum til allt að fimm ára. Samn­ing­arnir gagn­ast einka­rekna heil­brigð­is­fyr­ir­tæk­inu Klíník­inni sér­stak­lega vel þar sem það fram­kvæmir allar þessar aðgerðir. For­stjóri Sjúkra­húss­ins á Akureyri lýsir áhyggjum af auk­inni útvistun skurða­gerða til einka­fyr­ir­tækja.
Greining

Segist ekki sam­þykkja kaup Lands­bank­ans á TM nema bank­inn verði einka­væddur

Fjármála- og efna­hags­ráð­herra segir að rík­is­fyr­ir­tæki eigi ekki að kaupa trygg­inga­fé­lag. Hún ætlar að óska skýr­inga frá Banka­sýslu rík­is­ins, stofnun sem var sett á fót til að koma í veg fyrir að stjórn­mála­menn skiptu sér af rekstri rík­is­banka, á kaupum Lands­bank­ans á TM. Samkvæmt eig­enda­stefnu má ekki selja hluti í Lands­bank­anum fyrr en allt hlutafé í Íslands­banka hefur verið selt.
FréttirRaunir Grindvíkinga

Erum eig­in­lega að byrja upp á nýtt

Enda­lausar áhyggjur af fötl­uðum syni og aldr­aðri móður hafa ein­kennt mán­uð­ina fjóra sem liðnir eru síðan hár­greiðslu­meist­ar­inn Guðrún Krist­jana Jóns­dóttir, Lillý, flúði Grinda­vík. Fjöl­skyldan ætlar ekki að flytja þangað aftur. „Það gerð­ist eitt­hvað innra með mér þegar mað­ur­inn féll ofan í sprung­una,“ segir hún. Sprungan sem klauf svo íþrótta­húsið, annað heim­ili sona hennar, gerði að end­ingu úts­lagið.

11 mín. lestur

Mest lesið undanfarið ár