Myndband sýnir upphaf eldgossins

Eldgos er hafið á Reykja­nesi á ný. Myndband sýnir hvernig eld­veggur reis á örfáum sek­úndum milli Stóra Skóg­fells og Haga­fells. Upptökin eru nær Bláa lón­inu en áður.

Myndband sýnir upphaf eldgossins
Töluvert rennsli Stilla úr vef­mynda­vél Live from Iceland af Sundhnúk. Mynd: Live from Iceland

Eldgos hófst á Reykja­nesi klukkan 20.23 í kvöld með litlum fyr­ir­vara. Stórir kviku­strókar voru strax sjá­an­legir á fyrstu sek­úndum eld­gos­ins. Myndband sýnir hvernig eld­veggur rís á örfáum sek­úndum.

Rýming er hafin í Grinda­vík og um 700 til 800 manns var gert að yfir­gefa Bláa lónið og hótel þar. Upptök goss­ins eru á svip­uðum stað og áður á Sund­hnúks­gíga­röð­inni, en sam­kvæmt fyrstu mæl­ingum Veð­ur­stofu Íslands eru þau nær Bláa lón­inu og Svarts­engi en áður. Svo virð­ist sem aðdrag­and­inn hafi verið stuttur en vart var við aukna  skjálfta­virkni aðeins stuttu fyrir gosið.

Við fyrstu sýn var fyr­ir­var­inn tal­inn í mín­útum en það leið ein­ungis um mín­úta frá til­kynn­ingu Veð­ur­stofu Íslands um að skjálfta­virkni sem gæti verið fyr­ir­boði eld­gos áður en eld­gosið sjálft hófst. 

Smá­skjálfta­hrina hófst um klukkan hálf­átta með litlum, grunnum skjálftum við Sund­hnúks­gíga­röð­ina, á svip­uðum stað og gosið átti eftir að brjót­ast út klukku­tíma síðar. Það var síðan mín­útu áður en gosið hófst sem skjálfti að stærð­inni 1,2 mæld­ist á aðeins hund­rað metra dýpi rúmum kíló­metra norður af Stóra Skóg­felli og annar dýpri um 20 sek­úndum síðar. Upptök goss­ins eru skammt suður af fell­inu og nokkur hund­ruð metrum austan við Sýl­inga­fell, en handan þess er Bláa lónið.

Á mynd­band­inu að ofan sést upp­haf goss­ins, fangað af vef­mynda­vél Live from Iceland. 

Bjarminn vel sjá­an­legurEldgosið séð úr Áslands­hverf­inu í Hafn­ar­firði.

Veg­far­endur á Reykja­nes­braut sem hafa sett sig í sam­band við Heim­ild­ina lýsa sjá­an­legur bjarma frá gos­inu. Fólk sem búsett er í yst í Hafn­ar­firði segir einnig frá því að það sjái gosið þaðan. Það á raunar við víðar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu en myndin hér að neðan er tekin á Sel­tjarn­ar­nesi stuttu eftir að gosið hófst. 

Sést víðaÞessi mynd er tekin á Sel­tjarn­ar­nesi í 35 kíló­metra fjar­lægð og sést skuggi Stóra Skóg­fells hægra megin við gos­bjar­mann.
Stað­setn­ing gossprunguVeð­ur­stofa Íslands áætlar að stað­setn­ing gossprung­unnar nú sé nokkur hund­ruð metrum vestar en í fyrri gosum og þar með nær Bláa lón­inu.
Kjósa
17
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár