FréttirPressa

Steinunn Ólína seg­ist ekki bjóða sig fram gegn Katrínu vegna per­sónu­legrar óvildar

Steinunn Ólína Þor­steins­dóttir sagð­ist í Pressu fara fram fyrir hönd þeirra sem upp­lifa valda­leysi gagn­vart stjórn­völdum. Taldi hún for­seta­kosn­ing­arnar vera afar póli­tískar að þessu sinni. Þrátt fyrir gagn­rýni sína á rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur, ítrek­aði Steinunn að fram­boð hennar væri ekki vegna per­sónu­legra óvildar hennar í garð Katrínu.
Viðskipti

Ástandið í Grinda­vík dró úr gróða stóru bank­anna

Dregið hefur úr hagn­aði hjá þremur stærstu við­skipta­bönk­unum. Í árs­hluta­skýrslum sem bank­arnir þrír birtu nýlega má sjá að arð­semi eig­in­fjár hjá bönk­unum þremur er undir 10 pró­sentum. Í til­felli Íslands­banka og Lands­banka, sem ríkið á hlut í, er hlut­fallið undir þeim kröfum sem ríkið gerir til þeirra. Jarð­hrær­ingar á Reykja­nes eru meðal ann­ars taldar hafa haft áhrif á afkomu bank­anna.
FréttirSr. Friðrik og drengirnir

Davíð kallar borg­ar­stjórn bjálfa fyrir að taka niður stytt­una af Séra Friðriki

Rit­stjóri Morg­un­blaðs­ins segir upp­lýs­ingar um að Séra Friðrik Frið­riks­son, stofn­andi KFUM, hafi beitt fjöl­marga drengi kyn­ferð­is­legu áreiti og ofbeldi vera „get­gátur eins manns“ eftir að „ímynd­un­ar­afl hans fór loks í gang eftir tæp 75 ár.“ Það að stytta af honum hafi verið fjar­lægð sé merki um ofstæki þeirra sem noti hvert tæki­færi til að þykj­ast betra og pen­inga­laus­ara en annað fólk.
AfhjúpunDýr skyldi Haraldur allur

Örlæti Haraldar kostar rík­is­sjóð yfir hálfan millj­arð

Rík­is­sjóður situr uppi með yfir 500 millj­óna króna reikn­ing eftir að Haraldur Johann­es­sen, fyrr­ver­andi rík­is­lög­reglu­stjóri, hækk­aði líf­eyr­is­rétt­indi útval­inna und­ir­manna sinna um helm­ing, án þess að hafa til þess heim­ild. Þetta er nið­ur­staða meiri­hluta Hæsta­réttar sem kallar verk Haraldar „örlæt­is­gjörn­ing“. Stór hluti þess­ara und­ir­manna Haraldar skrif­aði undir opin­bera stuðn­ings­yf­ir­lýs­ingu við hann stuttu síðar. Samn­ing­arnir standa samt því und­ir­menn­irnir vissu ekki betur en að Haraldur mætti gera þá. Ummæli tveggja ráð­herra hafi styrkt þá trú þeirra.

9 mín. lestur

Mest lesið undanfarið ár