Greining

100 bestu bækur 21. aldar – íslenski list­inn

Dag­blaðið The New York Times birti nýverið lista yfir 100 bestu bækur 21. ald­ar­innar í til­efni þess að ald­ar­fjórð­ungur er senn lið­inn frá upp­hafi hennar. Á list­anum er að finna fjölda skáld­verka sem notið hafa vin­sælda meðal íslenskra les­enda í íslenskri þýð­ingu. Má þar nefna bók­ina Fram­úr­skar­andi vin­kona, fyrstu bók í Napólí-fjór­leik Elenu Ferrante, sem vermir 1. sæti list­ans og Slepptu mér aldrei eftir jap­ansk-enska rit­höf­und­inn og Nóbels­hafann Kazuo Ishiguro sem situr í 9. sæti hans. En hverjar eru bestu íslensku bækur 21. ald­ar­innar?

15 mín. lestur

Á vettvangi

Á vett­vangi með kyn­ferð­is­brota­deild­inni: Konur í við­kvæmri stöðu

Teym­is­stjóri Bjark­ar­hlíðar segir öll ofbeld­is­brot í tíunda veldi í fíkni­efna­heim­inum. „Við erum oft að sjá mjög ungar stelpur í þessum aðstæðum og við vitum af stelpum sem eru fimm árum eldri sem hafa lent í sömu mönnum, tíu árum eldri sem hafa lent í sömu mönnum,“ segir Jenný Kristín Valberg. Þetta er meðal þess sem kemur fram í loka­þætti hlað­varpss­er­í­unnar Á vett­vangi þar sem Jó­hann­es Kr. Krist­jáns­son fylg­ist með störf­um kyn­ferð­is­brota­deild­ar lög­regl­unn­ar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu.

40 mín. lestur

Fréttir

Greiðslu­byrðin tvö­fald­að­ist um mán­að­ar­mót: „Það má ekk­ert koma upp á“

Greiðslu­byrði af hús­næð­is­láni Gígju Skúla­dóttur tvö­fald­að­ist síð­ustu mán­að­ar­mót. Þegar búið er að greiða önnur mán­að­ar­leg gjöld stendur hún eftir með lítið á milli hand­anna til þess að verja í grunn nauð­synjar á borð mat. Hún segir að lítið megi út af bregða án þess að hún lendi í fjár­hags­vand­ræðum. Hún spyr hvernig venju­legu fólki tak­ist að lifa lífi sínu í núver­andi efna­hags­á­standi.
ÚttektKerfi sem bregst barnafjölskyldum

Klárar hvern ein­asta veik­inda­dag í með­göngu­veik­indi

Fyrir tæpum 34 árum stóð Sigrún Jóns­dóttir í pontu á Alþingi og krafð­ist þess að ófrískar konur fengju svo­kallað með­göngu­or­lof við 36. viku með­göngu svo þær þyrftu ekki að ganga á veik­inda­rétt­inn sinn. Nú, 34 árum síðar, er dóttir Sigrúnar, Jóna Þórey Pét­urs­dóttir, einmitt í þeim sporum að klára veik­inda­rétt­inn sinn vegna veik­inda á með­göngu. Þegar hún kemur aftur á vinnu­markað eftir orlof mun hún ekki eiga neinn veik­inda­rétt inni.
SkýringFriðlandið í Vatnsfirði

Virkj­unin sem eng­inn vill á leið í nýt­ing­ar­flokk

Skógi­vax­inn dalur og ósnortin víð­erni yrðu fyrir áhrifum áform­aðrar Tröll­ár­virkj­unar á Vest­fjörðum. Verk­efn­is­stjórn leggur til að kost­ur­inn fari í nýt­ing­ar­flokk ramma­á­ætl­unar en land­eig­endur segja nei takk. Virkj­un­ar­að­il­inn er ekk­ert sér­stak­lega spenntur heldur og vill frekar horfa til ann­ars dals í nágrenn­inu.

Mest lesið undanfarið ár